Samfylkingin vill að Alþingi komi saman og styrki sóttvarnalög

Formaður Sam­fylk­ing­ar­innar hefur óskað eftir því að boðað verði til auka­þing­fundar á morgun til þess að gera breyt­ingar á sótt­varna­lögum, sem renna myndum laga­stoðum undir þær aðgerðir sem sótt­varna­læknir hefur lagt til á landa­mær­unum.

Logi Einarsson formaður Samfylkingar hefur óskað eftir því að þing komi saman á morgun til að gera breytingar á sóttvarnalögum.
Logi Ein­ars­son for­maður Sam­fylk­ingar hefur óskað eftir því að þing komi saman á morgun til að gera breyt­ingar á sótt­varna­lögum. Mynd: Aðsend

Logi Ein­ars­son for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar hefur óskað eftir því við þing­menn og for­seta Alþingis að Alþingi komi saman á morgun, föstu­dag, til þess að gera breyt­ingar á sótt­varn­ar­lögum. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá þing­flokki Sam­fylk­ingar.[links]

Helga Vala Helga­dóttir for­maður vel­ferð­ar­nefndar Alþingis lagði til á fundi nefnd­ar­innar í dag nefndin myndi í sam­ein­ingu leggja fram frum­varp til þess að skjóta styrk­ari stoðum undir sótt­varna­lögin, sem eins og fram hefur komið und­an­farna daga virð­ast ekki veita laga­stoð fyrir þeim aðgerðum sem Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir telur brýnt að ráð­ast í á landa­mærum vegna nýs og meira smit­andi afbrigðis kór­ónu­veirunnar.

Ekki reynd­ist meiri­hluti fyrir til­lögu Helgu Völu á fundi nefnd­ar­innar í dag og hyggst Sam­fylk­ingin því leggja fram laga­frum­varp um málið og óskar eftir að þing komi saman á morgun, sem áður segir.

Í til­kynn­ingu þing­flokks Sam­fylk­ingar segir að nauð­syn­legar laga­breyt­ingar ætti að vera hægt að vinna hratt og örugg­lega þvert á flokka.

„Eins og fram hefur komið virð­ist vafi um laga­heim­ildir vera ástæðan fyrir því að rík­is­stjórnin hefur ekki farið að nýjum til­lögum sótt­varn­ar­læknis um skimun og sótt­kví á landa­mærum. Nú þarf Alþingi að rísa undir ábyrgð og tryggja að hægt sé að fara eftir til­lögum sótt­varn­ar­læknis sem allra fyrst,“ segir í til­kynn­ingu frá þing­flokki Sam­fylk­ing­ar­innar.

Sóttvarnalæknir gestur á fundi nefndarinnar í dag

Frumvarp til nýrra sótt­varna­laga var lagt fram á Alþingi í nóv­em­ber­mán­uði og hefur verið til með­ferðar í vel­ferð­ar­nefnd síðan þá. Helga Vala segir í sam­tali við Kjarnann að mikil vinna sé enn eftir í starfi nefnd­ar­innar við frum­varpið í heild sinni og taka þurfi afstöðu til ótal álita­efna.

Þó væri hægt væri að gera nauð­syn­legar laga­breyt­ingar nú til þess að skjóta laga­legum stoðum undir þær aðgerðir sem sótt­varna­læknir hefur sagt brýnt að ráð­ast í.

Í sam­tali við blaða­mann segir hún að Þórólfur hafi verið gestur á fundi vel­ferð­ar­nefndar í dag og lýst stöð­unni á landa­mærum bein­línis sem „tif­andi tíma­sprengju“, vegna hins svo­kall­aða breska afbrigðis veirunnar, B117, sem er meira smit­andi en önnur afbrigði.

Þórólfur beindi því til Svan­dísar Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra í minn­is­blaði 6. jan­úar að gripið yrði til hertra aðgerða á landa­mærum „eins fljótt og auðið er“ til að lág­marka hætt­una á því að „breska afbrigðið“ næði fót­festu hér á landi.

Annars vegar lagði Þórólfur til að allir yrðu skyld­aðir í tvær skimanir með 5 daga sótt­kví á milli. 14 daga sótt­kví yrði ekki lengur mögu­leg. Hins vegar lagði Þórólfur til að þeim sem fara í 14 daga sótt­kví yrði gert að vera í sótt­kví í far­sótt­ar­húsi (eða öðru opin­beru hús­næði) með eða án kostn­aðar, og fylgst yrði náið með því að reglum væri fylgt.

Þessar leiðir virð­ast ekki færar, sam­kvæmt núver­andi sótt­varna­lögum. Þórólfur hefur í ljósi þessa viðrað þá hug­mynd að allir sem hingað til lands komi þurfi að fram­vísa nei­kvæðu PCR-prófi, sem megi að hámarki vera 48 klukku­stunda gam­alt. Síðan þyrfti fólk að auki að velja um skimun á landa­mærum eða 14 daga sótt­kví, eins og hægt er að gera í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár