25 þingmenn næðu ekki sæti miðað við nýjustu kannanir

Gríð­ar­leg hreyf­ing hefur verið á stuðn­ingi við stjórn­mála­flokka það sem af er ári. Píratar halda áfram að bæta við sig fylgi og fá nú 37,5 pró­sent fylgi, sam­kvæmt nýj­ustu könnun Frétta­blaðs­ins. Það er eina könn­unin sem gerð hefur verið eftir að stjórn­völd kynntu áætlun um losun hafta fyrr í mán­uð­inum. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn nýtur þess­ara áforma ekki neitt og mælist með 8,5 pró­sent. Sam­fylk­ing, VG og Björt fram­tíð græða ekk­ert á þessu fylgis­tapi Fram­sókn­ar­flokks, en eini flokk­ur­inn utan Pírata sem bætir við sig fylgi er Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn.

Kjarninn skoð­aði fram­boðs­lista flokk­anna út frá könnun Frétta­blaðs­ins til að sjá hvaða núver­andi þing­menn myndu missa sæti sín miðað við könn­un­ina.

Suðvesturkjördæmi: Fjórir þingmenn dyttu út


Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn myndi tapa tveimur af sínum fjórum þing­mönnum í kjör­dæm­inu og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn myndi tapa einum af sínum fimm. Öll þrjú þing­sætin sem stjórn­ar­flokk­arnir myndu tapa færu til Pírata, sem næðu inn fimm mönnum, en eru nú með einn. Það er Birgitta Jóns­dóttir. Síðasta þing­sæti Pírata kæmi frá Bjartri fram­tíð, sem myndi tapa sínum manni í kjör­dæm­inu rétt eins og ann­ars staðar. Björn Leví Gunn­ars­son, Hákon Einar Júl­í­us­son, Árni Þór Þor­geirs­son og Berglind Ósk Bergs­dóttir skip­uðu þessi fjögur sæti í kosn­ing­unum árið 2013.

Þingmenn fram­sóknar sem færu út af þingi eru Willum Þór Þórsson og Þor­steinn Sæmunds­son. Elín Hirst næði ekki inn á þing fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn og Guð­mundur Stein­gríms­son dytti út af þingi fyrir Bjarta fram­tíð.

[caption id="attachment_31967" align="alignnone" width="800"] Þing­flokkur Bjartrar fram­tíðar myndi þurrkast út miðað við könnun Frétta­blaðs­ins í dag.[/caption]

 

Suðurkjördæmi: Framsókn myndi missa þrjá af fjórum


Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn fékk fjóra menn kjörna í síð­ustu kosn­ingum en sam­kvæmt könnun Frétta­blaðs­ins í dag myndi flokk­ur­inn nú fá einn. Sá þing­maður í dag er Sigurður Ingi Jóhanns­son, en Silja Dögg Gunn­ars­dóttir, Páll Jóhann Pálsson og Haraldur Ein­ars­son myndu öll detta út af þingi.

Páll Valur Björns­son myndi líka detta út af þingi en hann er eini þing­maður Bjartrar fram­tíðar í kjör­dæm­inu. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Sam­fylk­ingin héldu sínum þing­mönnum í kjör­dæm­inu miðað við könn­un­ina, og VG næði ekki manni inn frekar en í síð­ustu kosn­ingum. Píratar, sem náðu ekki inn manni í kosn­ing­unum, myndu fá fjóra þing­menn í suð­ur­kjör­dæmi. Þeir Smári McCarthy, Halldór Berg Harð­ar­son, Björn Þór Jóhann­es­son og Svafar Helgason skip­uðu þessi fjögur sæti í síð­ustu kosn­ingum.

[caption id="attachment_31971" align="alignnone" width="800"] Frosti Sig­ur­jóns­son og Vigdís Hauks­dóttir leiddu lista Fram­sókn­ar­flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum tveimur. Hvorugt myndi ná inn nú.[/caption]

Reykjavík suður: Píratar í stórsókn og Vigdís Hauks félli af þingi


Píratar eru í stór­sókn í báðum Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum. Þeir eru nú með einn þing­mann í Reykja­vík suður, en það er Jón Þór Ólafsson. Samkvæmt könn­unum fengi flokk­ur­inn hins vegar sex þing­menn ef kosið yrði nú. Þessir fimm þing­menn koma frá Sam­fylk­ingu, Fram­sókn­ar­flokki og Bjartri fram­tíð. Ásta Helga­dóttir, Sig­ur­björg Erla Egils­dóttir, Sigríður Fossberg Thorlacius, Arnaldur Sig­urð­ar­son og Birkir Fannar Ein­ars­son skip­uðu þessi fimm sæti hjá Pírötum í kosn­ing­unum síð­ast.

Björt fram­tíð fékk þá Róbert Marshall og Óttar Proppé kjörna í kosn­ing­unum en þeir myndu báðir missa sæti sitt. Sam­fylk­ingin myndi missa annað af sínum tveimur sætum, sætið sem Helgi Hjörvar skipar nú. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn þurrkast út í Reykja­vík suður líkt og Björt fram­tíð, sem þýðir að hvorki Vigdís Hauks­dóttir né Karl Garð­ars­son væru þing­menn. VG og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn halda sínum mönnum í kjör­dæm­inu.

Reykjavík norður: Allir nema Sjálfstæðismenn tapa þingmönnum til Pírata


Eins og í hinu Reykja­vík­ur­kjör­dæm­inu myndi Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn ekki ná neinum þing­manni inn ef kosið yrði nú. Nú eru þing­menn kjör­dæm­is­ins þau Frosti Sig­ur­jóns­son og Sigrún Magn­ús­dóttir. Björt Ólafs­dóttir væri ekki á þingi fyrir Bjarta fram­tíð, og Sam­fylk­ingin myndi tapa sæti Val­gerðar Bjarna­dóttur og hafa aðeins einn þing­mann í kjör­dæm­inu. Vinstri græn myndu líka tapa öðrum af sínum tveimur þing­mönnum, sæti Stein­unnar Þóru Árna­dóttur. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn heldur sínum þremur þing­mönnum.

Píratar myndu fá sex þing­menn kjörna, rétt eins og í Reykja­vík suður. Nú er þar einn þing­maður flokks­ins, Helgi Hrafn Gunn­ars­son. Halldóra Mogensen, Bjarni Rúnar Ein­ars­son, Salvör Krist­jana Giss­ur­ar­dóttir, Þórður Sveins­son og Haukur Ísbjörn Jóhanns­son voru á eftir honum á lista Pírata fyrir kosn­ing­arnar.

[caption id="attachment_17761" align="alignnone" width="640"] Ásmundur Einar Daðason næði ekki sæti á þingi miðað við könnun Frétta­blaðs­ins.[/caption]

Norðvesturkjördæmi: Ásmundur Einar myndi detta út


Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn myndi bæta við sig manni í Norð­vest­ur­kjör­dæmi ef marka má skoð­ana­könnun Frétta­blaðs­ins. Miðað við núver­andi lista flokks­ins myndi það þýða að Eyrún Ingi­björg Sig­þórs­dóttir kæmi inn á þing. Vinstri græn myndu tapa sínum eina manni, Lilju Rafneyju Magn­ús­dóttur.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn myndi tapa þremur af þeim fjórum mönnum sem hann fékk kjörna í síð­ustu kosn­ingum. Eini þing­mað­ur­inn sem héldi velli væri Gunnar Bragi Sveins­son, en Ásmundur Einar Daðason, Elsa Lára Arn­ar­dóttir og Jóhanna María Sig­munds­dóttir myndu öll detta út. Sam­fylk­ingin myndi halda sínum eina manni, Guð­bjarti Hann­essyni.

Píratar hafa engan þing­mann í kjör­dæm­inu en myndu hins vegar fá tvo miðað við skoð­ana­kann­anir. Í fyrstu sæt­unum á fram­boðs­lista í síð­ustu kosn­ingum voru Hildur Sif Thoraren­sen og Herbert Snorra­son.

[caption id="attachment_31968" align="alignnone" width="800"] Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir næði ekki sæti fyrir Vinstri græn, og ekki heldur Lilja Rafney Magn­ús­dóttir sem sést í fyrir aftan.[/caption]

Norðausturkjördæmi: Sjálfstæðismenn bæta við sig manni og Sigmundur Davíð héldi velli


Hér myndi Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn einnig bæta við sig manni miðað við kann­anir. Það væri þriðji þing­maður flokks­ins í kjör­dæm­inu en fyrir eru Kristján Þór Júl­í­us­son og Val­gerður Gunn­ars­dóttir. Ásta Kristín Sig­ur­jóns­dóttir skipar þriðja sæti list­ans.

Vinstri græn myndu tapa öðru af sínum tveimur þing­sætum í kjör­dæm­inu, en það er sætið sem Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir situr í nú. Sam­fylk­ingin héldi sínum eina þing­manni, Krist­jáni Möller, en Bryn­hildur Pét­urs­dóttir væri ekki á þingi fyrir Bjarta fram­tíð.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn færi úr fjórum þing­mönnum í tvo, sem þýðir að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra og Hösk­uldur Þór Þór­halls­son héldu sínum sætum en ekki Líneik Anna Sæv­ars­dóttir og Þórunn Egils­dóttir. Píratar fengju þrjú þing­sæti í kjör­dæm­inu, en skipa ekk­ert núna. Þessi þrjú sæti skip­uðu Aðal­heiður Ámunda­dóttir, Þórgnýr Thorodd­sen og Helgi Laxdal.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár