Danir eru þriðju mestu kaffisvelgir í heimi

Ef Íslend­ingar væru spurðir hvað ein­kenni Dani myndu margir nefna bjór, rauðar pylsur og „smör­rebröd“. Fæstir myndu minn­ast á kaffi, eitt helsta þjóð­ar­ein­kenni Íslend­inga. En það drekka margar aðrar þjóðir mikið kaffi. Þar á meðal Danir.

Samkvæmt upp­lýs­ingum sam­taka evr­ópskra kaffi­fram­leið­enda eru Finnar mestu kaffi­þambarar í Evrópu (12 kíló á mann á ári), síðan koma Aust­ur­rík­is­menn (9 kíló) og Danir eru í þriðja sæti í kaffi­n­eysl­unni (8.6 kíló). Meðaltal í Evrópu er 4 kíló á mann. Rétt er að taka fram að Lux­em­borg og Ísland eru ekki með í þessum tölum, vegna smæðar.

Samkvæmt upp­lýs­ingum sam­taka danskra kaffi­fram­leið­enda hefur sala á kaffi í versl­unum dreg­ist nokkuð saman en við­skipta­vinir sækj­ast í auknum mæli eftir dýr­ara kaffi en áður. Kaffi­lögun í heima­húsum hefur minnkað um 22 pró­sent á nokkrum árum en hins vegar hafa við­skiptin á kaffi­húsum, bens­ín­stöðvum og ýmsum stöðum sem selja „kaffi á fart­inni“ (coffee to go) marg­fald­ast. Venju­legt danskt heim­ili ver að jafn­aði 1200 krónum (tæpum 19 þús­und íslenskum krónum) á ári til kaupa á kaffi sem notað er á heim­il­inu. Samtals tæp 24 þús­und tonn á síð­asta ári sem er ívið minna en árið áður. Sala á svo­nefndu skyndi­kaffi (instant) jókst um tæp 3 pró­sent , sala á líf­rænt rækt­uðu kaffi jókst líka um 3 pró­sent.

Kaffifróðari og kröfuharðari kúnnar

Fyrir nokkrum árum bauð Coop, sem er næst stærsta versl­ana­sam­steypa Dan­merkur, 200 mis­mun­andi kaffi­vörur en nú eru kaffi­vör­urnar í boði hjá Coop 400 tals­ins. Kaffi­sér­fræð­ingur Coop segir að kröfur við­skipta­vin­anna auk­ist stöðugt, nú sé ekki lengur spurn­ing um gróf- eða fínmalað, mikið eða lítið ristað eins og áður var. „Kaffi er ekki lengur bara kaffi“.

„Fínni frúr“ drukku kaffi á átjándu öld

Kaffi barst fyrst til Dan­merkur laust upp úr 1660. Kaffi­drykkja varð ekki strax útbreiddur siður en í heim­ildum má lesa að „fínni frúr“ hefðu hist til að drekka kaffi og spjalla á átj­ándu öld. Kaffi­drykkja varð smám saman útbreidd­ari meðal Dana og þegar kom fram undir síð­ari heims­styrj­öld voru Danir komnir í hóp mestu kaffi­þjóða heims. Nokkuð dró úr kaffi­drykkj­unni á stríðs­ár­unum, fram­boð af kaffi var tak­markað og þótt margir létu sig hafa það að drekka kaffi sem gert var úr sikkor­í­rót (Íslend­ingar köll­uðu þetta ýmist export eða kaffi­bæti, rót­sterkt var sagt) jafn­að­ist það ekki á við alvöru og ekta kaffi. Eftir að stríð­inu lauk jókst kaffi­n­eyslan á ný.

Madam Blå

Ekki er hægt að fjalla um kaffi­drykkju Dana án þess að minn­ast á fræg­ustu kaffi­könnu sem sögur fara af, í Danmörku. Þetta er Madam Blå, eins og hún var kölluð. Blá kanna, emileruð með sveigðum stút og kaffi­pok­inn úr bóm­ull, fjöl­nota. Vatnið hitað í katli eða potti og svo hellt yfir kaffið í pok­anum, sem gjarna var gerður úr gömlum nær­bol. Þessi kaffi­kanna, sem var fram­leidd í Danmörku kom á mark­að­inn árið 1895, og seld­ist vel. Árið 1900 voru dag­lega fram­leiddar 1000 könnur! Kannan var fáan­leg í 18 stærðum, sú minnsta fyrir 1 bolla, sú stærsta 50 bolla. Fram­leiðsl­unni á Madam Blå var hætt árið 1966 en þá voru sjálf­virkar upp­á­hell­inga­könnur, einsog þær voru kall­aðar, orðnar algengar. Það var þýska fyr­ir­tækið Wigoman sem árið 1954 fram­leiddi fyrstu sjálf­virku könn­urnar þar sem raf­magns­el­em­ent hit­aði vatnið. Nokkrum árum síðar komu svo stimp­il­könn­urnar, eða pressukönn­urnar, svo­nefndu. Madam Blå könnur eru í dag safn­gripir og gjarna hafðar á hillum í eld­húsi, til skrauts.

Kaffibylting

Óhætt er að segja að á síð­ustu fimmtán til tutt­ugu árum hafi orðið hálf­gerð kaffi­bylt­ing. Ótelj­andi teg­undir kaffi­véla hafa komið á mark­að­inn. Sumar mala baun­irnar og hita mjólk­ina og nýjasta nýtt í þessum efnum eru hinar svo­nefndu Nes­presso vélar, þar er kaffið í formi síróps í litlum álboxum, margar bragð­teg­undir. Upp­á­hell­ing­ar­vél­arnar hafa þó alltaf átt sína dyggu aðdá­endur og þrátt fyrir allar nýj­ung­arnar hefur sala á þeim auk­ist mikið að und­an­förnu.

Helmingur Dana vill uppáhellt

Í nýlegri danskri könnun kom í ljós að 52 pró­sent Dana vilja helst upp­á­hellt kaffi, 15 pró­sent vilja kaffi úr pressukönnu, 12 pró­sent vilja helst expresso­kaffi úr þartil­gerðri vél, 11 pró­sent eru hrifn­ust af álboxa­kaff­inu (nes­presso) og 8 pró­sent vilja duft­kaffi (nes­kaffi) 2 pró­sent höfðu enga skoðun.

Þrír af hverjum fjórum Dönum drekka kaffi, aðeins fleiri karlar en konur eru í þeim hópi. Að jafn­aði drekka Danir fjóra kaffi­bolla dag­lega. Í könnun um kaffi­drykkju­venjur var spurt „ef þú mættir ein­ungis drekka einn kaffi­bolla á dag, hvaða tíma dags mund­irðu velja.“ Helm­ingur Dana svar­aði því til að þá yrði morg­un­inn fyrir val­inu. Fimmti hver Dani drekkur kvöld­kaffi, íbúar Vestur-Jótlands eru meira fyrir kvöldsopann en fólk í öðrum lands­hlutum. Helm­ingur Dana drekkur kaffið svart og syk­ur­laust.

Loks má geta þess að í fyrra seld­ust tæp­lega 230 þús­und kaffi­vélar í Danmörku, örlítið fleiri en árið áður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár