Ætla í málþóf vegna veiðigjalda

Heim­ildir Kjarnans herma að stjórn­ar­and­staðan muni hægja eins og kostur gefst á dag­skrá þings­ins, í raun fara í mál­þóf til að koma í veg fyrir að veiði­gjöldin kom­ist til umræðu. Verði sam­þykkt að halda kvöld­fund ætlar and­staðan að tala inn í nótt­ina.

Stjórn­ar­and­staðan var allt annað en sátt við dag­skrá rík­is­stjórn­ar­innar í dag og mót­mælti henni harð­lega. Þannig er á dag­skránni, nú þremur dögum fyrir þing­lok, nýtt frum­varp um lækkun veiði­gjalda auk nýrrar per­sónu­vernd­ar­reglu­gerðar og ann­arra mála. Gert var hlé á þing­fundi til klukkan 14:00 til að reyna að ná sáttum um dag­skrá. Á dag­skránni eru 10 atriði á undan veiði­gjöld­unum.

[links]Heim­ildir Kjarnans herma að stjórn­ar­and­staðan muni hægja eins og kostur gefst á dag­skránni, í raun fara í mál­þóf til að koma í veg fyrir að veiði­gjöldin kom­ist til umræðu. Verði sam­þykkt að halda kvöld­fund ætlar and­staðan að tala inn í nótt­ina.

Oddný Harð­ar­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, krafð­ist þess að veiði­gjöldin yrðu tekin af dag­skrá. Um stórpóli­tískt mál væri að ræða. „Það er verið að tala um að lækka veiði­gjöldin um tæpa 3 millj­arða kr. Rík­is­stjórnin treystir sér ekki til þess að fara með málið í gegnum þing­flokka og hér inn í þing­sal og lætur þing­menn í atvinnu­vega­nefnd bera það hingað inn. Satt að segja, herra for­seti, er það að setja málið hér á dag­skrá eins og blaut tuska framan í okkur þing­flokks­for­menn sem höfum unnið eftir ákveðnu sam­komu­lagi þegar kemur að þing­manna­málum. Það er verið að brjóta það kirfi­lega. Það er óásætt­an­legt. Við munum ekki taka það í mál að svona sé komið fram við þingið og þing­flokks­for­menn. Málið verður ekki á dag­skrá þings­ins í dag,“ sagði Oddný.

Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti þings­ins, ítrek­aði þá að málið sé sann­ar­lega á dag­skrá þings­ins. „Forseti ákveður dag­skrá.“ Hann sagð­ist líta svo á að þegar meiri­hluti í þing­nefnd telji brýnt að takast á við til­tekin mál þegar frum­vörp þar um eru lögð fram.

Gunnar Bragi Sveins­son, þing­flokks­for­maður Mið­flokks­ins, sagði dag­skrá þings­ins ekki í neinu sam­ræmi við það sem unnið hafi verið eftir und­an­farnar vikur og mán­uði. „Í fyrsta lagi verð ég að segja að þegar farið var inn í hléið fyrir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar var gert sam­komu­lag um að ákveðin mál yrðu afgreidd úr nefnd. Ég spyr for­seta: Hvers vegna er ekki staðið við það?“

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata, sagði hér um að ræða enn eitt málið sem fái óeðli­lega máls­með­ferð án sam­ráðs, án sam­komu­lags, í þessu þingi í krafti meiri­hluta þings sem lof­aði því að efla Alþingi. „Forseti setur ofan í við hátt­virtan þing­mann Oddnýju Harð­ar­dóttur og seg­ist hafa dag­skrár­valdið hér, sem er alveg rétt, en ég vil minna hæst­virtan for­seta á að hann skal hafa sam­ráð við þing­flokks­for­menn sem ekki var gert um þetta mál. For­sætis­nefnd kemur þar að líka. Ég hefði haldið að þegar komið er að dag­skránni á þing­inu ynnum við að henni í sam­ein­ingu og gætum kannski talað út um málin áður við þröngv­uðum stórpóli­tískum málum í gegn korteri fyrir þing­lok án nokk­urs sam­ráðs eða sam­komu­lags og þvert á það sem sagt hefur verið.“

Helga Vala Helga­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, sagði það ótrú­lega stöðu að henda inn við­líka sprengju eins og nú hafi verið gert af hálfu meiri­hluta atvinnu­vega­nefndar. „Það vita allir hvers konar póli­tísk sprengja þetta er. Við for­mann atvinnu­vega­nefndar vil ég segja, vegna þess að hún útskýrir þetta með því að útgerðin sé komin að þol­mörkum, að fleiri eru komnir að þol­mörkum. Öryrkjar eru komnir að þol­mörkum. Heil­brigð­is­kerfið er komið að þol­mörkum. Vegirnir okkar eru komnir að þol­mörkum. Lög­reglan og fleiri og fleiri. Af hverju er hugsa hæst­virtir þing­menn Vinstri grænna ekki um það? Hvernig stendur á því að hæst­virtir þing­menn hugsa fyrst um útgerð­ina en ætla enn einu sinni að gleyma barna­fjöl­skyldum og öryrkjum?“

Full­trúar stjórn­ar­and­stöð­unnar komu síðan hver á fætur öðrum upp í pontu til að lýsa óánægju sinni um þessi vinnu­brögð atvinnu­vega­nefndar og for­seta þings­ins og er enn að.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár