Árangri í sóttvarnamálum verður „ekki stefnt í hættu“ við opnun landamæra

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra ávarp­aði þjóð­ina í kvöld vegna til­slak­ana á sam­komu­banni og lagði áherslu á að allir yrðu að passa sig að fara ekki of geyst af stað, til þess að koma í veg fyrir að byrja þyrfti bar­átt­una upp á nýtt.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Skjáskot úr útsendingu RÚV

„Á þessum ótrú­legu óvissu­tímum neyð­ast allar þjóðir heims og ein­stak­lingar til að gera áætl­anir fram í tím­ann án þess að vita í raun hvernig sá tími verður,“ sagði Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra í ávarpi sínu til þjóð­ar­innar sem flutt var í Rík­is­út­varp­inu í kvöld.

Í ávarp­inu, sem flutt var af því til­efni að á morgun verður slakað ögn á sam­komu­bann­inu sem verið hefur í gildi síðan um miðjan mars, sagði Katrín meðal ann­ars að góðum árangri í sótt­varna­málum hér­lendis yrði ekki stefnt í hættu við opnun landamæra Íslands, en eins og staðan er núna og fram til 15. maí þurfa allir sem til lands­ins koma að fara í sótt­kví.

For­sæt­is­ráð­herra sagði að við virt­umst vera komin með yfir­hönd­ina í bar­átt­unni gegn veirunni, en björn­inn væri þó ekki unn­inn. 

„Ef við förum of geyst, þá eru líkur á því að bakslag verði og þá þurfum við að byrja bar­átt­una upp á nýtt. Slíkt hefði skelfi­legar afleið­ingar fyrir efna­hags­líf okkar og þjóð­lífið allt og það er undir okkur sjálfum komið að gæta þess að slíkt ger­ist ekki,“ sagði for­sæt­is­ráð­herra.

Hún ræddi um efna­hags­leg áhrif veirunnar, sagði þau djúp og að ófyr­ir­séð væri hversu langvar­andi þau yrðu.

„Við erum stödd í þoku og hún er myrk en við vitum samt að þoku léttir að lokum. Ekki er ósenni­legt að ferða­þjón­ustan muni taka breyt­ingum en hitt mun ekki breyt­ast að hingað vill fólk koma til að upp­lifa okkar stór­brotnu nátt­úru,“ sagði Katrín og bætti við stjórn­völd teldu að jákvæð umfjöllun um Ísland á alþjóða­vísu hefði sín áhrif og að sú þekk­ing sem orðið hefur til í ferða­þjón­ustu myndi áfram nýt­ast.

En áhrif far­ald­urs­ins teygja sig til fleiri greina en ein­ungis ferða­þjón­ust­unnar. Katrín fjall­aði um stöðu þeirra þús­unda Íslend­inga sem nýverið hafa misst vinn­una og sagði að fjölga þyrfti stoð­unum undir íslenskt efna­hags­líf.

„Það veit sá einn sem reynt hefur að vera atvinnu­laus hvað það er erfitt og lam­andi. Það er ekki ein­göngu efna­hags­legt áfall, heldur getur það líka verið sál­rænt og lík­am­legt. Ábyrgð okkar stjórn­valda er að styðja enn betur við fólk í erf­iðum aðstæðum og það munum við gera. Því að nú er tím­inn til að hugsa vel hvert um annað,“ sagði for­sæt­is­ráð­herra.

Hún bætti við að leið­ar­ljósið framundan yrði að halda uppi atvinnustigi og tryggja afkomu og rétt­indi launa­fólks, auk þess að skapa ný störf, auka verð­mæta­sköpun og fram­boð á menntun og þjálfun.

Ekki tíminn til að ala á sundrungu á milli ríkja

Katrín sagði að margt sem hefði gerst und­an­farnar vikur og mán­uði hefði komið óþægi­lega á óvart og nefndi í því sam­hengi lokuð landa­mæri á milli vina­þjóða og hat­ramma sam­keppni ríkja heims um búnað og tæki fyrir heil­brigð­is­þjón­ustu. Hún sagði að þetta hefði þó breyst „þegar fyrsta fát­inu lauk“ og að und­an­farið hefði hún fundið fyrir sterkum tengslum á milli Norð­ur­landa og ann­arra Evr­ópu­þjóða.

„Þjóðir heims standa frammi fyrir sam­eig­in­legum óvini sem ekki verður sigr­aður nema í krafti sam­vinnu, vís­inda og stað­festu. Í bar­áttu mann­kyns við COVID-19 er alþjóð­legt sam­starf for­senda þess að sigur vinn­ist. Nú er því ekki tím­inn til að grafa undan sam­starfi ríkja innan Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­un­ar­innar eða með nokkrum öðrum hætti ala á sundr­ungu eða tor­tryggni ríkja á milli,“ sagði Katrín, og bætti við að far­ald­ur­inn hefði minnt okkur áþreif­an­lega á gildi vís­inda og þekk­ingar og fag­legra og fum­lausra vinnu­bragða.

„Hér heima hafa stjórn­völd, vís­inda­menn og við­bragðs­að­ilar unnið sem einn maður og af því er ég stolt. Við höfum farið þá leið að beita hörðum sótt­varna­ráð­stöf­unum að ráði okkar heil­brigð­is­vís­inda­manna sem hafa verið í takt við ráð­legg­ingar Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­un­ar­innar. Þær hafa reynst okkur vel,“ sagði Katrín.

Áföll sem þetta sýni úr hverju fólk er gert

For­sæt­is­ráð­herra sagði engan vita hvernig heim­ur­inn myndi breyt­ast eftir kór­ónu­veiruna. „En sumt mun ekki breyt­ast. Við munum áfram vera mann­eskjur, við munum áfram þrá og elska, muna og sakna, gleðj­ast og hryggj­ast. Áföll eins og þetta eru stundum eins og speg­ill sem sýnir úr hvaða efni fólk er gert og hvað skiptir máli í líf­inu,“ sagði Katrín og bætti við að und­an­farnar vikur hefðu reynt á þol­rifin og framundan væru áfram strembnir tímar.

Hún hrós­aði við­brögðum fjöl­margra aðila und­an­farnar vikur og sagði sam­fé­lagið hafa gert margt til þess að lyfta okkur upp í þung­bærum og erf­iðum aðstæðum und­an­far­inna vikna.

Að lokum flutti Katrín þjóð­inni skila­boð um vik­urnar framundan:

„Frá og með morg­un­deg­inum hefjum við veg­ferð okkar, skref fyrir skref í átt að bjart­ari dögum. Við skulum njóta þess og muna að ástæðan fyrir því að hægt er að taka þetta skref í að slaka á sam­komu­bann­inu er sú að við höfum staðið okkur frá­bær­lega vel og náð tökum á útbreiðslu veirunnar. En við skulum líka muna að far­ald­ur­inn geisar enn um heim­inn og nú tekur við erfitt upp­bygg­ing­ar­starf sem mun reyna á þol­in­mæð­ina. Ef við fögnum of snemma og missum ein­beit­ing­una þá getur farið illa. Verk­efn­inu er ekki lokið, og við verðum að vanda okkur.

Við verðum að vanda okkur fyrir börnin okkar, fyrir ömmur og afa, fyrir alla ást­vini. Af því að mark­miðið er að við gerum þetta saman og skiljum engan eftir þegar sam­fé­lagið opn­ast aftur. Við ætlum öll, ungir sem gamlir, veikir sem hraustir að geta notið sól­ar­innar, sam­vista og alls þess sem landið okkar góða hefur upp á að bjóða. Við fórum saman í þessar aðgerðir og við ætlum að koma út úr þeim saman.

Og ef okkur tekst vel upp eru allar for­sendur til þess að bat­inn verði hraður. Ísland verður áfram land tæki­fær­anna, land með öfl­ugar grunn­stoðir, stór­brotna nátt­úru og ein­staka menn­ingu en fyrst og fremst kær­leiks­ríkt fólk sem getur allt sem það vill.

Pín­ings­vet­ur­inn er að baki, sum­arið heilsar okkur, lóan er komin og það á að hlýna í vik­unni. Við erum hér öll saman á eyj­unni okkar og finnum hvað lífið er dýr­mætt og finnum að við eigum öfl­ugt, frjálst og opið umhyggju­sam­fé­lag. Það er ekki sjálf­gefið og það er þess virði að berj­ast fyrir. Það höfum við þegar sýnt og megum vita að það getum við saman,“ sagði for­sæt­is­ráð­herra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár