Landeigendur fái meiri hvata til endurheimtar vistkerfa

Lofts­lags­breyt­ingar, mengun, ágengar teg­undir, eyð­ing búsvæða og bein nýt­ing manns­ins eru helstu áskor­anir varð­andi hnignun líf­fræði­legrar fjöl­breytni á Íslandi. Neysla er t.d. drif­kraftur fram­leiðslu sem oft leiðir til ósjálf­bærrar nýt­ingar auð­linda.

Líffræðileg fjölbreytni er grunnþáttur í viðhaldi vistkerfa í sjó, á landi, í vatni og lofti.
Líf­fræði­leg fjöl­breytni er grunn­þáttur í við­haldi vist­kerfa í sjó, á landi, í vatni og lofti. Mynd: Hafrannsóknarstofnun

Ísland stendur frammi fyrir sömu áskor­unum varð­andi hnignun líf­fræði­legrar fjöl­breytni og allur heim­ur­inn. Beint og óbeint hafa sam­spil umhverf­is­breyt­inga og nýt­ingar mikil og oft ill­fyr­ir­sjá­an­leg áhrif á líf­ríkið.

Marg­vís­legar ógnir steðja að og brýnt er að efla vernd þeirra vist­kerfa í og við Ísland sem enn má telja heil­leg. Einnig er mik­il­vægt að end­ur­heimta röskuð vist­kerfi. Stjórn­tæki þarf að móta þannig að þau hvetji land­eig­endur til vernd­unar og end­ur­heimtar mik­il­vægra vist­kerfa.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í græn­bók um líf­fræði­lega fjöl­breytni íslenskra vist­kerfa sem unnin var af stýri­hópi skip­uðum af umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­erra. Bókin hefur nú verið birt í sam­ráðs­gátt stjórn­valda. Hún er liður í und­ir­bún­ingi nýrrar stefnu og fram­kvæmda­á­ætl­unar fyrir líf­fræði­lega fjöl­breytni hér á landi en slík stefna, byggð á alþjóð­legum skuld­bind­ingum, var fyrst sam­þykkt í rík­is­stjórn árið 2008.

Hnignun líf­fræði­legrar fjöl­breytni hefur ekki verið mjög áber­andi í umræð­unni um lofts­lags­breyt­ingar og aðgerðir til að stemma stigu við þeim. Hins vegar, segja skýrslu­höf­undar, er ekki hægt að horfa á lofts­lags­mál og líf­fræði­lega fjöl­breytni sem aðskilin mál­efni. „Að vernda og varð­veita líf­fræði­lega fjöl­breytni hlýtur því að vera meg­in­við­fangs­efni í nútíð og fram­tíð.“

Hvað er líffræðileg fjölbreytni?

Líf­fræði­leg fjöl­breytni nær yfir allar teg­undir dýra, plantna, sveppa og ann­arra líf­vera (s.s. bakt­er­íur og veirur) sem finn­ast á jörð­inni, þann breyti­leika sem er milli ein­stak­linga sömu teg­undar og allt erfða­efni þeirra. Líf­fræði­leg fjöl­breytni fjallar einnig um búsvæði allra lif­andi líf­vera, vist­kerfi og vist­gerðir sem þær mynda og sjálf­bæra nýt­ingu þeirra.

Til­gang­ur­inn með verndun líf­fræði­legrar fjöl­breytni er að styrkja og varð­veita til fram­tíðar þær teg­undir sem hafa frá upp­hafi skapað íslenska nátt­úru og þrif­ist hér á landi í árþús­undir og að koma í veg fyrir að teg­undir deyi út af manna­völdum og hverfi um aldur og ævi.

Samn­ingur Sam­ein­uðu þjóð­anna um líf­fræði­lega fjöl­breytni (Convention on Biological Diversity, CBD) var sam­þykktur á heims­ráð­stefnu um umhverfi og þróun í Rio de Janeiro árið 1992. Ísland und­ir­rit­aði samn­ing­inn á ráð­stefn­unni og gekk hann í gildi hér á landi árið 1994.

Sérstaða Íslands

Íslensk vist­kerfi hafa sér­stöðu. Land­fræði­leg lega Íslands á mörkum hlýrra og kaldra haf­svæða skapar ásamt stór­brotnu lands­lagi mót­uðu af jöklum og eld­virkni ólíkar aðstæður líf­heims. Aðstæður á Íslandi eru um margt sér­stakar á heims­vísu og end­ur­spegl­ast það í fjöl­breytni og sam­setn­ingu vist­kerfa, bæði í sjó, á landi og í fersku vatni. Hér hafa því fund­ist vist­kerfi og teg­unda­sam­fé­lög sem eru sér­ís­lensk.

Ákveðin þróun á sér stöðugt stað í nátt­úr­unni en mann­anna verk hafa síð­ustu ára­tugi og aldir verið þar stærsti áhrifa­vald­ur­inn.

Vist­kerfi Íslands eru undir margs konar álagi, allt frá áhrifum af lofts­lags­breyt­ingum til þátta á borð við skóg­rækt með fram­andi teg­undum, útþenslu byggðar, jarð­varma-, vatns- og vind­orku­vera, ferða­mennsku, ýmis­konar meng­unar og land­bún­aðar. Fisk­veiðar og ann­ars konar vinnsla úr auð­lindum hafs, s.s. þör­unga, hefur sín áhrif og þá hefur fisk­eldi vaxið hratt á síð­ustu árum. „Allt hefur þetta áhrif á líf­fræði­lega fjöl­breytni með einum eða öðrum hætti og nokkrir af þessum þáttum geta leitt til ósjálf­bærrar nýt­ingar nátt­úru­auð­linda og minni líf­fræði­legrar fjöl­breytni,“ segir í græn­bók­inni.

Hafið, bláa hafið

Breyt­ingar á útbreiðslu fiski­stofna og komu teg­unda hingað til lands hafa helst verið taldar tengj­ast breyt­ingum í hita­stigi. Mælingar sýna nú einnig að sýru­stig sjávar hefur fallið frá því mæl­ingar hófust. Þetta sýnir að hafið er að súrna og að hraði súrn­unar er meiri en á flestum öðrum haf­svæðum á jörð­inni vegna und­ir­liggj­andi umhverf­is­að­stæðna, segir í græn­bók­inni. „Áhrif þess á líf­ríkið hér við land eru hins vegar lítt þekkt.“

Aukinn áhugi er fyrir vinnslu á þangi og þara. „Í umræðum um slíka nýt­ingu hefur m.a. verið bent á að vist­kerfi í fjörum og grunn­sævi, þar sem sjáv­ar­gróður er ríkj­andi, eru afar mik­il­væg á norð­ur­slóðum,“ stendur í græn­bók­inni. Lífmassi þess­ara vist­kerfa sé hár og þara­skógar mik­il­væg búsvæði fyrir fjöl­margar líf­verur, m.a. upp­eldis- og fæðu­öfl­un­ar­stöðvar nytja­stofna og stofna teg­unda sem Ísland ber m.a. alþjóð­lega ábyrgð á, þ.m.t. sjó­fugla­teg­undum. Þang­fjörur og þara­skógar veita marg­vís­lega vist­kerf­is­þjón­ustu, benda skýrslu­höf­undar á. Þar má m.a. nefna kolefn­is­bind­ingu en þara­skógar binda mikið kolefni.

Fiskeldi hefur auk­ist hratt og áhrif þess gætir á umhverfið og líf­fræði­legan fjöl­breyti­leika, segir í græn­bók­inni. Erfða­blöndun við íslenska laxa­stofna og áhrif laxalúsar á afkomu villtra laxa­stofna eru þættir sem gætu einnig haft veru­leg áhrif. „Athafnir manns­ins hafa skapað marg­vís­legar áskor­anir fyrir líf­ríki í sjó og munu halda áfram að móta vist­kerfi í fyr­ir­sjá­an­legri fram­tíð.“

Benda skýrslu­höf­undar á að heild­stæð vist­gerða­flokkun fyrir vist­gerðir í haf­inu hafi ekki farið fram. Það sé umfangs­mikið verk­efni en aðkallandi.

Beit og birki

Búfjár­beit hefur haft víð­tæk áhrif á vist­kerfi hér á landi. Sums staðar á land­inu, segir í græn­bók­inni, hefur ofbeit átt mik­inn þátt í gróður- og land­eyð­ingu og losun kolefnis út í and­rúms­loftið.

Rifjað er upp að með friðun fyrir búfjár­beit hafi all­mörgum skóg­ar­leifum verið bjargað á fyrri helm­ingi 20. aldar, m.a. Hall­orms­staða­skógi, Vagla­skógi, Þórsmörk og Ásbyrgi. Við þetta hækk­uðu þessir skógar og breidd­ust út innan girð­inga. Útbreiðsla birkis jókst um 13.000 hekt­ara eða 9 pró­sent á ára­bil­inu 1989 til 2014. „Þetta er útbreiðslu­hraði sem nemur að með­al­tali 0,36% á ári sem getur vart talist mik­ill,“ segir í græn­bók­inni. Tækifæri til að auka útbreiðslu birki­skóga á Íslandi séu veru­leg, einkum með það að mark­miði að bæta ástand hnign­aðra vist­kerfa, „en til þess þarf að sam­ræma búskap­ar­hætti í sauð­fjár­rækt og mark­mið um end­ur­heimt skóga“.

Ræktun nytja­skóga byggi á notkun fram­andi teg­unda eins og rússalerkis, sitka­grenis, stafa­f­uru og ala­ska­aspar. Nytja­skógar hafa verið rækt­aðir á 49.000 hekt­urum lands eða tæp­lega 0,5 pró­sent lands­ins.

Skýrslu­höf­undar benda þó einnig á að breyt­ingar á land­notkun hafi ekki ein­göngu leitt til hnign­unar vist­kerfa. Sé litið til baka síðan síð­ast var mótuð stefna um líf­fræði­lega fjöl­breytni þá hafi verið frið­lýst ýmis svæði sem mik­il­væg eru líf­rík­inu. Friðlýst svæði á Íslandi eru nú í kringum 25 þús­und fer­kíló­metrar eða um fjórð­ungur lands­ins. Vernd­ar­svæði í hafi eru hins vegar aðeins um 0,07 pró­sent af efna­hags­lög­sögu Íslands.

Ágengar tegundir þarf að vakta

Með breyttu nátt­úru­fari og auk­inni umferð og inn­flutn­ingi aukast líkur á komu fram­andi líf­vera sem geta náð fót­festu á og við landið. Til að telj­ast ágeng teg­und þarf hún að hafa komið sér það vel fyrir á þessu nýja svæði að hún fer að hafa nei­kvæð áhrif á umhverfi sitt og aðrar líf­verur sem voru þar fyrir.

Tvær teg­undir æðplantna og ein mosa­teg­und hafa verið skil­greindar ágengar á Íslandi: Ala­skalúpína, sem upp­haf­lega var flutt inn og notuð til land­græðslu, skóg­ar­kerf­ill sem var fluttur inn sem garða­planta og í mos­inn hæru­burst sem barst hingað með ferða­mönnum, til dæmis neðan á skóm, og hefur náð fót­festu á jarð­hita­svæðum.

Eitt spen­dýr, mink­ur­inn, hefur verið skil­greint sem ágeng teg­und á Íslandi. Þrjár teg­undir smá­dýra hafa verið skil­greindar sem ágengar; spán­ar­snig­ill, búr­snig­ill og hús­humla.

Samkvæmt nátt­úru­vernd­ar­lögum getur Umhverf­is­stofnun gripið til aðgerða til að koma böndum á og hefta útbreiðslu fram­andi líf­vera eða upp­ræta þær, ef ástæða er til að ætla að þær ógni líf­fræði­legri fjöl­breytni og hafi veru­leg áhrif á líf­ríkið.

„Nauð­syn­legt er að fylgj­ast vel með land­námi og dreif­ingu fram­andi plöntu­teg­unda og koma í veg fyrir að útbreiðsla þeirra valdi ekki óæski­legum breyt­ingum á gróð­ur­fari,“ benda höf­undar græn­bók­ar­innar á.

For­varnir geta skilað hvað mestum árangri í að tak­marka áhrif ágengra fram­andi teg­unda á íslenskt líf­ríki. Þetta er að mati stýri­hóps­ins best gert með úrbótum á reglu­verki, betri stýr­ingu á inn­flutn­ingi og inn­flutn­ings­leiðum fram­andi teg­unda og eft­ir­liti.

Stýri­hóp­ur­inn leggur til að unnið verði áhættu­mat fyrir fram­andi teg­undir sem eru í mik­illi notkun hér á landi.

Áhrif loftslagsbreytinga

Lofts­lags­breyt­ingar, hlýnun og auk­inn styrkur koltví­oxíðs í and­rúms­loft­inu hafa mikil áhrif á lífs­skil­yrði plantna og dýra. Aukinn styrkur CO2 hefur áhrif á fram­leiðni plantna sem lýsir sér m.a. í meiri vexti þeirra. Lofts­lags­breyt­ingar hafa svo áhrif á ýmsa aðra umhverf­is­þætti sem hafa síðan áhrif á vist­kerfi, valda breyt­ingum á búsvæðum plantna, dýra og fjöl­breytni.

Í græn­bók­inni kemur fram að vís­inda­sam­fé­lagið hafi um nokk­urt skeið reynt að greina sam­legð og fórn­ar­skipti (e. trade-off) milli lofts­lags­mála og líf­fræði­legrar fjöl­breytni. Dæmi um slíka sam­legð er þegar aðgerðir til verndar líf­fræði­legri fjöl­breytni vinna á sama tíma gegn lofts­lags­breyt­ingum, t.d. verndun og end­ur­heimt vot­lendis. Dæmi um fórn­ar­skipti er þegar mót­væg­is­að­gerðir gegn lofts­lags­breyt­ingum með því að nota land eða sjó til að binda gróð­ur­húsa­loft­teg­undir leiða til hnign­unar líf­fræði­legrar fjöl­breytni. „Þetta er eitt af brýnum við­fangs­efnum við mótun stefnu um líf­fræði­lega fjöl­breytni,“ segja skýrslu­höf­undar.

Áhersla á bindingu í aðgerðaáætlun

Aðgerða­á­ætlun Íslands í lofts­lags­málum er ætlað að stuðla að sam­drætti í losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda og leggja grunn­inn að mark­miði stjórn­valda um kolefn­is­hlut­leysi Íslands árið 2040. Ör sam­dráttur í losun þyrfti að eiga sér stað til að ná því mark­miði og í áætl­un­inni eru kynntar stór­auknar aðgerðir til að binda kolefni úr and­rúms­lofti og stöðva losun frá vist­kerfum á landi. „Af þeim aðgerðum sem boð­aðar eru í aðgerða­á­ætl­un­inni, eru það ekki síst aðgerðir til að binda kolefni úr and­rúms­lofti og til að stöðva losun frá landi sem geta haft ýmis áhrif á líf­ríki,“ segja höf­undar græn­bók­ar­innar. Í áætl­un­inni er gert ráð fyrir umtals­verðri aukn­ingu í skóg­rækt, land­græðslu, sem og vernd og end­ur­heimt vot­lendis.

Meira gróðursett af innfluttum tegundum

Samkvæmt stöðu­skýrslu áætl­un­ar­innar sem birt var í fyrra var umfang nýs skóg­lendis, þ.e. lands sem skóg­rækt var hafin á, 1.833 hekt­arar á árinu 2020 eða um 50 pró­sent meira en árið 2018. Á þessu tíma­bili jókst gróð­ur­setn­ing birkis eða ilm­bjarkar úr um 800 þús­und plöntum í 1.600 þús­und. Gróð­ur­setn­ing inn­fluttra trjá­teg­unda jókst á sama ára­bili um 25 pró­sent, úr um 2,3 í um 2,8 millj­ónir plantna. Notkun á stafa­f­uru hefur auk­ist tals­vert á þessum tíma en teg­undin dreifir sér í íslenskri nátt­úru, benda skýrslu­höf­undar á.

Votlendi um 20 prósent af grónu landi

Um þriðj­ungur Íslands er þak­inn sam­felldum gróðri, þar af um 1,2 pró­sent af birki­skógi eða kjarri. Tveir þriðju hlutar lands­ins eru lítt eða ógrónir sandar, melar, vötn og jöklar. Votlendi þekur um 9.000 fer­kíló­metra eða um 20 pró­sent af grónu flat­ar­máli. Ætla má að um 50 pró­sent þess hafi verið raskað með fram­ræslu.

End­ur­heimt vot­lendis er ekki veru­leg að umfangi en hefur þó auk­ist á síð­ustu árum. Árið 2020 var unnið að end­ur­heimt vot­lendis á 264 hekt­urum en 24 hekt­urum árið 2018. „Ekki liggur fyrir ítar­leg áætlun um hvar verður ráð­ist í end­ur­heimt vot­lendis á næstu árum og hefur fram­boð á landi til end­ur­heimtar verið sá þáttur sem tak­markað hefur umfang end­ur­heimtar vot­lendis.“

Á land­inu hafa 64 vist­gerðir verið skil­greindar. Vist­gerðir hafa mis­hátt vernd­ar­gildi og „mik­il­vægt er að standa vörð um sjald­gæfar og sér­stæðar vist­gerðir einkum þær sem eru mik­il­væg búsvæði og veita fjöl­breytta vist­kerfa­þjón­ustu t.d. gras­lendi, vot­lendi og skóg­lendi sem og vist­gerðir sem eru ein­kenn­andi fyrir íslenska nátt­úru t.d. jarð­hita­vist­gerðir,“ segir í skýrsl­unni.

„Vinna þarf áfram að full­nægj­andi verndun svæða sem eru mik­il­væg til að við­halda líf­fræði­legri fjöl­breytni, búsvæðum og vist­gerðum innan nátt­úru­legra útbreiðslu­svæða þeirra með þeim teg­undum og vist­fræði­legu ferlum sem ein­kenna hverja vist­gerð,“ segir í lokakafla græn­bók­ar­innar. Þetta eigi við á landi, í ferskvatni og í hafi. Leggja þurfi áherslu á að vernda svæði þar sem við­kvæmar teg­undir og vist­kerfi finn­ast.

Græn­bók­ar­hóp­ur­inn segir að stefna um land­notkun og land­nýt­ingu þurfi að stuðla að verndun og end­ur­heimt teg­unda og vist­kerfa. Þetta eigi við um stefnu í skipu­lags­á­ætl­unum og stefnu hvað varðar land­búnað og alla aðra land­nýt­ingu. Samhæfa þurfi þetta tvennt með það fyrir augum að nýta betur opin­bert fé „en við­ur­kenna jafn­framt að bændur og aðrir umsjón­ar­að­ilar lands geti haft mik­il­vægt hlut­verk í þágu end­ur­heimtar vist­kerfa og líf­fræði­legrar fjöl­breytni“.

Skoða ætti sér­stak­lega hvernig hvata­kerfi geti stuðlað að auk­inni þátt­töku. Stjórn­tæki þurfi að móta þannig að þau hvetji land­eig­endur til vernd­unar og end­ur­heimtar mik­il­vægra vist­kerfa. Með því að vinna að end­ur­heimt vist­kerfa á stórum sam­felldum svæðum og ýta undir nátt­úru­lega ferla, s.s. sjálfs­án­ingu, verði end­ur­heimt­ar­verk­efni mark­viss­ari og fjár­munir nýt­ast betur. Þá benda skýrslu­höf­undar á að skoða þurfi mögu­leika á end­ur­heimt vist­kerfa í sjó og á strand­svæðum, hvort sem það yrði gert með friðun til­tek­inna svæða fyrir botn­veiðum og fisk­eldi eða beinum aðgerðum, eins og þver­unum fjarða eða land­fyll­ingum. Þetta hafi enn sem komið er lítið verið skoðað hér við land.

„Vegna vax­andi fisk­eldis í sjó, áforma um upp­bygg­ingu vind­orku­vera á hafi, áforma um fjölgun þver­ana fjarða með vegum, ásóknar í vinnslu þara, kór­al­þör­unga og efn­is­töku á hafs­botni reynir enn frekar á að vel sé staðið að stefnu­mótun og skipu­lagi, að aflað sé upp­lýs­inga um vist­kerfi í hafi og að lands­skipu­lags­stefna leggi skýrar línur hvernig staðið skuli að verki,“ segja skýrslu­höf­undar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár