Loftslagsmálin muni yfirgnæfa öll önnur mál næstu áratugi

Fyrr­ver­andi rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins fjallar um lofts­lags­mál í pistli í Morg­un­blað­inu en þar segir hann að mann­fólkið verði að draga úr neyslu sinni í víð­tækum skiln­ingi þess orðs. Það sé stöðugt vax­andi neysla sem sé und­ir­rót vand­ans.

Styrmir Gunnarsson
Styrmir Gunn­ars­son Mynd: Hringbraut

Það fer ekki á milli mála, hvort sem við lítum til umræðna út í heimi um lofts­lags­mál eða hér heima, að sá mála­flokkur mun yfir­gnæfa öll önnur mál í þjóð­fé­lags­um­ræðum, ekki bara næstu ár heldur næstu ára­tugi.

Þetta skrifar Styrmir Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, í pistli sem ber tit­il­inn „Lofts­lags­málin verða stóru mál næstu ára og ára­tuga“ í sínu gamla blaði í dag.

Hann telur það smátt að smátt vera að skýr­ast um hvað lofts­lags­um­ræður muni snú­ast. „Kjarni þess boð­skapar, sem heyr­ist úr öllum áttum er, að mann­fólkið verði að draga úr neyzlu sinni í víð­tækum skiln­ingi þess orðs. Það sé stöðugt vax­andi neyzla, sem sé und­ir­rót vand­ans og þar á meðal ástæðan fyrir því að jökl­arnir á Íslandi eru ýmist að minnka eða hverfa.“

Meiri bylting á lífsháttum en við gerum okkur grein fyrir

Styrmir spyr sig enn fremur hvað felist í því að minnka neyslu. „Það er aug­ljóst að í því felst að við munum vega að því, sem í raun er und­ir­staða hag­kerfa sam­tím­ans, hvort sem þau eru byggð upp á einka­fram­taki og einka­eign eða kap­ít­al­ismi undir alræð­is­stjórnum eins og í Kína og Rúss­landi. Og hvaða áhrif mun það hafa á dag­legt líf okkar og þau sam­fé­lög, sem hafa verið byggð upp, þegar neyzlan á öllum sviðum dregst stór­lega saman?“ spyr hann.

Hann segir að senni­lega felist í því meiri bylt­ing á sam­fé­lögum og lífs­háttum en við höfum ímynd­un­ar­afl til að átta okkur á. En þess breyt­ing verði, þótt eldri kyn­slóðir muni ekki upp­lifa hana nema rétt á byrj­un­ar­stigi og muni sú breyt­ing hafa ýmis­legt fleira í för með sér.

Munu græningjarnir taka við?

En hverjir munu leiða þá breyt­ingu á hinum póli­tíska vett­vangi? Styrmir bendir á að „græn­ingj­arnir“ hafi verið að styrkja stöðu sína veru­lega í sumum Evr­ópu­löndum og hér á Íslandi heyr­ist jafn­vel raddir um að til geti orðið ný póli­tísk hreyf­ing græn­ingja vegna þess að VG sé líka að sumra mati á góðri leið með að missa tengslin við þann upp­runa sinn ekki síður en tengslin við bar­áttu alþýð­unnar á síð­ustu öld fyrir bættum kjörum.

Svo geti verið að hinir hefð­bundnu flokkar, sem sinnt hafa umhverf­is­málum minna en efni hafa staðið til, vakni upp við vondan draum og lagi sig að breyttum aðstæðum.

[links]

Framtíðin í höndum Gretu Thunberg okkar tíma

En hann telur þetta ekki ein­ungis snú­ast um flokkapóli­tík. „Lofts­lags­málin munu verða okkur hér á þess­ari eyju hvatn­ing til að verða sjálfum okkur nóg í rík­ara mæli en fram að þessu vegna þess að einn þáttur í að bregð­ast við lofts­lags­breyt­ingum er ein­fald­lega að það verður betri kostur að fram­leiða marg­vís­legan varn­ing og neyzluvörur hér heima fyrir en flytja þær til Íslands með þeim kostn­aði, sem því fylgir m.a. vegna lofts­lags­breyt­inga af þeim sökum,“ skrifar Styrmir.

Hann segir lofts­lags­breyt­ingar vera veru­leika, „sem við komumst ekki hjá að horfast í augu við“. Þeir sem á síð­ustu ára­tugum hafi reynt að gera lítið úr þeim vanda­málum, muni enda sem hjáróma raddir.

Styrmir telur jafn­framt að þær stjórn­mála­hreyf­ingar, sem taka ekki eftir því sem er að ger­ast í heim­inum og bregð­ast þess vegna ekki við, muni hverfa af sjón­ar­svið­inu. Fram­tíðin verði í höndum Gretu Thunberg okkar tíma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár