Breyttur heimur blasir við: Eftirsjár vart í Þýskalandi

„Ég er svo reið út í okkur,“ segir fyrr­ver­andi varn­ar­mála­ráð­herra Þýska­lands, gagn­rýnin á lin­kind Þjóð­verja og ann­arra Evr­ópu­ríkja gagn­vart Rússum. Utan­rík­is­ráð­herra lands­ins segir Pútín að hann muni ekki ná að drepa drauma Úkra­ínu­manna.

Frá mótmælum gagnvart aðgerðum Rússa í Berlín í dag.
Frá mót­mælum gagn­vart aðgerðum Rússa í Berlín í dag. Mynd: EPA

Með inn­rás og sprengju­árásum Rúss­lands í Úkraínu er veru­leiki Evr­ópu­manna breyttur. Í morgun hefur stjórn­mála­fólk álf­unnar brugð­ist við þeirri stöðu sem upp er komin með yfir­lýs­ingum af ýmsu tagi.[links]

Í Þýska­landi, helsta áhrifa­ríki álf­unnar, hafa sumar yfir­lýs­ingar morg­uns­ins borið vott um eft­ir­sjá gagn­vart því að hafa gert Rússum mögu­legt að kom­ast í þá stöðu að geta leyft sér annað og eins fram­ferði og nú á sér stað í Úkraínu.

Þjóð­verjar heita því nú að beita Rússa hörðu, en áður en til inn­rás­ar­innar í nótt kom hafði Olaf Scholz kansl­ari áður boðað að áform um að gang­setja Nord Stream 2-gasleiðsl­una um Eystra­salt yrðu sett á hill­una um ein­hvern tíma.

Annalena Baerbock, utan­rík­is­ráð­herra Þýska­lands og annar for­manna Græn­ingja, sagði í yfir­lýs­ingu í morgun að með hern­að­ar­að­gerðum gegn Úkraínu væri rúss­neska stjórnin að brjóta æðstu regl­urnar í skipan alþjóða­mála, fyrir allra augum. Hún segir Úkra­ínu­menn ekk­ert hafa gert til þess að eiga vænt­an­legar blóðsút­hell­ingar skilið.

„Þetta stríð er hannað til þess að að eyði­leggja einn hlut: og það eru vonir íbúa Úkraínu. Pútín for­seti, þú munt aldrei ná að eyði­leggja löngun þeirra eftir lýð­ræði og friði,“ sagði í yfir­lýs­ingu Baerbock, sem hét því að Þýska­land myndi ásamt banda­mönnum í Atl­ants­hafs­banda­lag­inu og Evr­ópu­sam­band­inu beita Rússland „gríð­ar­legum efna­hags­þving­unum.“

„Ef við beitum okkur ekki af ákveðni núna, munum við þurfa að greiða það háu verði í fram­tíð­inni,“ sagði þýski utan­rík­is­ráð­herr­ann.

Síðasti varnarmálaráðherra full eftirsjár

Sem áður segir heyr­ast einnig frá Þýska­landi sjálfs­á­sak­anir og eft­ir­sjá, yfir því að hafa ekki beitt ákveðni fyrr. Stefna þýskra stjórn­valda gagn­vart Rúss­landi á umliðnum árum auk þess hlotið nokkra gagn­rýni í fjöl­miðlum.

[adspot]

Annegret Kramp-Kar­ren­bauer, sem var varn­ar­mála­ráð­herra frá 2019 til 2021 og leið­togi Kristi­lega demókra­ta­flokks­ins frá 2018 til 2021, sagði í merki­legri færslu á Twitter í morgun að hún væri „reið út í okkur“ – þá sem haldið hafa á stjórn­ar­taumunum í Þýska­landi og ef til vill í Evrópu í víð­ari skiln­ingi á und­an­förnum árum.

„Ég er svo reið út í okkur vegna sögu­legra mis­taka. Eftir Georgíu, Krím og Donbass, höfum við ekki und­ir­búið neitt sem gæti mögu­lega haft fæl­ing­ar­mátt fyrir Pútín,“ sagði ráð­herr­ann fyrr­ver­andi.

Hún segir jafn­framt að þær lex­íur sem þaul­setnir kansl­arar Þýska­lands á seinni hluta 20. aldar, Helmut Schmidt og Helmut Kohl, hafi skilið eftir sig, virð­ist hafa gleymst. Þær voru, segir hún, að samn­inga­við­ræður ættu alltaf að vera fyrsta val, en „við þyrftum að vera hern­að­ar­lega nógu sterk til þess að það að setj­ast ekki að samn­inga­borð­inu sé ekki mögu­leiki fyrir gagn­að­il­ann.“

Þýskaland hafi leyft Pútín að njóta vafans of lengi

Í evr­ópsku útgáfu Politico birt­ist í morgun nokkuð hvöss grein­ing á sam­skiptum Þýska­lands og Rúss­lands á und­an­förnum árum. Þar segir meðal ann­ars frá því í upp­hafs­orð­unum að á sama tíma og Rússar háðu stríð gegn Georgíu árið 2008 hafi þýskt stjórn­mála- og við­skipta­fólk mætt til glæsi­legrar veislu í sendi­ráði Rússa í Berlín og þegið þar kav­íar og kampa­vín.

[adspot]

Gefið er í skyn að af hálfu þeirra sem réðu för hafi vilj­inn til þess að eiga við­skipti við Rússa hafi ráðið of miklu í sam­skiptum ríkj­anna og að þrátt fyrir að önnur ríki eins og Banda­ríkin og Bretland hafi van­metið hætt­una af Pútín, eða verið of upp­tekin við að laða að fjár­fest­ingu rúss­neskra ólíg­arka, hafi ekk­ert ríki gert jafn mikið og Þýska­land til að fyr­ir­gefa fram­göngu Rússa.

Í grein­inni, sem Matthew Karnitschnig, yfir­frétta­rit­ari Politico í Evrópu ritar, segir að ákvörðun Þjóð­verja um að setja Nord Stream 2 á hill­una hafi verið „of lítið, of seint“, eftir ára­langa und­an­láts­semi þýskra stjórn­valda gagn­vart yfir­gangi Rússa í Georgíu, á Krím og víðar.

Hjálpa Pólverjum að taka við flóttafólki

Þýsk stjórn­völd hétu því í morgun að hjálpa löndum í Austur-Evrópu, sér­stak­lega Póllandi, að taka við flótta­fólki sem streymt hefur út úr Úkraínu í dag.

Samkvæmt því sem segir í frétt Reuters af þessu áætla þýskir fjöl­miðlar að á milli 200 þús­und og milljón flótta­menn frá Úkraínu muni flýja yfir til ríkja Evr­ópu­sam­bands­ins ef alls­herj­ar­stríð brýst út í Úkraínu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár