Tæpur helmingur hefur nýtt sér fimm þúsund króna ferðagjöfina

Fimm þús­und króna ferða­gjöf stjórn­valda til lands­manna úr rík­is­sjóði átti að kosta 1,5 millj­arð króna. Tæplega helm­ingur þeirra sem eiga rétt á henni hafa nýtt gjöf­ina nú þegar tveir og hálfur mán­uður er eftir af gild­is­tíma hennar.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ráðherra ferðamála, lagði fram frumvarp um ferðagjöfina sem samþykkt var 12. júní.
Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, ráð­herra ferða­mála, lagði fram frum­varp um ferða­gjöf­ina sem sam­þykkt var 12. júní. Mynd: Bára Huld Beck

Þann 7. októ­ber höfðu 167.323 manns sótt fimm þús­und króna ferða­gjöf stjórn­valda, af þeim um 280 þús­und manns sem eiga rétt á henni. Af þeim sem hafa sótt hana hafa 130 þús­und manns, tæpur helm­ingur þeirra sem geta nýtt sér hana, þegar notað gjöf­ina til að greiða fyrir vörur og þjón­ustu hjá þeim fyr­ir­tækjum sem tóku þátt í átak­inu fyrir alls um 837 millj­ónir króna. Ferða­gjöfin gildir út árið 2020 og því verða þeir sem ekki nýta hana fyrir ára­mót af henni. , en tveir og hálfur mán­uður eru eftir af árinu.

Þegar aðgerðin var kynnt af stjórn­völdum kom fram að með þessu fram­taki ætti að gefa Íslend­ingum eldri en 18 ára sam­tals 1,5 millj­arð króna til að örva vilja þeirra til inn­lendrar neyslu og ferða­laga. Í dag hefur þjóðin sam­tals eytt um 56 pró­sent þeirrar upp­hæðar sem stjórn­völd kynntu að aðgerðin ætti að kosta.

Frum­varp um ferða­gjöf­ina var sam­þykkt 12. júní síð­ast­lið­inn og hægt hefur verið að sækja sína ferða­gjöf frá 19. júní síð­ast­liðn­um.

Kostn­að­ur­inn strax ofá­ætl­aður

Ein af efna­hags­að­gerðum rík­is­stjórn­ar­inn­ar, sem opin­beruð var þegar fyrsti aðgerð­ar­pakki hennar var kynntur 21. mars síð­ast­lið­inn, var að senda á öllum ein­stak­l­ingum 18 ára og eldri með íslenska kenn­i­­tölu star­fræna fimm þús­und króna gjöf útgefna af stjórn­­völd­­um. Síðar fékk þessi aðgerð, sem átti að hafa þau áhrif að efla eft­ir­spurn eftir kaupum á inn­lendri vöru og þjón­ustu í sum­ar, nafnið „Ferða­gjöf­in“.

[adspot]Alls átti kostn­að­ur­inn við þessa gjöf til allra full­orð­inna lands­manna að vera 1,5 millj­arðar króna. Ef það ætti að nást hefðu 300 þús­und manns þurft að sækja ferða­gjöf­ina, en miðað við mann­fjölda­tölur Hag­stofu Íslands voru íbúar Íslands 18 ára og eldri um 280 þús­und í upp­hafi árs og ekki víst að þeir séu allir með íslenska kenni­tölu, en slíka þarf til að sækja ferða­gjöf­ina. Því er ljóst að kostn­aður við ferða­gjöf­ina gat í raun aldrei orðið meiri en 1,4 millj­arðar króna hið mesta.

Rætt um að skala gjöf­ina upp

Búið var til sér­stakt app sem hægt að var nýta gjöf­ina í gegnum og safna saman ann­arra manna gjöfum ef þeir ætl­uðu sér ekki að nýta sína, upp að 15 ávís­ana hámarki. Heild­ar­kostn­aður við gerð apps­ins átti að vera að hámarki 15 millj­ónir króna.

[links]Hvert og eitt fyr­ir­tæki átti að hámarki að geta tekið við 100 millj­­ónum króna í formi ferða­gjafa og fyr­ir­tæki sem metið var í rekstr­­ar­erf­ið­­leikum 31. des­em­ber 2019 átti að hámarki að geta tekið við sam­an­lagt 25 millj­­ónum króna.

Sig­­urður Ingi Jóhanns­­son, for­­maður Fram­­sókn­­ar­­flokks­ins og sam­göngu- og sveit­­­ar­­­stjórn­­­­­ar­ráð­herra, sagði í við­tali við Kjarn­ann í maí að ein leið til að örva eft­ir­­spurn eftir ferða­­þjón­­ustu á Íslandi á kom­andi sumri væri að skala upp hug­­mynd­ina um ferða­­gjöf­ina og eyða hærri fjár­­hæð en 1,5 millj­­arði króna í hana.

„Tækn­i­­­lausnin liggur fyr­ir, útfærslan er ein­­­föld. Það væri hægt að skala þetta upp og búa til veru­­­lega eft­ir­­­spurn eftir ferða­­­þjón­ust­unni á Íslandi og flétta það síðan saman við opnun landamæra sem verður þó háð því hvernig öðrum löndum tekst að eiga við plág­una.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár