Álögð veiðigjöld námu tæpum 4,8 milljörðum króna í fyrra

Stærstu sextán gjald­end­urnir í íslenskum sjáv­ar­út­vegi greiddu alls þrjá millj­arða af þeim tæpu 4,8 mill­ljörðum sem greidd voru í veiði­gjöld vegna nýt­ingar sjáv­ar­auð­lind­anna á síð­asta ári.

Alls greiddu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki lands­ins tæpa 4,8 millj­arða króna í veiði­gjöld vegna árs­ins 2020. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu á vef Fiski­stofu í dag. Álagn­ingin fyrir árið 2020 er um 1,8 millj­örðum lægri en fyrir árið 2019 og 6,5 millj­örðum lægri en hún var árið 2018, þegar álögð veiði­gjöld námu 11,3 millj­örðum króna.

Samkvæmt til­kynn­ingu Fiski­stofu er Brim hf. það útgerð­ar­fé­lag sem greiðir hæst veiði­gjöld fyrir árið 2020, eða 367 millj­ónir króna. Næst á lista eru Samherji Ísland ehf., Þorbjörn hf., og Skinney-Þinganes hf., en alls greiddu 16 stærstu gjald­end­urnir um 3 millj­arða króna í veiði­gjöld á árinu 2020.

Alls greiddu 934 aðilar veiði­gjöld árið 2020, lang­flestir yfir sum­ar­tím­ann vegna strand­veiða. Í jan­úar 2020 voru um 150 gjald­endur sem greiddu veiði­gjöld, en þau eru lögð á mán­að­ar­lega.

Áætluð veiðigjöld 7,5 milljarðar árið 2021

Ný lög um veiði­gjald tóku gildi í byrjun árs 2019 þar sem meðal ann­ars var settur nýr reikni­stofn sem bygg­ist á afkomu við veiðar hvers nytja­stofns.

[adspot]

Samkvæmt þeim er veiði­gjaldið nú ákveðið fyrir alm­an­aksár í stað fisk­veiði­ár­s og veiði­gjöldin sem greidd voru í fyrra og þau sem fjallað er um hér byggja á afkomu árs­ins 2018 í grein­inni.

Áætluð veiði­gjöld árs­ins 2021, sem byggja á afkomu sjáv­ar­út­vegs árið 2019, eru áætluð um 7,5 millj­arðar króna. Samkvæmt því sem fram kom í kynn­ingu á Sjáv­ar­út­vegs­deg­inum síð­asta haust högn­uð­ust íslensk sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki um 43 millj­arða króna á árinu 2019.[links]

Það er um 60 pró­sent meiri hagn­aður en var af rekstri þeirra árið á undan þegar hann var 27 millj­arðar króna. Alls nam hagn­aður fyr­ir­tækj­anna 197 millj­örðum króna á fimm ára tíma­bili, frá byrjun árs 2015 og út árið 2019. Á sama tíma­skeiði greiddu félögin 43 millj­arða króna í tekju­skatt.

Sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækin í land­inu áttu eigið fé upp á 297 millj­arða króna í lok árs 2018. Frá hruni og fram að þeim tíma batn­aði eig­in­fjár­staða þeirra um 376 millj­arða króna, en hún var nei­kvæð í lok árs 2008.

Alls greiddu fyr­ir­tækin sér arð upp á 10,3 millj­arða króna árið 2019, en frá árinu 2010 höfðu þau greitt 103,2 millj­arða króna til eig­enda sinna í arð­greiðslur. Hagur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­anna hafði því vænkast um 479,2 millj­arða króna frá hruni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

veiðigjöld

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár