Innreið tæknirisa á lánamarkað markar tímamót

Hvað ger­ist ef tæknirisarnir munu fara hratt inn á fjár­mála­markað, og marka sér þar yfir­burða­stöðu?

Í vik­unni var til­kynnt um það að Amazon væri að und­ir­búa - í sam­vinnu við Goldman Sachs - lána­starf­semi til lít­illa og með­al­stórra fyr­ir­tækja. Þetta er stærsta skrefið sem Amazon hefur stigið til þessa, inn á fyr­ir­tækja­markað í fjár­mála­geir­anum, og þykir marka tíma­mót af ýmsum ástæðum.

Í umfjöllun Financial Times, sem greindi fyrst frá þessum áformum, kom fram að Amazon hygð­ist nýta sér gögn sem fyr­ir­tækið býr yfir, til að bjóða betri kjör á lánsfé og ná einnig til fyr­ir­tækja - eins og birgja fyrir smá­sölu­fyr­ir­tæki - sem þurfa oft á brú­ar­fjár­mögnun að halda til að ljúka við­skiptum sínum, t.d. í gegnum Amazon.

Í því sam­hengi má taka dæmi af fyr­ir­tæki sem kaupir inn mat­væli fyrir mötu­neyti á Amazon, og getur þá tekið lán í gegnum fyr­ir­tækja­að­gang sinn hjá Amazon, og þannig lokið við­skiptum sínum. Þannig hjálpar Amazon við­skipta­vinum að ljúka stærri við­skiptum, en hefð­bundnum ein­stak­lings­við­skiptum, og nær þannig til stærri við­skipta­vina með því að veita þeim lán.

Ólík nálgun

Nú þegar hafa fyr­ir­tæki eins og Facebook, Amazon, Apple og Alphabet (Google) fengið heim­ild til að reka banka­starf­semi í Evrópu. Þau hafa hins vegar ekki hafið jafn umfangs­mikla fjár­mála­starf­semi og reyndin er í Banda­ríkj­unum.

Breyt­ingar á reglu­verki í Evrópu hafa opnað á að greiðslu­miðlun fær­ist í meira mæli frá bönkum og til ann­arra fyr­ir­tækja á sviði fjár­tækni.

Í Banda­ríkj­unum hefur þró­unin verið önnur, enda reglu­verkið í Evr­ópu­sam­band­inu ekki það sama.

Í Banda­ríkj­unum hafa stærstu bank­arnir í land­inu unnið náið með tækniris­unum og farið inn á neyt­enda­markað, t.d. í sam­starfi um útgáfu á greiðslu­kortum og neyt­enda­lánum sem þeim tengj­ast.

Má þar nefna sam­starf Amazon og JP Morgan Chase, þegar kemur Amazon Prime greiðslu­kort­unum, og síðan sam­starf Goldman Sachs og Apple með Apple greiðslu­kort­unum.

Í þessu felst skref hjá tækniris­unum til að fara inn á fjár­mála­markað, en í sam­starfi við banka. Þetta er meðal ann­ars gert til að tækni­fyr­ir­tækin geti upp­fyllt reglur á fjár­mála­mark­aði þegar kemur að greiðslu­mati í Banda­ríkj­unum (Credit Score System) en aðeins er hægt að veita þeim greiðslu­kort sem stenst það mat.

Þetta er flók­inn heimur, enda eru reglur um greiðslu­mat ekki alltaf sam­bæri­legar milli ríkja innan Banda­ríkja­mark­aðar.

Það sem tækni­fyr­ir­tækin hafa fram yfir banka - ekki síst Amazon - eru dýpri gögn um við­skipta­vini, sem hjálpa til við mat á áhættu við t.d. lána­starf­semi.

Hvað með alþjóðamarkaði?

Tækni­fyr­ir­tæki stóru eru að þessu leyti í ein­stakri stöðu til að fara hratt inn á fjár­málmark­aði, og marka sér stöðu þar í gegnum við­skipta­sam­band við fólk um allan heim. Það sem mun ráða því hvað þetta ger­ist hratt, er hvernig reglu­verkið verður mótað á hverju mark­aðs­svæði fyrir sig.

Til dæmis mun Ísland þurfa að móta sýn á þessi mál, líkt og Már Guð­munds­son, fyrr­ver­andi seðla­banka­stjóri, minnt­ist í lokorðum sínum, þegar hann lét af emb­ætti. Það getur verið stórt og viða­mikið mál fyrir lítið land eins og Ísland, ef greiðslu­miðlun fær­ist að stóru leyti úr landi - og lána­starf­semi jafn­vel líka, líkt og reyndin gæti orðið í gegnum fyr­ir­tæki eins og Amazon.

Tiltölulega ný staða

Á und­an­förnum ára­tug hafa orðið miklar breyt­ingar á mörk­uðum, með auknu vægi tækni­fyr­ir­tækja - einkum þeirra stærstu - í dag­legri starf­semi fjöl­margra fyr­ir­tækja. Þetta hefur meðal ann­ars end­ur­spegl­ast í gíf­ur­legri aukn­ingu á mark­aðsvirði þeirra og tekjum. Sem dæmi er mark­aðsvirði Amazon nú um 13 falt meira en hjá Goldman Sachs, og lík­legt mun­ur­inn auk­ist enn meira á næstu miss­erum, enda fátt sem bendir til ann­ars en að tæknirisarnir stækki áfram hratt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár