Samtökin '78 fá fimmtán milljónir til að sinni sértækri fræðslu, þjónustu og ráðgjöf

For­sæt­is­ráðu­neytið og Samtökin '78, hags­muna- og bar­áttu­sam­tök hinsegin fólks á Íslandi, hafa gert með sér samn­ing um að sam­tökin sinni sér­tækri fræðslu, þjón­ustu og ráð­gjöf er varða mál­efni hinsegin fólks.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, ásamt Maríu Helgu Guðmundsdóttur, formanni Samtakanna '78
Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra, ásamt Maríu Helgu Guð­munds­dóttur, for­manni Sam­tak­anna '78 Mynd: Stjórnarráðið

For­sæt­is­ráðu­neytið og Samtökin '78, hags­muna- og bar­áttu­sam­tök hinsegin fólks á Íslandi, hafa gert með sér samn­ing um að sam­tökin sinni sér­tækri fræðslu, þjón­ustu og ráð­gjöf er varða mál­efni hinsegin fólks. Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra, og María Helga Guð­munds­dóttir, for­maður Sam­tak­anna '78, und­ir­rit­uðu samn­ing þessa efnis í Stjórn­ar­ráð­inu.

Þetta kemur fram í frétt for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins.

Samn­ing­ur­inn gildir frá 15. febr­úar á þessu ári til 15. febr­úar á því næsta og greiðir for­sæt­is­ráðu­neytið Sam­tök­unum '78 fimmtán millj­ónir króna til að sinna þeim verk­þáttum sem samn­ing­ur­inn tekur til.

Samn­ingnum er ætlað að stuðla að hinseg­in­vænu sam­fé­lagi og auknum sýni­leika hinsegin fólks. Skal þjón­usta þessi bein­ast ann­ars vegar að hinsegin ein­stak­lingum og aðstand­endum þeirra og hins vegar að fag­fólki í almanna­þjón­ustu svo sem í opin­berri stjórn­sýslu og skólum.

Auk þess að veita þjón­ustu og ann­ast fræðslu skulu sam­tökin sam­kvæmt samn­ingum standa að:

  • Árlegum sam­ráðs­fundum með kenn­urum sem kenna kynja-, jafn­réttis-, og hinseg­in­fræði á öllum skóla­stigum í því augna­miði að auka þekk­ingu og færni kenn­ara á jafn­rétt­is­málum og mál­efnum hinsegin fólks.
  • Árlegum sam­ráðs­fundum með kjörnum full­trúum og sér­fræð­ingum sem vinna að opin­berri stefnu­mótun á sviði jafn­rétt­is­mála um mál­efni hinsegin fólks.
  • Alþjóða­sam­starfi sem hafi að mark­miði að byggja upp tengsl við syst­ur­sam­tök á hinum Norð­ur­lönd­unum og á alþjóða­vett­vangi og miðla af reynslu ann­arra hér á landi.
  • Þátttöku í árlegu kynja­þingi frjálsra félaga­sam­taka á sviði jafn­rétt­is­mála og tryggja að raddir hinsegin fólks heyr­ist á þing­inu.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár