Innskráningum í gegnum Ísland.is fjölgar um 96 prósent milli ára

Í ágúst á þessu ári voru sam­tals 1.501.749 inn­skrán­ingar í gegnum inn­skrán­ing­ar­þjón­ustu Ísland.is. Flestir not­uðu raf­ræn skil­ríki í far­síma.

Inn­skrán­ingum á Ísland.is fjölg­aði um 96 pró­sent milli áranna 2018 og 2019. Í ágúst í fyrra voru inn­skrán­ingar sam­tals 766.177 og á þessu ári voru þær 1.501.749 tals­ins.

Þetta kemur fram á vef Þjóð­skrár.

Þá segir í frétt Þjóð­skrár um málið að sam­tals hafi 10.251.664 inn­skrán­ingar verið skráðar síð­ast­liðna tólf mán­uði. Inn­skrán­ing­ar­þjón­usta Ísland.is býður upp á inn­skrán­ingu inn á vefi yfir 200 þjón­ustu­veit­enda og að jafn­aði 25 þús­und manns nýta sér þjón­ust­una dag­lega.

Flestir nota rafræn skilríki í farsíma

Enn fremur kemur fram að íslyk­ill sé hluti af inn­skrán­ing­ar­þjón­ustu Ísland.is en þar sé líka hægt að nota raf­ræn skil­ríki í síma og á kortum.

Þann 2. sept­em­ber 2019 höfðu verið gefnir út 287.952 íslyklar til ein­stak­linga og 17.467 til fyr­ir­tækja. Í síð­asta mán­uði not­uðu 39,1 pró­sent íslyk­il­inn, 0,24 pró­sent raf­ræn skil­ríki á korti og 60,28 pró­sent raf­ræn skil­ríki í far­síma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár