Fjögur hlé á þingstörfum dag - Samningaviðræður bak við tjöldin

Stjórn og stjórn­ar­and­staða reyna nú að ná sáttum um með­ferð veiði­gjalda­frum­varps­ins. Gera hefur þurft hlé á þing­fundi fjórum sinnum í dag meðan fundað er um málið. Stjórn­ar­and­staðan hyggst reyna að kæfa málið náist ekki sátt.

Hlé hefur verið gert á þing­fundi fjórum sinnum í dag til að rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir og stjórn­ar­and­staðan geti fundað um áfram­hald­andi þing­störf og freistað þess að ná sáttum.

[links]Heim­ildir Kjarnans herma að verið sé að reyna að semja um hvernig fara eigi með veiði­gjalda­frum­varpið, sem lagt var fram flestum að óvörum í lok síð­ustu viku. Þar er gert ráð fyrir því að heim­ild til töku veiði­gjalda yfir höfuð verði fram­lengd, hún byggi á afkomu nýlið­ins árs en ekki þriggja ára aftur í tím­ann, sem mun þýða 1,7 millj­arða króna lækkun gjald­anna sem greið­ast eiga á þessu alm­an­aks­ári og þar að auki gef­inn afsláttur til minni útgerða.

Stemmn­ingin á þing­inu er eld­fim, stjórn­ar­and­staðan hefur þannig verið afar harð­orð um veiði­gjalda­frum­varpið, sem lagt var fram af meiri­hluta atvinnu­vega­nefnar. Vilja stjórn­ar­and­stöðuliðar meina að mestur hluti lækk­un­ar­innar muni gagn­ast stærri útgerð­unum best.

Fyrir þing­inu, búið er að sam­þykkja að starfi lengur en sam­kvæmt starfs­á­ætlun, liggja nokkur afar umfangs­mikil mál. Per­sónu­vernd­ar­frum­varp­ið, veiði­gjalda­málið og einnig síð­ari umræða um fjár­mála­á­ætl­un. Öll málin munu krefj­ast mik­illar umræðu og herma heim­ildir Kjarn­ans að stjórn­ar­and­staðan sé nokkuð sam­stillt þegar kemur að áætl­unum um að kæfa hækkun veiði­gjalds­ins, jafn­vel með mál­þófi. Fleiri mál eru eft­ir, mis­um­fangs­mik­il, eins og til dæmis umræða um Byggða­á­ætlun næstu fimm ára.

Öll málin verða að klár­ast á þessu þingi. Núgild­andi veiði­gjalda­á­kvæði renna út þann 31. ágúst næst­kom­andi og verði ekk­ert gert þýðir það að engin veiði­gjöld verða inn­heimt síð­ustu fjóra mán­uði árs­ins. Per­sónu­vernd­ar­frum­varp­ið, sem er 147 blað­síður að lengd, er inn­leið­ing á Evr­ópu­lög­gjöf sem er hluti af EES-­samn­ingn­um. Evr­ópsku regl­urnar hafa þegar tekið gildi sem þýðir að það liggur á að taka þær upp í íslenskan rétt. Seinni umræða um fjár­mála­á­ætl­un­ina er síðan lög­bund­in, en þyrfti tækni­lega séð ekki að taka svo langan tíma - þó lík­legra sé að svo verði og færa megi rök fyrir að slíkt sé fag­legra en hitt.

Heim­ildir Kjarn­ans herma einnig að þing­menn von­ist til að hægt verði að ljúka þing­störfum fyrir þjóð­há­tíð­ar­dag­inn 17. júní.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár