Félag Róberts Wessman vill reka þrjá nýja leikskóla

Lyfja­fyr­ir­tækið Alvotech vill bregð­ast við leik­skóla­vanda starfs­manna sinna með því að byggja upp þrjá nýja leik­skóla á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í sam­starfi við fast­eigna­fé­lagið Heima. Félagið Flóki Invest og Heimar hafa und­ir­ritað vilja­yf­ir­lýs­ingu um þessa upp­bygg­ingu.

Félag í eigu Róberts Wessman og fast­eigna­fé­lagið Heimar kynna í dag að þau hafi vilja til þess að byggja upp og reka þrjá nýja leik­skóla á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Í til­kynn­ingu segir að stað­setn­ingin verði ákveðin í „sam­ráði við sveit­ar­fé­lög og hags­muna­að­ila“ en að hugs­unin sé að hver leik­skóli taki við 50-100 börnum.

„Mark­miðið er að hefja upp­bygg­ingu á fyrsta árs­fjórð­ungi 2025 og að leik­skól­arnir verði komnir í rekstur á næstu þremur til fimm árum,“ segir í til­kynn­ing­unni, sem barst fjöl­miðlum frá upp­lýs­inga­full­trúa Alvotech. 

Þar segir að fast­eigna­fé­lagið Heimar, sem áður hét Reginn og er leitt af Halldóri Benjamín Þor­bergs­syni muni ann­ast upp­bygg­ingu og rekstur fast­eign­anna sem leik­skól­arnir verði reknir í, en að félag innan Azteq -sam­stæð­unnar, Flóki Invest, muni sjá um að afla rekstr­ar­leyfa, semja við sveit­ar­fé­lög og reka leik­skól­ana. 

Í til­kynn­ingu segir að það hafi orðið nið­ur­staða Alvotech að besta leiðin til að leysa leik­skóla­vanda starfs­manna sinna …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÞTÞ
    Þóroddur Tryggvi Þórhallsson skrifaði
    Aumingjaskapur borgarstjórnar er að gefa græðgisvöldunum aðgang að almenningi til að græða á honum .
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár