Sprengjuárásir hafnar í Úkraínu

Árás er hafin á nokkrar borgir í Úkraínu. Vladimír Pútín Rúss­lands­for­seti flutti sjón­varps­ávarp snemma í morgun og sagði mark­mið sitt með inn­rás í Úkraínu vera að „aflétta hern­að­ar­yf­ir­ráðum“ í land­inu en ekki her­nema það.

Sprengjuárás við borgina Kharkiv í morgun.
Sprengju­árás við borg­ina Kharkiv í morgun. Mynd: Skjáskot/New York Times

„Sérstök hern­að­ar­að­gerð“ Rússa, líkt og Vladimír Pútín for­seti orðar það, er hafin í Úkraínu. Mánuðum saman hefur hættan á átökum vofað yfir. Tug­þús­undir her­manna höfðu safn­ast að landa­mær­unum til „her­æf­inga“ eins og reynt var að halda fram. En nú hefur her Rússa látið til skarar skríða. Stjórn­völd í Úkraínu segja árásir hafa verið gerðar bæði frá Rúss­landi og Hvíta-Rúss­landi.

Pútín flutti sjón­varps­ávarp snemma í morgun og sagði mark­mið sitt með inn­rás í Úkraínu vera að „aflétta hern­að­ar­yf­ir­ráðum“ í land­inu en ekki her­nema það. Aðeins nokkrum mín­útum síðar mátti sjá stóran glampa frá sprengjum á morg­un­himn­inum í nágrenni Kharkiv, ann­arrar stærstu borgar Úkraínu og einnig herma fréttir, að því er New York Times greinir frá, að spreng­ingar hafi heyrst í höf­uð­borg­inni Kænu­garði. Þá hafa fréttir einnig borist af spreng­ingum ann­ars staðar í land­inu. Enn­fremur greinir Washinton Post frá því að sjón­ar­vottar segi spreng­ingar hafa orðið á flug­vell­inum í Kænu­garði. Loft­varnaflautur voru þandar í höf­uð­borg­inni en segja stjórn­völd það hafa verið gert til að vekja borg­ar­búa. Ekki sjá­ist enn til her­flug­véla.

Örvænting

Langar raðir bíla hafa mynd­ast við bens­ín­stöðvar í Úkraínu og miklar umferð­ar­teppur eru í Kænu­garði, m.a. á vegum út úr borg­inni. Úkra­ínu­menn hafa á und­an­förnum vikum og mán­uðum haldið ró sinni, en um leið og sprengja féll á flug­völl­inn í morgun, að sögn New York Times, var ógnin orðin áþreif­an­leg. Fólk flykkt­ist í mat­vöru­versl­anir og biðraðir eru við hvern ein­asta hrað­banka í Kænu­garði.

[adspot]

New York Times hefur eftir inn­an­rík­is­ráðu­neyti Úkraínu: „Innrásin er hafin“. Utan­rík­is­ráð­herr­ann skrif­aði á Twitter í morgun að „alls­herjar stríð“ Pútíns gegn Úkraínu væri byrjað. „Úkraína mun verja sig og fara með sigur. Heims­byggðin verður að bregð­ast við og stöðva Pútín. Það er tíma­bært að bregð­ast við – nú þegar.“

Pútín seg­ist vera bregð­ast við ákalli leið­toga aðskiln­að­ar­sinna í Austur-Úkraínu. Hann segir aðgerð sína „spurn­ingu upp á líf og dauða“ fyrir Rússa sem væru að verða aðþrengdir vegna NATO sem Úkraína hefur óskað eftir að ganga inn í. „Þetta er þessi rauða lína sem ég hef oft talað um,“ sagði Pútín í ávarpi sínu. „Þeir hafa nú farið yfir hana.“

Hótarnir í garð annarra ríkja

Markmið hern­að­ar­að­gerð­anna er að sögn Pútíns að „verja fólk sem hefur í átta ár þurft að þola ofsóknir og þjóð­ar­morð af hálfu stjórn­valda í Kænu­garði“.

Blaða­menn New York Times túlka svo ávarp hans í morgun sem beina hótun gegn öðrum ríkjum.

„Hver sá sem reynir að skipta sér af okkur, eða að ganga lengra og skapa ógn fyrir land okkar og þjóð, skal vita að Rússland mun bregð­ast við þegar í stað þannig að afleið­ing­arnar verða eitt­hvað sem þið hafið aldrei upp­lifað áður í sögu ykkar.“

Joe Biden Banda­ríkja­for­seti segir inn­rás­ina „órétt­læt­an­lega“ og ein­göngu á ábyrgð Rússa. Hann segir Pútín hafa valið stríð sem muni hafa ham­fara­kenndar afleið­ingar í för með sér, mann­fall og þján­ingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár