Samherji hagnast um 71,7 milljarða á fimm árum

Gott gengi Samherja á und­an­förnum árum hefur sett fyr­ir­tækið á sér­stakan stall meðal sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja hér á landi.

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja.
Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja. Mynd: Aðsend

Óhætt er að segja að stærsta útgerð­ar­fyri­tæki lands­ins, Samherji, hafi átt góðu gengi að fagna á und­an­förnum árum, en á árunum 2011 til og með 2015 hefur fyr­ir­tækið hagn­ast um 71,7 millj­arða króna.

Hagnaður árið 2011 var 8,8 millj­arðar, árið 2012 16 millj­arðar, árið 2013 22 millj­arðar, árið 2014 11 millj­arðar og árið 2015 var hagn­að­ur­inn 13,9 millj­arðar króna. Sam­an­lagður hagn­aður er 71,7 millj­arðar króna á þessu fimm ára tíma­bili. Þetta er lang­sam­lega besta rekstr­ar­tíma­bil í sögu fyr­ir­tæk­is­ins og má segja að fyr­ir­tækið hafi stungið önnur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki af, þegar kemur að stærð og fjár­hags­legum styrk.

Rekstr­ar­tekjur sam­stæðu Samherja voru tæpir 84 millj­arðar króna árið 2015, sam­kvæmt til­kynn­ingu fyr­ir­tæk­is­ins. Hagnaður fyrir afskriftir og fjár­magnsliði nam 19,9 millj­örðum króna, sam­an­borið við 16,4 millj­arða árið á undan, en það er um 23 pró­sent af heild­ar­tekjum. 

Eignir fyr­ir­tæk­is­ins hafa auk­ist jafnt og þétt á síð­ustu árum, en arð­greiðslur hafa oft verið í kringum tíu pró­sent af árlegum hagn­aði. Þannig var reyndin vegna rekstr­ar­árs­ins í fyrra og eru því 1,4 millj­arðar greiddir til hlut­hafa.

Í efna­hags­reikn­ingi eru eignir Samherja sam­stæð­urnar í lok árs 2015 sam­tals 119 millj­arðar króna. Heild­ar­skuldir og skuld­bind­ingar voru 36 millj­arðar á sama tíma og bók­fært eigið fé 83 millj­arðar króna. Eig­in­fjár­hlut­fall sam­stæð­unnar var 69,8% í árs­lok.

Lang­tíma­skuldir fyr­ir­tæk­is­ins lækk­uðu milli ára um ríf­lega tólf millj­arða. Í árs­lok 2014 voru þær 25,7 millj­arðar en í árs­lok í fyrra voru þær 13,5 millj­arðar. Á móti juk­ust skamm­tíma­skuldir úr 15,1 millj­arði í 22,4 millj­arða. Lækkun skulda milli ára nemur því um fimm millj­örðum króna.

Eignir fyr­ir­tæk­is­ins skipt­ast í 80,6 millj­arða eignir, sem skil­grein­ast sem fasta­fjár­muni, og síðan 38,4 millj­arða veltu­fjár­muni. 

Rekstur útgerðar og fisk­vinnslu á Íslandi er að mestu leyti í félög­unum Samherji Ísland ehf. og Útgerð­ar­fé­lag Akur­eyr­inga ehf., að því er segir í til­kynn­ingu fyr­ir­tæk­is­ins, og rekstur fisk­eldis er í Íslands­bleikju ehf. Starf­semi sam­stæð­unnar er víða um heim, mest á Íslandi og í Evrópu, en einnig í Afríku og Kanada. Sam­stæðu­reikn­ingur Samherja er settur fram í evrum. Í til­kynn­ing­unni eru fjár­hæðir rekstrar umreikn­aðar í íslenskar krónur miðað við með­al­gengi árs­ins 2015 sem var 146,2 krónur á hverja evru. 

Gengi krón­unnar hefur styrkst nokkuð gagn­vart helstu við­skipta­myntum á þessu ári og er evran nú verð­lögð á 131 krónu.

Helstu eig­endur Samherja eru frænd­urnir, for­stjór­inn Þor­steinn Már Bald­vins­son og útgerð­ar­stjór­inn Kristján Vil­helms­son.

Heild­ar­greiðslur Samherja til hins opin­bera í fyrra námu 4,3 millj­örðum og nam tekju­skattur starfs­fólks 2,2 millj­örðum. Meg­in­starf­semi Samherja á Íslandi er á Eyja­fjarð­ar­svæð­inu, einkum á Akureyri og á Dalvík. En starf­semin teygir sig þó víðar um landið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár