Ævar Pálmi: Búið að ná utan um hópsmitið

Yfir­maður smitrakn­ing­arteymis almanna­varna segir að búið sé að ná utan um hópsmitið sem hér kom upp fyrir nokkrum dögum. Teymið telur sig hafa komið öllum sem þurfa í sótt­kví, alls yfir 400 manns.

Ævar Pálmi Pálmason er yfirmaður smitrakningateymis almannavarna.
Ævar Pálmi Pálmason er yfir­maður smitrakn­ingateymis almanna­varna. Mynd: Lögreglan

„Við erum búin að ná utan um þetta og koma að við teljum öllum í sótt­kví sem þurfa að fara í sótt­kví,“ segir Ævar Pálmi Pálmason, yfir­maður smitrakn­ing­arteymis almanna­varna og aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónn. Fimm smit af kór­ónu­veirunni hafa greinst inn­an­lands síð­ustu daga og eru þau öll talin tengj­ast konu sem kom með flugi frá Banda­ríkj­unum 17. júní. Núna eru 436 manns í sótt­kví og að sögn Ævars er það nær allt fólk sem teng­ist smit­unum fimm.

Hópurinn þarf að vera í sótt­kví í tvær vikur frá þeim tíma sem það var útsett fyrir smiti. „Allur vafi er túlk­aður örygg­inu og þar með sótt­kvínni í hag,“ segir Ævar spurður hvort ein­hverjir muni kom­ast úr sótt­kví fyrr en aðrir.

Í sótt­kví eru meðal ann­ars gestir í útskrift­ar­veislum sem fram fóru fyrir viku, nokkrir starfs­menn atvinnu­vega­ráðu­neyt­is­ins og fjögur fót­boltalið.

Ævar segir að þeir sem séu í sótt­kví verði að fylgja nákvæm­lega sömu reglum og giltu í vetur og nálg­ast má hér. Aðspurður segir hann að fólk geti vel farið í sum­ar­bú­stað­inn sinn í sótt­kvínni – að því gefnu að það fari að öllum sótt­varn­ar­reglum. Þá ber fólki í sótt­kví að láta rakn­ing­arteymið eða sína heilsu­gæslu­stöð vita ef það ætlar að skipta um dval­ar­stað. „Það þarf að gera með þeirra eigið öryggi í huga svo að við­kom­andi heil­brigð­is­um­dæmi viti af þeim.“

[links]Á heild­ina litið segir Ævar smitrakn­ing­una í kringum hópsmitið hafa gengið vel. „Eðlilega hafa komið upp nokkur mál sem hafa verið flókn­ari úrlausnar en önnur.“ Skýr­ingin felist meðal ann­ars í því að starfs­menn smitrakn­ing­arteym­is­ins sé orðið „vant og hokið af reynslu í smitrakn­ingum, að ná til fólks og tala við það.“

Hann minnir á að verk­efnið sé sam­vinnu­verk­efni margra, m.a. við þá sem hafa smit­ast og einnig þá sem þurfa að fara í sótt­kví. Þá segir hann mikið og gott sam­starf hafi verið við íþrótta­fé­lögin í þess­ari rakn­ingu enda kom smitið upp hjá leik­manni.

Ef fólk sem er í sótt­kví fer að finna fyrir sjúk­dóms­ein­kennum á það að láta sína heilsu­gæslu­stöð vita um leið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár