Veiðigjöldin aðgöngumiði að auðlindinni - ekki bara skattur

For­sæt­is­ráð­herra sagð­ist skilja gagn­rýni stjórn­ar­and­stöð­unnar en átti von á meiri sátt í umræðum á þing­inu. Fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra sagði grein­ina vel rekna og verið væri að lækka gjöldin á þá stærstu og best stæðu.

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra og for­maður Við­reisnar sagði að ekki væri hægt að afkomu­tengja veiði­gjöldin að öllu leyti. Hún líti á þau sem aðgangs­miða útgerð­anna að sam­eig­in­legri auð­lind þjóð­ar­innar, ekki bara skatt. Því væri ekki hægt að afkomu­tengja þau alfarið.

[links]Þetta kom fram í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi í dag, þar sem Þor­gerður spurði Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­hera út í frum­varp meiri­hluta atvinnu­vega­nefndar sem meðal ann­ars mun leiða til þess að tekjur af veiði­gjöldum munu lækka um 1,7 millj­arð króna.

Þor­gerður spurði for­sæt­is­ráð­herra hvort til greina komi að afgreiða frum­varpið í meiri sátt, þetta frum­varp væri seint fram komið og ætti að „keyra ofan í kokið“ á stjórn­ar­and­stöð­unni. Lagði hún til að núver­andi veiði­gjöld yrðu fram­lengd, per­sónu­af­sláttur fyrir minni sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækin hækk­aður og síðan yrði nýtt fyr­ir­komu­lag rætt í haust.

Katrín sagð­ist skilja mæta­vel þá gagn­rýni stjórn­ar­and­stöð­unnar að frum­varpið, sem fæli í sér svo miklar breyt­ingar, kæmi inn í þingið með svo skömmum fyr­ir­vara og þess vegna hafi hún boðað til fundar með for­mönnum flokk­anna til að ræða fram­haldið. Katrín sagð­ist reiðu­búin til að fara yfir hvort að unnt sé að skapa meiri sátt um máls­með­ferð þessa máls, svona breyt­ingar auð­vitað kalli á umræðu.

Katín sagð­ist þó hafa átt von á því að hægt væri að ná meiri samtöðu um mark­miðin sem birt­ist í frum­varp­inu, sem væri að að færa útreikn­ing veiði­gjald­anna nær raun­tíma. Hún sagð­ist telja að gjöldin ættu að vera afkomu­tengd og miða við nýj­ustu útreikn­inga, sem sýni að afkoman hafi versnað veru­lega.

Þor­gerður mót­mælti þessu eins og áður greinir, sagð­ist ósam­mála því að afkomu­tengja eigi veiði­gjöldin að öllu leyti. Hún sagði sjáv­ar­út­veg­inn í grunn­inn vel rek­inn og vel stæða atvinnu­grein, þó að afkoman hafi versnað að litlu leyti. Þetta frum­varp snúi helst að því að lækka veiði­gjöld þeirra best stæðu og stærstu. Tuttugu stærstu útgerð­irnar munu fá 80 pró­sent af lækkun gjald­anna.

Áður hafði Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, deilt á lækkun gjald­anna í fyr­ir­spurn sinni til Svan­dísar Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra. Þar spurði hún ráð­herra um ákvörðun lyfja­nefndar Land­spít­al­ans að neita sex ára dreng með ólækn­andi vöðva­hrörn­un­ar­sjúk­dóm um nauð­syn­leg lyf.

Inga sagði það kosta 50 millj­ónir að gefa drengnum lyfið. „Það er of mikið. En það var ekki of mikið að lækka tekju­skatt­inn um 1% fyrir 14 millj­arða, ekki of mikið að lækka banka­skatt­inn fyrir 7 millj­arða og það er ekki of mikið að kalla núna á lækkun veiði­gjalda upp á tæpa 3 millj­arða. En það er of mikið að hjálpa þessum litla dreng af því að það kostar of mikla pen­inga.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

veiðigjöld

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár