Veiðigjöldin tekin fyrir á morgun

Þingmenn von­ast til að þingið starfi ekki lengur en til 17. júní. Eld­hús­dags­um­ræður verða í kvöld en mörg stór mál bíða afgreiðslu, þar á meðal veiði­gjöldin, ný lög um per­sónu­vernd og seinni umræða um fjár­mála­á­ætlun.

Fyrir þing­inu, sem á sam­kvæmt starfs­á­ætlun aðeins þrjá þing­fundi eftir, liggja nokkur afar umfangs­mikil mál. Per­sónu­vernd­ar­frum­varpið, veiði­gjalda­málið og einnig síð­ari umræða um fjár­mála­á­ætlun. Öll málin munu krefj­ast mik­illar umræðu, og þá sér í lagi veiði­gjalda­frum­varpið sem er sér­stak­lega umdeilt og herma heim­ildir Kjarnans að stjórn­ar­and­staðan sé nokkuð sam­stillt þegar kemur að áætl­unum um að kæfa hækkun veiði­gjalds­ins, jafn­vel með mál­þófi. Fleiri mál eru eftir, mis­um­fangs­mikil, eins og til dæmis umræða um Byggða­á­ætlun næstu fimm ára.

[links]Heim­ildir Kjarnans herma einnig að allir þing­menn geri sér grein fyrir að lengja þurfi yfir­stand­andi þing, en von­ast er til að hægt verði að ljúka því fyrir þjóð­há­tíð­ar­dag­inn 17. júní.

Öll málin verða að klár­ast á þessu þingi. Núgild­andi veiði­gjalda­á­kvæði renna út þann 31. ágúst næst­kom­andi og verði ekk­ert gert þýðir það að engin veiði­gjöld verða inn­heimt síð­ustu fjóra mán­uði árs­ins. Per­sónu­vernd­ar­frum­varpið, sem er 147 blað­síður að lengd, er inn­leið­ing á Evr­ópu­lög­gjöf sem er hluti af EES-samn­ingnum. Evrópsku regl­urnar hafa þegar tekið gildi sem þýðir að það liggur á að taka þær upp í íslenskan rétt. Seinni umræða um fjár­mála­á­ætl­un­ina er síðan lög­bundin, en þyrfti tækni­lega séð ekki að taka svo langan tíma - þó lík­legra sé að svo verði og færa megi rök fyrir að slíkt sé fag­legra en hitt.

Ráðgert er að taka veiði­gjalda­frum­varpið fyrir á morgun, en það var ákveðið á fundi þing­flokks­for­manna með Stein­grími J. Sig­fús­syni for­seta Alþingis í morgun.

Eld­hús­dags­um­ræður á Alþingi fara fram í kvöld og hefj­ast klukkan 19.30. Þrír þing­menn frá hverjum flokki munu taka til máls.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár