Brúðkaupsveislur urðu að „útungunarstöðvum“ fyrir veiruna

Ísraelar stóð­ust ekki freist­ing­una að safn­ast saman þegar tak­mörk­unum vegna far­ald­urs­ins var aflétt í lok maí. Opnun bara og stranda eru þó ekki helsta ástæða stór­kost­legrar fjölg­unar smita síð­ustu vikur heldur brúð­kaups­veislur.

Ungt fólk á ströndinni í Ísrael.
Ungt fólk á strönd­inni í Ísrael. Mynd: EPA

Ísraelsk yfir­völd hlutu í vor lof fyrir við­brögð sín við kór­ónu­veiru­far­aldr­inum en nú er veiran komin aftur og dag­legum til­fellum greindra sýk­inga hefur fjölgað hraðar en nokkru sinni fyrr. Óttast er að sjúkra­hús verði orðin yfir­full í lok mán­að­ar­ins.

Yfir 30 þús­und manns hafa nú greinst með COVID-19 í Ísrael. Yfir­völdum hafði tek­ist að „fletja kúr­f­una“ og afléttu tak­mörk­unum á ferða­lögum og sam­komum í lok maí. Lík­ams­rækt­ar­stöðvar voru opn­aðar að nýju og sömu­leiðis veit­inga- og kaffi­hús.

Það er þó ekki á þessum stöðum sem veiran hefur náð að breið­ast út síð­ustu vikur. Það hefur hún gert í brúð­kaups­veislum.

Um leið og kaffi­hús og aðrir sam­komu­staðir voru opn­aðir var fjölda­tak­mörk­unum á sam­komum aflétt. Í fréttum Washington Post um þró­un­ina er haft eftir ísra­elskum emb­ætt­is­manni að vís­inda­menn hafi rakið hópsmit til stórra sam­koma og þá aðal­lega brúð­kaupa. Spreng­ing varð í fjölda brúð­kaupa í júní og voru 2092 haldin frá 15. júní til 25 júní, á aðeins tíu daga tíma­bili. Veisl­urnar marg­mennu urðu svo að „útung­un­ar­stöðvum“ fyrir veiruna.

Útbreiðslan varð hröð því í veisl­urnar mætir fólk víðs vegar að af land­inu til að fagna með brúð­hjón­unum. „Fólk faðm­ast, það syngur saman og það dansar saman. Það eru kjörað­stæður til að smita fólk,“ hefur Washington Post eftir emb­ætt­is­mann­inum.

Ísraelsk yfir­völd vilja nú vara aðrar þjóðir við því að brúð­kaups­veislur séu kjör­lendi veirunnar þetta sum­arið. Á mánu­dag var gripið til þess ráðs að loka sölum þar sem slíkar veislur eru haldnar auk þess sem ýmsar aðrar tak­mark­anir tóku aftur gildi. Tón­leika­sölum var lokað sem og almenn­ings­sund­laugum. Á veit­inga­stöðum mega ekki fleiri en tutt­ugu manns sitja inn­an­dyra og þrjá­tíu utandyra. Þá mega aðeins nítján koma saman í bæna­húsum.

Í frétt Washington Post segir að sjúkra­húsin séu óðum að fyll­ast af alvar­lega veiku fólki. Fjöldi COVID-sjúk­linga tvö­fald­ist milli daga.

Smitrakningu ábótavant

Yfir 20 þús­und sýni eru tekin dag­lega í Ísrael. Hins vegar hafa yfir­völd við­ur­kennt að smitrakn­ingu sé ábóta­vant. Til að hún megi verða betri þarf fleira fólk með reynslu.

Ísraelar voru farnir að njóta frels­is­ins og tak­mark­anir voru að baki. En bakslagið sem nú er komið upp hefur orðið til þess að háværar gagn­rýn­is­raddir bein­ast nú að stjórn­völdum. Það er gagn­rýnt að aflétt­ing­arnar hafi orðið til þess að fólk flykkt­ist á bari, strand­irnar og út á götur eins og ekk­ert hefði í skorist á meðan hættan á annarri bylgju far­ald­urs­ins vofði stöðugt yfir.

Dan Ben-David, pró­fessor við háskól­ann í Tel Aviv, segir hóp­sýk­ing­arnar hafa verið fyr­ir­séðar. „Veiran er ekki hætt að vera smit­andi. Við hverju bjugg­ust menn þegar allt var opnað? Það hefði verið hægt að koma í veg fyrir þetta allt. Þess vegna er þetta ekk­ert annað en harm­leikur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár