Hver Norðmaður fær 18 sinnum meira í auðlindaskatt en Íslendingur

Það þarf að rukka ferða­menn fyrir að leggja við helstu ferða­manna­staði, hækka gistin­átta­gjald, sam­ræma auð­lind­arentu fyrir nýt­ingu í sjáv­ar­út­vegi og orku­fram­leiðslu. Ísland á að fá hærri skatt­greiðslur fyrir nýt­ingu á auð­lindum þjóð­ar­innar.

Ferðaþjónusta felur í sér auðlindanýtingu. Og hana er hægt að skattleggja t.d. með bílastæðagjöldum og hærri gistináttaskatti.
Ferða­þjón­usta felur í sér auð­linda­nýt­ingu. Og hana er hægt að skatt­leggja t.d. með bíla­stæða­gjöldum og hærri gistin­átta­skatti. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Skatt­tekjur hvers Norð­manns vegna auð­linda­nýt­ingar eru 18 sinnum hærri en þær skatt­tekjur sem skila sér í gegnum sam­neysl­una til hvers Íslend­ings. Skatt­tekjur af auð­lindum á hvern íbúa í Noregi eru 416.400 krónur en á Íslandi eru þær 23 þús­und krónur. Í Noregi kemur skatt­ur­inn að mestu vegna nýt­ingu á olíu (404 þús­und krónur) en einnig vegna orku­skatta. Á Íslandi er eina nýt­ing­ar­gjaldið sem greitt er fyrir afnot af auð­lindum þjóð­ar­innar veiði­gjald í sjáv­ar­út­vegi, sem hefur farið hríð­lækk­andi á und­an­förnum árum. Þetta kemur fram í skýrslu sjálf­stæðrar verk­efna­stjórnar Sam­ráðs­vett­vangs um aukna hag­sæld um breyt­ingar og umbætur á skatt­kerfi sem birt var í dag.

Verk­efn­is­stjórnin, sem hóf störf í febr­úar á þessu ári, var skipuð sex sér­fræð­ingum í skatt­málum. Dr. Daði Már Krist­ó­fers­son, dós­ent í hag­fræði og for­seti Félags­vís­inda­sviðs Háskóla Íslands fór fyrir verk­efn­is­stjórn­inni en hún var jafn­framt skipuð þeim Völu Val­týs­dóttur lög­fræð­ingi, dr. Axel Hall hag­fræð­ingi, Halldóri Benjamín Þor­bergs­syni hag­fræð­ingi, Elínu Elmu Arth­urs­dóttur frá rík­is­skatt­stjóra og Alex­ander Edvards­syni lög­giltum end­ur­skoð­anda. Verk­efn­is­stjórnin hefur þegar kynnt til­lögur sínar fyrir Sam­ráðs­vett­vangnum.

Það þarf að hækka auðlindagjöld

Í skýrsl­unni er meðal ann­ars fjallað sér­stak­lega um breyt­ingar á umhverfis- og auð­linda­gjöldum. Þar segir að þrjár meg­in­stoðir séu í auð­linda­geir­anum á Íslandi: ferða­þjón­usta, sjáv­ar­út­vegur og álf­ram­leiðsla. Útflutn­ings­tekjur á hvern Íslend­ing séu 1.096 þús­und krónur vegna ferða­þjón­ustu, 796 þús­und vegna sjáv­ar­út­vegs og 717 vegna álf­ram­leiðslu.

Skýrslu­höf­undar segja að vegna tak­mark­aðs magns auð­linda þá þurfi arð­semi að aukast í öllum auð­linda­geirum á kom­andi árum. Gjöld fyrir nýt­ingu þeirra sem end­ur­spegli umfram­hagnað eða auð­lind­arentu séu því hag­kvæm tekju­öflun. Því er verk­efna­stjórnin að leggja til að umfangs­meiri en sam­ræmd­ari gjöld verði lögð á auð­linda­nýt­ingu sem skili meiru í rík­is­kass­ann ef atvinnu­veg­irnir sem nýta auð­lind­irnar gangi vel. Það sem kemur inn til við­bótar eigi að fara í að lækka aðra skatta á borð við virð­is­auka­skatt, tekju­skatt ein­stak­linga og trygg­inga­gjald. Þannig njóti sem flestir ábatans.

Hækka gistináttaskatt og setja á bílastæðagjöld

Verk­efna­stjórnin leggur fram fimm til­lögur. Í ferða­þjón­ustu leggur hún til að inn­heimta bíla­stæða­gjalda við ferða­manna­staði verði aukin og auð­velduð, enda séu bíla­stæða­gjöld regla fremur en und­an­tekn­ing við fjöl­farna ferða­manna­staði alls staðar um hinn vest­ræna heim. Hún leggur einnig til að gistin­átta­skatti verði breytt og hann hækk­aður.

Í til­lög­unum er lagt til að föst fjár­hæð verði rukkuð fyrir hverja gistnótt en að tjald­svæði verði und­an­þegin skatt­lagn­ing­unni. Þar er einnig lagt til að stærstur hluti skatt­tekn­anna renni til sveit­ar­fé­lag­anna þar sem skatt­ur­inn mynd­ast, enda hafi þau orðið eft­irá í tekju­öflun vegna vax­andi ferða­þjón­ustu þrátt fyrir að leika lyk­il­hlut­verk í mót­töku þeirra. Þá eigi hluti tekn­anna að renna í fram­kvæmda­sjóð ferða­mála.

Gjaldataka í sjávarútvegi markist af afkomu

Um fátt hefur verið deilt jafn hat­ramm­lega und­an­farna ára­tugi á Íslandi og skipt­ingu arð­semi vegna nýt­ingu á fisk­veiði­auð­lind­inni. Þar hefur langstærsti hluti arð­sem­innar fallið eig­endum sjáv­ar­út­vegs, sem hafa fengið úthlutað kvóta end­ur­gjalds­laust, í té. Kjarninn greindi til að mynda frá því um liðna helgi að Samherji, stærsta sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki lands­ins, hefði hagn­ast um 71,7 millj­arða króna á fimm árum. Tveir menn eiga Samherja að mestu. Veið­gjöld sem lögð hafa verið á útgerðir lands­ins hafa lækkað um sam­tals 23 pró­sent í valda­tíð sitj­andi rík­is­stjórnar og voru tæp­lega fimm millj­arðar króna í fyrra.

Verk­efna­stjórnin leggur til fyr­ir­komu­lag nýt­inga­réttar og gjald­töku verði byggt á sömu mál­efna­legu rökum óháð teg­und auð­linda. Gjald­takan eigi meðal ann­ars að end­ur­spegla afkomu í veiðum.

Skýrslu­höf­undar leggja því til að gerðir verði einka­rétt­ar­legir nýt­inga­samn­ingar með föstum gild­isíma í stað úthlutun afla­marks. Gjaldið sem greitt verði sé ákvarðað á mark­aðs­for­sendum og byggir á afla­brögðum og verði á sama fisk­veiði­ári.

Búa á til auðlindasjóð

Sama eigi að gilda um orku­fram­leiðslu. Þar verði gerðir lang­tíma­samn­ingar um greiðslu orku­skatta og að eign­ar­haldi auð­linda í eigu rík­is­ins safnað saman á einn stað. Slíkur staður yrði þá ein­hvers konar auð­linda­sjóður.

Verk­efna­stjórnin vill auk þess hækka kolefn­is­gjald, en tekjur rík­is­ins af því voru rúm­lega þrír millj­arðar króna á árinu 2015. „Hækkun gjalds­ins gæti skilað umtals­verðri aukn­ingu á tekjum og skapað hvata til að draga úr losun á þann hátt sem er skil­virkastur,“ segir í skýrsl­unni.

Kjarninn mun halda áfram að fjalla um þær til­lögur sem lagðar eru fram um breyt­ingar og umbætur á skatt­kerf­inu á næst­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár