Lögregla fór gegn lögum er upplýsingum um Aldísi Schram var miðlað til Jóns Baldvins

Lög­reglu­stjór­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu braut gegn per­sónu­vernd­ar­lögum árið 2012 þegar Jón Baldvin Hanni­bals­son fékk afhentar upp­lýs­ingar um Aldísi Schram. Efni bréfs­ins sem hann fékk afhent stang­ast á við lög­reglu­gögn sem Aldís hefur undir höndum.

Lög­reglu­stjór­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu braut gegn þágild­andi lögum og reglu­gerð um vinnslu per­sónu­upp­lýs­inga þegar emb­ættið gaf út skjal með per­sónu­upp­lýs­ingum um Aldísi Schram þann 5. jan­úar 2012 og miðl­aði því til Jóns Baldvins Hanni­bals­sonar, föður hennar og fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra, sendi­herra og for­manns Alþýðu­flokks­ins. Þetta er nið­ur­staða Per­sónu­verndar.

Aldís sendi inn kvörtun vegna máls­ins til Per­sónu­verndar í maí árið 2019, en nokkrum mán­uðum fyrr hafði Jón Baldvin vísað til þessa bréfs í sjón­varps­við­tali og birt það í heild sinni í blaða­grein. Úrskurður var kveð­inn upp 27. ágúst 2020 og hefur verið birtur á vef Per­sónu­verndar. Kjarninn hefur fengið stað­fest­ingu á því um hvaða til­vik málið snýst, frá Aldísi sjálfri, sem fékk úrskurð­inn í hendur um miðjan sept­em­ber.

Í bréf­inu, sem und­ir­ritað var af Herði Jóhann­essyni þáver­andi aðstoð­ar­lög­reglu­stjóra hjá emb­ætt­inu, kom fram að lög­regla hefði „haft afskipti“ af Aldísi eða „sinnt verk­efnum vegna hennar“ nokkrum sinnum á und­an­förnum árum. Einnig sagði þar að Bryndís Schram og Jón Baldvin Hanni­bals­son hefðu „aldrei kallað á lög­reglu eða beðið lög­reglu um aðstoð af neinu tagi“ vegna Aldísar.

Efn­is­at­riði bréfs­ins stang­ast á við gögn sem Aldís hefur látið Kjarn­anum í té. Samkvæmt mála­skrá lög­reglu hafði lög­regla afskipti af Aldísi 9. apríl árið 1998 og var það mál flokkað sem „aðstoð við erlend sendi­ráð“ í bókum lög­reglu, en Jón Baldvin var á þeim tíma sendi­herra Íslands í Banda­ríkj­unum.

Heimsókn lögreglu á heimili Aldísar 9. apríl 1998 er skráð sem aðstoð við erlend sendiráð í bókum lögreglu.
Heimsókn lög­reglu á heim­ili Aldísar 9. apríl 1998 er skráð sem aðstoð við erlend sendi­ráð í bókum lög­reglu.

Einnig segir í færslu úr dag­bók lög­reglu, 13. apríl árið 2002, að Bryndís Schram hafi hringt í lög­reglu og sagst ætla að senda fax með ósk að eft­ir­grennslan eða leit að dóttur sinni. Þann sama dag sætti Aldís hand­töku, í kjöl­far þess að hún til­kynnti meint kyn­ferð­is­brot Jóns Baldvins til lög­reglu.

Í dagbók lögreglu frá 13. apríl 2002 segir að Bryndís Schram hafi hringt og sagst ætla að senda fax til lögreglu með beiðni um eftirgrennslan eða leit að Aldísi.
Í dag­bók lög­reglu frá 13. apríl 2002 segir að Bryndís Schram hafi hringt og sagst ætla að senda fax til lög­reglu með beiðni um eft­ir­grennslan eða leit að Aldísi.

Eftir hand­tök­una sætti hún nauð­ung­ar­vistun að beiðni Jóns Baldvins, sem skrifuð var á bréfs­efni sendi­ráðs Íslands í Washington.

Beiðni Jóns Baldvins Hannibalssonar um nauðungarvistun dóttur sinnar, dagsett 12. apríl 2002.
Beiðni Jóns Baldvins Hanni­bals­sonar um nauð­ung­ar­vistun dóttur sinnar, dag­sett 12. apríl 2002.

Engin heimild til að miðla þessum upplýsingum

Samkvæmt úrskurði Per­sónu­verndar er ekki hægt að líta svo á að lög­regla hafi haft heim­ild til þess að fara með per­sónu­upp­lýs­ingar Aldísar með þeim hætti sem gert var í umrætt sinn. Einnig segir að að vinnslan hafi ekki farið fram með sann­gjörnum, mál­efna­legum og lög­mætum hætti, sam­kvæmt skiln­ingi þágild­andi laga um per­sónu­vernd.

Í úrskurð­inum segir að leggja verði til grund­vallar að ein­stak­lingar megi almennt treysta því að upp­lýs­ingum sem lög­regla skráir um þau verk­efni sem hún sinnir verði ekki miðlað til óvið­kom­andi aðila, eins og gert var gert í þessu til­viki.

Lögregla gat ekkert svarað fyrir málið

Við með­ferð máls­ins óskaði Per­sónu­vernd eftir sjón­ar­miðum frá emb­ætti lög­reglu­stjór­ans á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, en þaðan var fátt um svör. Embættið sagði í svar­bréfi sínu til Per­sónu­verndar að umrætt bréf og þau gögn sem útgáfa þess byggði á hefðu ekki verið varð­veitt í skjala­vörslu­kerfi emb­ætt­is­ins.

Aldís Schram flytur hér ræðu á Druslugöngunni árið 2019.
Aldís Schram flytur hér ræðu á Druslu­göng­unni árið 2019.

Því hefði emb­ættið ekki til­tækar upp­lýs­ingar um for­sendur afgreiðsl­unnar og gæti af þeim sökum ekki tekið afstöðu til beiðni Per­sónu­verndar um upp­lýs­ingar um málið.

Með öðrum orðum, emb­ættið hefur engar skrá­settar upp­lýs­ingar um það af hverju aðstoð­ar­lög­reglu­stjóri gaf út skrif­legt vott­orð um Aldísi og miðl­aði til Jóns Baldvins í upp­hafi árs 2012.

Ekki tilefni til að bregðast sérstaklega við núna 8 árum seinna

Kjarninn sendi fyr­ir­spurn á Höllu Bergþóru Björns­dóttur, lög­reglu­stjóra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, vegna nið­ur­stöðu Per­sónu­verndar. Í svari sem barst frá emb­ætt­inu segir meðal ann­ars að „[þ]egar málið var afgreitt árið 2012 hefði, í sam­ræmi við lög og ferla emb­ætt­is­ins, átt að vista umrædd bréfa­skipti í mála­skrá emb­ætt­is­ins.“

Í svari emb­ætt­is­ins segir einnig að búið sé að fara yfir umræddan úrskurð Per­sónu­verndar. Tekið er fram að á þeim 8 árum sem liðin eru síðan atvik máls áttu sér stað hafi átt sér stað „mikil vinna við breyt­ingar er varðar afgreiðslu á málum af þessu tagi“ og að emb­ættið hafi það mark­mið að farið sé með per­sónu­upp­lýs­ingar í sam­ræmi við þau grund­vall­ar­sjón­ar­mið sem koma fram í úrskurði Per­sónu­verndar, sem og reglur um per­sónu­vernd og frið­helgi einka­lífs.

Embættið seg­ist einnig hafa farið yfir málið á sínum tíma og að það hafi einnig verið til með­ferðar hjá emb­ætti Hér­aðs­sak­sókn­ara, en þangað kærði Aldís málið áður en hún beindi kvörtun til Per­sónu­verndar. „Í því ljósi og þess að margt hefur breyst á þeim 8 árum síðan atvik áttu sér stað, m.a. í afgreiðslu mála af þessu tagi, telur emb­ættið ekki til­efni til að bregð­ast frekar við, umfram það að hafa alla ferla emb­ætt­is­ins í sífelldri end­ur­skoðun,“ segir í svari emb­ætt­is­ins, sem má lesa í heild sinni hér að neðan.

Jón Baldvin teflir vottorðinu fram

Sem áður segir snýst þetta mál um bréf sem Hörður Jóhann­es­son þáver­andi aðstoð­ar­lög­reglu­stjóri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu skrif­aði undir í upp­hafi árs 2012 og Jón Baldvin hefur undir höndum. Er bréfið var gefið út var Stefán Eiríks­son, núver­andi útvarps­stjóri, lög­reglu­stjóri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Jón Baldvin hefur teflt þessu bréfi fram sem vott­orði þegar hann hefur verið að verj­ast ásök­unum Aldísar og fleiri kvenna í sinn garð á opin­berum vett­vangi. Hann vís­aði bæði til þess í við­tali í Silfrinu 3. febr­úar 2019 og í grein í Morg­un­blað­inu fjórum dögum síðar. Í grein sinni í Mogganum rit­aði Jón Baldvin bréfið orð­rétt upp.

Þetta bréf frá lög­reglu er vænt­an­lega á meðal gagna í meið­yrða­máli sem Jón Baldvin rekur nú gegn Aldísi dóttir sinni og Sigmari Guð­munds­syni dag­skrár­gerð­ar­manni á RÚV, en meið­yrða­málið var höfðað vegna við­tals sem Sigmar og Helgi Seljan tóku við Aldísi Schram í Morg­un­út­varp­inu á Rás 2 í jan­úar árið 2019.

Jón Baldvin Hannibalsson hefur teflt vottorðinu sem hann fékk frá lögreglu árið 2012 fram er hann hefur verið að verjast ásökunum í sinni garð.
Jón Baldvin Hanni­bals­son hefur teflt vott­orð­inu sem hann fékk frá lög­reglu árið 2012 fram er hann hefur verið að verj­ast ásök­unum í sinni garð.

Í við­tal­inu sak­aði Aldís Jón Baldvin meðal ann­ars um að hafa beitt áhrifum sínum sem sendi­herra gagn­vart yfir­völdum og lög­reglu til þess að þrýsta á um að hún yrði vistuð á geð­deild gegn vilja sínum.

Jón Baldvin og Bryndís vís­uðu ítrekað til þessa lög­reglu­vott­orðs í grein sem birt­ist í Morg­un­blað­inu 13. febr­úar 2019, þar sem þau röktu 14 meintar rang­færslur sem hefðu komið fram í við­tal­inu og fóru fram á afsök­un­ar­beiðni frá útvarps­stjóra, dag­skrár­gerð­ar­mönnum og Aldísi sjálfri, ann­ars yrði mál höfðað.

Aldís Schram segir í skrif­legri yfir­lýs­ingu til Kjarnans vegna máls­ins að henni þyki skondið að Jón Baldvin hafi sjálfur fært sér í hendur þetta „sönn­un­ar­gagn um ólög­mæt vinnu­brögð Stefáns Eiríks­sonar, fyrr­ver­andi lög­reglu­stjóra og Harðar Jóhann­es­sonar, aðstoð­ar­lög­reglu­stjóra hans,“ í hendur, er hann birti það í heild sinni í Morg­un­blað­inu 7. febr­úar í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár