Segir nauðsynlegt að birta niðurstöður til að endurvekja traust

Fyrr­ver­andi félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra segir eðli­legt fyrir þingið að kalla eftir nið­ur­stöðum úr rann­sóknum á störfum fyrr­ver­andi for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu.

Þorsteinn Víglundsson
Þor­steinn Víglunds­son Mynd: Hringbraut

Þor­steinn Víglunds­son, fyrr­ver­andi félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra og þing­maður Við­reisnar, segir að ekki sé unnt að end­ur­vekja traust í mála­flokknum nema birta nið­ur­stöður rann­sóknar á störfum Braga Guð­brands­sonar, fyrr­ver­andi for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu. Þetta kom fram í Silfrinu í morgun.

Vel­ferð­ar­ráðu­neytið hefur enn ekki birt opin­ber­lega efn­is­legar nið­ur­stöður úr rann­sóknum á störfum Braga en komið hefur fram í máli Ásmundar Einars Daða­sonar, ráð­herra mála­flokks­ins, að þeim hafi lokið með þeirri nið­ur­stöðu að ekki hafi verið til­efni til áminn­ingar og að Bragi hafi ekki brotið af sér í starfi.

[links]Þor­steinn segir jafn­framt að það hafi vakið furðu hans að málið skyldi ekki leitt til lykta. Komið hafi upp trún­að­ar­brestur, hann rann­sak­aður en nið­ur­stöð­urnar ekki birtar. Eðlilegt sé að þingið kalli eftir þessum nið­ur­stöðum. Hann bendir á að víst verið sé að tefla Braga fram sem fram­bjóð­anda Íslands til Barna­rétt­ar­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna þá sé verið að lýsa því yfir að ekk­ert hafi komið fram í þessum gögnum, að allt hafi verið í lagi.

Í sam­tali við Stundina seg­ist Þor­steinn telja það gríð­ar­lega alvar­legt ef Ásmundur Einar hafi ekki greint nefnd­inni frá mál­inu með réttum hætti og haldið upp­lýs­ingum vís­vit­andi leyndum. „Sér í lagi í ljósi yfir­lýs­inga sinna í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma tveimur dögum fyrr um að það væri mjög mik­il­vægt að nefndin færi mjög ítar­lega yfir þetta mál. Hann verður að standa skil á því gagn­vart þing­inu hver hin efn­is­lega nið­ur­staða ráðu­neyt­is­ins var og hverju það sætir að hann hafi ekki greint þing­mönnum frá þessu á þessum tíma­punkti.“

Formaður velferðarnefndar gagnrýnir ráðherra

Hall­dóra Mog­en­sen, for­maður vel­ferð­ar­nefndar Alþingis og þing­maður Pírata, ­boð­aði fé­lags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra á opinn fund í vel­ferð­ar­nefnd sem hald­inn verður á morgun, mánu­dag. Í þætt­inum Sprengisandi á Bylgjunni í morgun gagn­rýnir Halldóra ráð­herra fyrir að hafa dregið það langt umfram lög­bund­inn frest, að gefa vel­ferð­ar­nefnd upp­lýs­ingar og nið­ur­stöður ráðu­neyt­is­ins í máli Braga. Þetta áréttar hún í Silfrinu.

„Halldóra segir að það sé rangt að ráð­herra hafi haft frum­kvæði að því að veita upp­lýs­ing­arnar, þvert á móti hafi þau verið þrjú sem köll­uðu eftir upp­lýs­ing­unum. Beðið var um öll gögn í máli umkvart­ana barna­vernd­ar­nefnda á höf­uð­borg­ar­svæð­inu vegna Braga, for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu, sem er í árs­leyfi. Upp­lýs­ing­arnar hafi aftur á móti komið mán­uði seinna,“ segir í frétt Vísis um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár