Mannfall hafið – „Stríðsglæpamenn fara beint til helvítis, sendiherra“

Fólk hljóp um götur í örvænt­ingu er árásir hófust í Úkraínu í morgun. Mannfall hefur þegar orðið og rúss­neskir her­trukkar eru komnir yfir landa­mærin. Árásir eru gerðar úr lofti og fólk reynir að flýja.

Gríðarlega langar bílalestir í Kænugarði. Aðeins í aðra áttina. Út úr bænum.
Gríð­ar­lega langar bíla­lestir í Kænu­garði. Aðeins í aðra átt­ina. Út úr bænum. Mynd: Skjáskot/NYT

„Ég vakn­aði klukkan fimm í morgun við drunur. Ég hljóp út á svalir og átt­aði mig á því að þetta voru ekki flug­eldar – þetta voru sprengjur.“

Sasha býr í borg­inni Kharkiv í norð­aust­ur­hluta Úkraínu. Það sem hún vakn­aði við í morgun var upp­hafið að árás her­liðs Rússa inn í landið. Sprengjum tók að rigna á sama tíma og Vladimír Pútín, for­seti Rúss­lands, flutti sjón­varps­ávarp þar sem hann hafði í hót­unum við alla þá sem myndu skipta sér af aðgerðum hans. Hann væri að bjarga Austur-Úkraínu undan ógn­ar­stjórn­inni í Kænu­garði.

„Ég sá fólk hlaupa um göt­urnar,“ heldur Sasha áfram að lýsa því sem fyrir augu bar í morgun. „Við fjöl­skyldan viljum ekki flýja. Þetta er heim­ili okkar. Við getum ekki gert neitt annað en að vona það besta.“

[adspot]

Kharkiv er ekki eina borgin sem fékk að finna fyrir því í morgun. Til­kynn­ingar hafa borist um árásir víðar í land­inu. Mannfall er hafið. Að minnsta kosti átta Úkra­ínu­menn höfðu lát­ist um klukkan átta í morgun að því er Reuters-frétta­stofan greindi frá. Stjórn­völd í land­inu segj­ast hafa skotið niður her­flug­vélar og þyrlu Rússa en þeir segja það ekki rétt.

[links]Sasha vill ekki flýja en þús­undir ann­arra hafa gripið til þess. Umferð­ar­tepp­urnar út úr höf­uð­borg­inni eru því­líka að umferðin hreyf­ist varla. Raðirnar við hrað­banka og versl­anir eru gríð­ar­legar. Það hefur skelf­ing gripið um sig.

Herlög hafa verið sett á í Úkraínu og hafa stjórn­völd heitið því að verja borg­ara sína með öllum til­tækum ráðum. Allir sem vopni geta valdið hafa verið beðnir að skrá sig til þjón­ustu nú þegar.

Ráðist hefur verið inn í landið bæði frá Rúss­landi og Hvíta-Rúss­landi. New York Times hefur stað­fest myndefni sem blað­inu hefur borist sem sýna rúss­neska her­menn að koma yfir landa­mærin á Krím­skaga. Ekki langt frá heima­borg Söshu.

Loft­varnaflautur hafa verið þandar í hverri borg­inni á fætur annarri. Rússar hafa gert árás á her­flug­vélar Úkra­ínu­manna á jörðu niðri. Reynt að draga úr við­náms­þrótti þeirra.

Pútín sagði í ávarpi sínu eldsnemma í morgun að hann ætl­aði sér ekki að „her­taka“ svæðin í austri, svæði sem hafa verið undir yfir­ráðum aðskiln­að­ar­sinna, hópa sem vilja halla sér að Rúss­landi fremur en stjórn­völdum í Kænu­garði, frá árinu 2014.

En nú er ljóst að „aðgerðir“ Pútíns bein­ast að allri Úkraínu – eru alls ekki aðeins bundnar við aust­ur­hér­uðin. Árásir hafa verið gerðar á að minnsta kosti tíu svæði, bæði í austri og suðri og upp­lýs­ingar um nýjar árásir ber­ast stöðugt.

Dmytro Kuleba, utan­rík­is­ráð­herra Úkraínu, segir um „alls­herjar inn­rás“ að ræða. Rússar hafa svo sagt að almennir borg­arar séu ekki í hættu. Þegar er orðið ljóst að það stenst engan veg­inn. Fréttir hafa meðal ann­ars borist af særðum heil­brigð­is­starfs­mönnum er árás var gerð á her­stöð í Nizhyn í norð­ur­hluta lands­ins.

„Við vitum ekki hvað við eigum til bragðs að taka,“ segir Olha sem býr í Lviv. Fjöl­skylda hennar er hins vegar í Kænu­garði í hund­raða kíló­metra fjar­lægð. Hún ótt­ast um líf þeirra. „Ég bað þau að finna sprengju­byrgi.“

Borg­ar­stjór­inn í Kænu­garði, Vitali Klitschko, flutti sjón­varps­ávarp í morgun og bað borg­ar­búa, sem eru um 2,8 millj­ónir tals­ins, að reyna að halda ró sinni. Búðir, bens­ín­stöðvar og bankar væru opin. „Haldið ykkur heima.“

Pól­verjar búa sig undir að flótta­manna­straum­ur­inn frá Úkraínu verði gríð­ar­legur. Að flótta­fólkið muni jafn­vel hlaupa á hund­ruðum þús­unda.

Vernd en ekki innrás

Á fundi örygg­is­ráðs Sam­ein­uðu þjóð­anna í gær­kvöldi var gerð loka til­raun til að koma í veg fyrir stríð. Vasily Nebenzya, sendi­herra Rúss­lands og for­maður ráðs­ins þennan mán­uð­inn, ítrek­aði að Úkraínu væri um að kenna hvernig komið væri. „Ef þið breytið ekki hvernig þið horfið á hið póli­tíska lands­lag þá munið þið aldrei skilja okkur,“ sagði hann m.a. Hann sagði Rússa vera bjarg­vætti Austur-Úkraínu en ekki óvina­her. „Í okkar huga,“ sagði hann og var þá að meina Rússa og aðskiln­að­ar­sinn­anna í Úkraínu, „þá býr þarna fólk; konur, gam­al­menni og börn, sem hafa í fleiri ár þurft að skýla sér fyrir sprengjuregni frá Úkraínu.“ Rússar ætl­uðu sér að „vernda fólkið sem hefur orðið fyrir þjóð­ar­morði“.

Sá sem síð­astur tók til máls á fundi örygg­is­ráðs­ins var full­trúi Úkraínu og hann virt­ist í áfalli eftir ræðu Nebenzya. „Það er hlut­verk þess­arar sam­komu að stöðva stríðið,“ sagði Sergei Kyslitzia. Rödd hans skalf enda hafði Pútín þá lýst yfir stríði. Ræðan sem hann hafði und­ir­búið var því úrelt. „Ég biðla til ykkar allra að gera það sem þið getið til að stöðva þetta stríð.“

Þeir skipt­ust svo á hörðum athuga­semdum, Rússinn og Úkra­ínu­mað­ur­inn. „Stríðs­glæpa­menn fara beint til hel­vítis, sendi­herra,“ sagði sá úkra­ínski. Sá rúss­neski þagði um stund en sagði svo, yfir­veg­unin upp­máluð: „Við erum ekki ógn­andi við borg­ara Úkraínu, heldur gegn her­for­ingja­stjórn­inni í Kænu­garði“.

Lofar öllum mögulegum stuðningi

Íbúar smá­bæj­ar­ins Slovi­ansk í einu aust­ur­hér­aða Úkraínu vökn­uðu líkt og fleiri í land­inu við sprengjur. Þegar þær þögn­uðu og hljótt var um stund gripu margir til þess ráðs að koma sér í skjól – burt úr húsum sínum. Irina Shevtsova flúði ásamt tveimur ungum börnum sínum í klaustur skammt frá heim­ili sínu. „Hér eru að minnsta kosti þrjár graf­hvelf­ingar.“

Slovi­ansk var und­ir­lagður af átökum árið 2014. Ástandið þar nú er ekk­ert í lík­ingu við það sem þá var en íbú­arnir eru ugg­andi. Lilia Soliak seg­ist ekki telja að bær­inn hennar verði skot­mark í þetta sinn. „Þeir munu ráð­ast á borgir þar sem eru mik­il­vægir flug­vellir,“ sagði hún snemma í morgun.

Um klukkan 9 að íslenskum tíma rædd­ust Emmanuel Macron Frakk­lands­for­seti og Volody­myr Zelensky, for­seti Úkraínu, saman í síma. Sá síð­ar­nefndi óskaði eftir aðstoð og Macron lof­aði honum „öllum stuðn­ingi og sam­stöðu Frakk­lands.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár