12 þúsund höfðu bókað sýnatöku klukkan 9 í morgun

Íslensk erfða­grein­ing hóf skimun fyrir nýju kór­óna­veirunni klukkan tíu í morgun. Vonast er til þess að hægt verði að taka um þús­und sýni á dag.

Skimun Íslenskrar erfðagreiningar er hafin.
Skimun Íslenskrar erfða­grein­ingar er hafin. Mynd: Íslensk erfðagreining

Þúsundir Íslend­inga bók­uðu tíma í skimun eftir COVID-19 sjúk­dómnum hjá Íslenskri erfða­grein­ingu eftir að opnað var fyrir bók­anir í gær­kvöldi. Fljót­lega þurfti að bæta við tímum vegna mik­illar eft­ir­spurnar.

Skimanir hófust í Turninum, Smára­torgi 3 í Kópavogi klukkan 10 æu dag. Fólki sem á bók­aðan tíma er bent á að nota inn­gang á fyrstu hæð en þar verður fyrir starfs­maður sem tekur á móti þeim.

Nýja kór­óna­veiran sem veldur sjúk­dóm­inum COVID-19 dreif­ist nú hratt um heim­inn og hefur sett venju­bundið líf úr skorðum. Mikill meiri­hluti þeirra sem smit­ast verða ekki alvar­lega veikir. Flestir sem koma í skimun hafa aldrei fundið fyrir ein­kennum og eru því lík­lega ekki smit­andi. Það sama á við alla starfs­menn í hús­inu, hvort sem þeir starfa við skimanir eða ekki. Það er því ekki meiri hætta á ferðum í hús­inu en ann­ars staðar í borg­inni þar sem fólk kemur saman, segir í til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu.

„Um leið og þessi mikla þátt­taka er ánægju­leg er ljóst að hún veldur álagi á það starfs­fólk sem fyrir er í hús­inu sem teng­ist ekki Þjón­ustu­mið­stöð rann­sókna­verk­efna þar sem skimanir fara fram,“ segir í frétta­til­kynn­ingu frá Íslenskri erfða­grein­ingu. „Það er einkum vegna auk­innar umferðar um húsið þessa dag­ana. Fólk á þakk­læti skilið fyrir skiln­ing og þol­in­mæði en bar­áttan við COVID-19 er sam­fé­lags­legt verk­efni og á ábyrgð okkar allra að vel tak­ist til.“

Hægt er að panta skimun á vef­síð­unni: bokun.rannsokn.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár