Sæmundur Sæmundsson hættir sem forstjóri Borgunar

For­stjóri Borgunar hefur ákveðið að láta af störfum.

Sæmundur Sæmunds­son hefur ákveðið að láta af störfum sem for­stjóri Borgunar en stjórn fyr­ir­tæk­is­ins til­kynnti þetta í dag. Stjórnin til­kynnti einnig að Eduardo Pontes og Marcos Nunes taki við en þeir munu sam­eig­in­lega gegna hlut­verki for­stjóra Borgunar. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu.

Breyt­ing­arnar verða í kjöl­far þess að Salt Pay hefur nú verið sam­þykkt af fjár­mála­eft­ir­liti Seðla­banka Íslands sem nýr rekstr­ar­að­ili Borgunar. Líkt og áður hefur verið til­kynnt sam­þykkti Salt Pay að kaupa Borgun fyrr á þessu ári í kjöl­far opins sölu­ferlis.

Sæmundur segir í til­kynn­ing­unni þetta vera góða tíma­setn­ingu fyrir sig að stíga til hliðar hjá Borgun. „Ég er ákaf­lega spenntur, fyrir hönd starfs­fólks Borgunar, fyrir þessum næsta kafla þar sem ég veit að Salt Pay hyggst sækja fram af krafti á alþjóða­vísu. Ég er stoltur af að hafa leitt fyr­ir­tækið í gegnum mikið breyt­inga­tíma­bil þar sem við náðum því mark­miði að selja fyr­ir­tækið. Ég er sér­stak­lega ánægður að Borgun fái eig­endur sem ætli að byggja á þeim öfl­uga grunni sem teymið okkar hefur byggt upp síð­ustu ár“.

Nýir for­stjórar Borgunar verða þeir Eduardo Pontes og Marcos Nunes. „Edu starf­aði áður sem for­stjóri brasil­íska fjár­tækni­fyr­ir­tæk­is­ins Stone Co og Marcos starf­aði áður sem fram­kvæmda­stjóri alþjóð­legrar færslu­hirð­ingar og ytri vaxtar hjá sænska greiðslu­miðl­un­ar­fyr­ir­tæk­inu Bambora,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Marcos Nunes segir að fram­tíð­ar­sýn Salt Pay fyrir Borgun sé að ná fram umtals­verðri mark­aðs­hlut­deild á meðal lít­illa og með­al­stórra fyr­ir­tækja í Evrópu. „Við ætlum að byggja upp öfl­ugt félag á Íslandi sem geti orðið stökk­pallur fyrir okkur til að þróa verð­mætar lausnir fyrir sölu­að­ila um alla Evrópu. Ekki aðeins í gegnum greiðslu­miðlun heldur einnig með því að hjálpa sölu­að­il­unum að vaxa og ná fram auk­inni skil­virkni í rekstri sínum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár