Kári sáttur með árangurinn og skrifar gagnrýni Sjálfstæðismanna á hvatvísi

Yfir 36.000 manns hafa skrifað undir und­ir­skrifta­söfnun Kára Stef­áns­sonar um end­ur­reisn heil­brigð­is­kerf­is­ins. Kári gefur lítið fyrir gagn­rýni Sjálf­stæð­is­manna á söfn­un­ina og skrifar ummæli þeirra á hvat­vísi.

Meira en 36.000 manns hafa sett nafn sitt við und­ir­skrift­ar­söfnun Kára Stef­áns­sonar, for­stjóra Íslenskrar erfða­grein­ingar, um end­ur­reisn heil­brigð­is­kerf­is­ins. Söfnunin hefur verið aðgengi­leg á net­inu í rúma tvo sól­ar­hringa, eða síðan um miðjan dag á föstu­dag.

Kári er ánægður með fjöld­ann.

„Þetta er býsna gott á ekki lengri tíma. Ég væri ekk­ert hissa á því að við værum komin í 50 þús­und um miðja vik­una.” segir hann í sam­tali við Kjarnann. „Því ég held að þetta sé almennt það sem fólk vill. Gera menn sér virki­lega ekki grein fyrir því að við erum í raun að fall­ast á að fólk þjá­ist meira hér en ann­ars staðar með því að fjár­magna ekki heil­brigð­is­kerfið eins og nauð­syn­legt er?”

Sjálfstæðismenn gagnrýna Kára

Þingmenn Sjálf­stæð­is­flokks, þeir Jón Gunn­ars­son og Brynjar Níelsson, hafa gagn­rýnt Kára fyrir und­ir­skrift­ar­söfn­un­ina og farið fram á að hann útskýri hvar eigi að skera niður á móti ef 11 pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu eigi að fara inn í rekstur heil­brigð­is­kerf­is­ins, en ekki 8,7 pró­sent eins og nú er.

Kári gefur lítið fyrir þessa gagn­rýni.

„Heil­brigð­is­kerfið er það kerfi sem við notum til að hlúa að þeim veiku í okkar sam­fé­lagi. Og með því að fjár­magna það eins og við höfum verið að gera erum við að fall­ast á að lasnir og meiddir eigi að þjást meira en nauð­syn­legt er,” segir hann. „Mín til­laga er sú að fjár­magna heil­brigð­is­kerfið fyrst, áður en við förum að skipta kök­unni á milli ann­arra mála­flokka. Þessir tveir þing­menn virð­ast vera hrædd­ari við skatta­hækk­anir en þján­ingar og dauða.”

Kári skrifar ummæli Jóns og Brynjars á hvat­vísi og von­ast til þess að ummæli þeirra hafi ekki unnið flokki þeirra of miklu tjóni. Hann ætlar að svara gagn­rýni þeirra skrif­lega á Facebook í kvöld.

Und­ir­skrift­ar­safn­anir hafa orðið æ algeng­ari hér á landi und­an­farin ár, sér­stak­lega eftir efna­hags­hrunið með til­komu nets­ins og sam­fé­lags­miðla. End­ur­reisn Kára Stef­áns­sonar er sú fyrsta á þessu ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár