Allt að tíu prósent farþega í einni flugvél smitaðir

Sótt­varna­læknir leggur til að allir sem hingað koma fram­vísi nei­kvæðu COVID-prófi. Þetta er enn einn val­mögu­leik­inn sem hann setur í hendur stjórn­valda eftir að ljóst varð að laga­stoð vantar til að afnema mögu­leik­ann á sótt­kví í stað skimunar.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Lögreglan

Alls hafa 37 greinst með hið breska afbrigði veirunnar, flestir á landa­mær­unum en fjórir inn­an­lands. Allir voru þeir í tengslum við þá sem greindust á landa­mær­unum en frek­ari útbreiðsla út frá þessum hópi hefur ekki orðið. Í gær greindust fjórir með kór­ónu­veiruna inn­an­lands og jafn­margir á landa­mær­unum.

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir telur því stöð­una nokkuð góða inn­an­lands en leggur áherslu á mik­il­vægi þess að allir haldi vöku sinni. Það sem enn veldur áhyggjum er hversu margir eru að grein­ast með virk smit á landa­mær­unum. Þó að aðgerðir á landa­mærum, tvö­föld skimun með sótt­kví á milli, hafi gef­ist vel til þessa telur Þórólfur að í ljósi auk­innar útbreiðslu erlendis og sér­stak­lega vegna mik­illar útbreiðslu hins bráðsmit­andi breska afbrigðis sé hætta á því að smit ber­ist inn í landið og út í sam­fé­lagið. Nefndi Þórólfur sem dæmi að fyrir nokkrum vikum hafi virk smit meðal far­þega verið vel undir einu pró­senti en nú er hlut­fallið komið yfir eitt pró­sent og í sumum vélum hefur allt upp í tíu pró­sent far­þega reynst smit­aður. „Og því ljóst að við þurfum að bregð­ast við,“ sagði Þórólfur á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag.

Hann lagði því til við heil­brigð­is­ráð­herra 6. jan­úar að mögu­leiki á fjórtán daga sótt­kví yrði afnumið og til vara að þeir sem myndu velja þann kost frekar en skimun myndu dvelja í far­sótta­húsi þar sem hægt væri að hafa eft­ir­lit með því.

Ráðu­neytið hafi hins vegar kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að vafi leiki á laga­stoð fyrir báðum þessum úrræðum. Þórólfur sendi því nýjar til­lögur til ráð­herra í gær um að allir þeir sem hingað ferð­ast, nema börn fædd árið 2005 eða síðar og þeir sem þegar hafa fengið COVID-19, fram­vísi nýju (ekki eldra en 48 klukku­stunda) nei­kvæðu COVID-prófi við upp­haf ferðar til lands­ins og aftur við komu hingað. Áfram verði þó allir að velja á milli 14 daga sótt­kvíar eða tvö­faldrar skimunar.

Enn ein leiðin lögð til

„Ég get ekki lagt dóm á hvaða leið skilar mestu,“ svar­aði Þórólfur spurður um hvort þessi leið væri sam­bæri­leg við þá sem hann lagði fyrst til. „Við verðum að tryggja það að smit leki ekki fram hjá okkur á ein­hver máta og þetta er leið til þess fyrst að hin leiðin var ekki fær.“

Þó að til­slak­anir inn­an­lands hafi tekið gildi í gær biðl­aði Þórólfur til almenn­ings að halda áfram að virða grunn­sótt­varn­ar­reglur sem allir eiga nú að þekkja. „Nú er ekki tími til að slaka á og sleppa fram af sér beisl­inu. Við verðum að halda vöku okkar þar til við höfum náð betri tökum á og útbreidd­ari bólu­setn­ingu.“

Í næstu viku koma 3.000 skammtar til við­bótar af Pfizer-BioNtech bólu­efn­inu til lands­ins. Þeir verða not­aðir til að bólu­setja eldra fólk. Í þeirri viku stendur einnig til að þeir sem þegar hafa fengið fyrri sprautu af því efni fái þá síð­ari. „Ég vil biðla til allra að sýna bið­lund,“ sagði Þórólfur. „Það er ljóst að það eru margir sem vilja vera framar í röð­inni og telja á sig hallað. En þetta tekur tíma.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár