Virkum smitum fækkar – fólki í sóttkví fjölgar

Töluverð hreyf­ing er á fjölda þeirra sem þurfa að vera í sótt­kví vegna smita sem hér hafa greinst síð­ustu daga. Yfir tvö þús­und sýni voru tekin á Íslandi í gær.

Ellefu virk smit af kór­ónu­veirunni eru nú í land­inu að því er fram kemur á vefnum Covid.is Þeim hefur því fækkað um eitt á milli daga. 2.038 sýni voru tekin í gær, lang­flest eða 1.310 við landa­mærin. Fjögur reynd­ust jákvæð; þrjú úr skimun við landa­mæri og eitt hjá sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­al­ans.

Síðustu daga hefur fjölgað mikið í sótt­kví vegna fimm nýrra inn­an­lands­smita. Þau eru rakin til konu sem kom frá Banda­ríkj­unum þann 17. júní. Hún fékk nei­kvæða nið­ur­stöðu úr landamæra­skimun en nokkrum dögum seinna fór hún aftur í sýna­töku og reynd­ist það próf jákvætt.

Í gær voru því 434 komnir í sótt­kví en þeir höfðu verið 415 dag­inn áður. Þetta eru þó mun lægri tölur en sáust í miðjum far­aldri þegar nokkur þús­und manns voru í sótt­kví á sama tíma. Þar sem um hópsmit er að ræða hefur rakn­ing­arteymið unnið hörðum höndum að því að finna alla þá sem þessir sýktu ein­stak­lingar áttu sam­neyti við. Það er stór hópur, m.a. gestir úr nokkrum útskrift­ar­veislum.

Rakn­ing­arteymið hefur rakið upp­runa 25 smita sem greinst hafa hér frá 15. Júní til útlanda. Sex smit eru flokkuð sem inn­an­lands­smit að því er fram kemur á Covid.is.

Tuttugu manns sem greinst hafa með kór­ónu­veiruna við landamæra­skimun hafa fengið þá nið­ur­stöðu úr mótefna­mæl­ingu að vera ekki smit­andi. Fjórir hafa hins vegar reynst smit­andi og beðið er nið­ur­stöðu úr þremur mótefna­mæl­ingum.

Enginn liggur á sjúkra­húsi á Íslandi vegna COVID-19. Frá því far­ald­ur­inn hófst í byrjun febr­úar hafa 1.887 til­felli greinst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár