Hagar ætla að endurgreiða hlutabætur

Stjórn Haga ákvað í dag að end­ur­greiða Vinnu­mála­stofnun um 36 millj­ónir króna vegna kostn­aðar sem féll til vegna nýt­ingar félags­ins á hluta­bóta­úr­ræði stjórn­valda, en starfs­menn Zöru, Útilífs og Olís hafa verið í skertu starfs­hlut­falli und­an­farið.

Hagar eiga fjölmörg fyrirtæki, meðal annars Bónus. Þar var þó enginn starfsmaður settur í skert starfshlutfall.
Hagar eiga fjöl­mörg fyr­ir­tæki, meðal ann­ars Bónus. Þar var þó eng­inn starfs­maður settur í skert starfs­hlut­fall. Mynd: Anton Brink

Stjórn Haga ákvað í dag að end­ur­greiða Vinnu­mála­stofnun þann kostnað sem féll til vegna starfs­fólks dótt­ur­fyr­ir­tækja Haga sem nýttu sér hluta­bóta­leið­ina í apr­íl­mán­uði, en félagið hefur verið gagn­rýnt fyrir að kaupa eigin hluta­bréf og færa þannig fé til hlut­hafa sinna á sama tíma og félagið nýtir hluta­bóta­úr­ræði stjórn­valda.

Starfs­menn Zöru, Útilífs og veit­inga­sölu Olís hafa verið í skertu starfs­hlut­falli und­an­farið, en því starfs­fólki verður boðið að fara aftur í það starfs­hlut­fall sem áður var, sam­kvæmt til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu. Í til­kynn­ing­unni segir starfs­hlut­föll hafi verið skert til að forð­ast upp­sagnir og við­halda ráðn­ing­ar­sam­bandi við starfs­fólk eftir fremsta megni.

„Á þessum tíma­punkti er betur hægt að sjá þau áhrif sem far­ald­ur­inn mun hafa á félagið í heild og eru þau minni en ótt­ast var í upp­hafi. Nú telst því rétt að end­ur­greiða þá fjár­hæð sem Vinnu­mála­stofnun greiddi til starfs­fólks Haga í apr­íl­mán­uði,“ segir í til­kynn­ingu félags­ins, en þar kemur fram að end­ur­greiðslan nemi um 36 millj­ónum króna.

„Önnur dótt­ur­fyr­ir­tæki Haga nýttu sér ekki þessa leið, t.a.m. Bónus, Hagkaup, vöru­húsin Aðföng og Bananar, lyfja­versl­anir og fram­leiðslu­stöðvar,“ segir í til­kynn­ingu Haga, þar sem jafn­framt kemur fram að ekki hafi þurft að grípa til upp­sagna innan sam­stæð­unnar vegna áhrifa COVID-19 far­ald­urs­ins.

Í til­kynn­ingu Haga kemur einnig fram að í dag hafi stjórn félags­ins tekið ákvörðun um að ljúka end­ur­kaupa­á­ætlun eigin hluta fyrr en áætlað var, en áætl­unin hefur verið í gildi frá því í lok febr­úar.

„Áætlað var að end­ur­kaup myndu nema 500 millj­ónum króna að hámarki en félagið hefur þegar keypt eigin hluti skv. áætl­un­inni að fjár­hæð 450 millj­ónir króna,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár