Bjarni: Ekki mitt fyrsta útspil að gera kröfu um stól forsætisráðherra

Formenn rík­is­stjórn­ar­flokk­anna þriggja ætla að ræða saman strax í dag enda eðli­legt að hefja sam­talið þar, við fólkið „sem við höfum vaðið skafla með og farið í gegnum ólgu­sjó,“ líkt og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins orð­aði það.

Formenn flokka sem náðu manni inn á þing, fyrir utan formann Miðflokksins, ræddust við í Silfrinu í morgun.
Formenn flokka sem náðu manni inn á þing, fyrir utan for­mann Mið­flokks­ins, rædd­ust við í Silfrinu í morgun. Mynd: Skjáskot: RÚV

„Það eru effin tvö,“ sagði Inga Sæland í Silfrinu á RÚV í morgun um sig­ur­veg­ara kosn­ing­anna í gær: Fram­sókn­ar­flokks og hennar, flokks, Flokks fólks­ins. Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sóknar, sagði flokk sinn hafa unnið „stór sigur“ og það hafi rík­is­stjórnin einnig gert. „Enn og ný er Framsókn orðin leið­andi afl í íslenskum stjórn­málum.“ Flokk­ur­inn bætti við sig fimm þing­mönnum og mun því mæta til leiks með þrettán þing­menn.

Flokkur fólks­ins fékk sex full­trúa kjörna. Inga segir sér og sínum flokki oft­sinnis hafa verið spáð feygð en að hún teldi að þau mál sem sett voru á odd­inn hafi skilað sér í gegn. „Það hefur nán­ast ekki dottið af mér brosið frá því að ég sá fyrstu tölur í gær­kvöldi.“

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hlaut sama þing­sæta­fjölda og í síð­ustu kosn­ingum og er enn stærsti flokkur lands­ins. Fylgi hans í skoð­ana­könn­unum var hins vegar líkt og reyndar margra ann­arra flokka ekki í takti við nið­ur­stöðu kosn­ing­anna. „Við elskum að vinna þessar kann­anir,“ sagði Bjarni Bene­dikts­son í Silfrinu.

[adspot]

Vinstri græn, flokkur for­sæt­is­ráð­herr­ans Katrínar Jak­obs­dóttur, er sá eini af rík­is­stjórn­ar­flokk­unum sem tapar þing­mönnum og fylgi milli kosn­inga. „Ef við horfum á stóru mynd­ina er rík­is­stjórnin að fá góða kosn­ingu,“ sagði Katrín spurð út í þetta. Hún minnti svo á að þetta væri rík­is­stjórn sem hún hefði leitt og að VG væri stærsti vinstri flokk­ur­inn á Íslandi, þriðju kosn­ing­arnar í röð.

Egill Helgason, stjórn­andi Silf­urs­ins sagði er hann beindi orðum sínum til Loga Ein­ars­sonar, for­manns Sam­fylk­ing­ar­innar að vinstrið væri „algjör­lega í henglum“.

Sitt hvoru megin við víglínuna

Logi sagði að hvað Sam­fylk­ing­una varð­aði þá „virð­ist sem þessi heiði sem við erum að fara yfir sé aðeins tor­fær­ari en við reikn­uðum með“. Hvað „vinstrið“ í heild varð­aði sagði hann það vissu­lega mjög umhugs­un­ar­vert til lengri tíma litið ef félags­hyggju­flokk­arnir VG og Sam­fylk­ing yrðu áfram sitt hvoru megin við „víg­lín­una“. Það væri „ekki gott“ að vera „sitt hvoru megin árinnar“.

Halldóra Mogensen, full­trúi Pírata, sagði úrslit kosn­ing­anna vekja sig til umhugs­unar. Sagði hún að mögu­lega lit­uð­ust þau af heims­far­aldr­inum. „Geri það að verkum að fólk sé að teygja sig í eitt­hvað sem það þekkir.“ Stöð­ug­leik­inn sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn væri tíð­rætt um væri hins vegar „stöðnun“ í hennar huga.

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir for­maður Við­reisnar sagð­ist vilja hafa séð fleiri atkvæði fara til síns flokks. „Vinstrið er svo­lítið að falla, við sjáum það.“ Hins vegar væri hin frjáls­lynda miðja, líkt og Viðreisn skil­greinir sig á, „aðeins að sækja í sig veðrið“.

Hvað varðar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður framundan sagði hún „ekk­ert óeðli­legt ef annar hvor að strák­unum myndi segja: Heyrðu, kæru vinir. Nú ætla ég að verða for­sæt­is­ráð­herra“.

Inga Sæland taldi ein­sýnt að Sigurður Ingi myndi nú „rífa sverðið á loft og fara að skylm­ast við Katrínu um for­sæt­is­ráð­herra­stól­inn“.

Katrín sagði alla rík­is­stjórn­ar­flokk­ana hafa tekið það skýrt fram fyrir kosn­ingar að þeir myndu ræða saman ef rík­is­stjórnin héldi stuðn­ingi sínum. „Og það hefur ekk­ert breyst í því.“

Bjarni sagði það „skemmti­legan sam­kvæm­is­leik“ að raða saman mögu­legum rík­is­stjórnum út frá nið­ur­stöðum kosn­ing­anna. „En í raun­heimum, í þeim veru­leika sem við búum við núna, þá tekur maður því dálítið alvar­lega þegar maður gefur það út í aðdrag­anda kosn­inga að þetta sé það sem maður muni gera. Fyrsta útspil. Ég ætla bara að standa við það. Ég ætla bara að standa við það að hefja sam­talið við fólkið sem við höfum vaðið skafla með og farið í gegnum ólgu­sjó, heims­far­aldur og fleira, og kosn­ingar sýna að við höfum áfram stuðn­ing.“

Hann sagði hins vegar að sam­starfið hafi oft verið erfitt og snúið. „Það er ekki allt sem fellur saman eins og flís við rass í stefnum flokk­anna. Þess vegna er það ekki sjálf­gefið mál að stjórnin sem kláraði sitt verk finni það sem allir geta sætt sig við til næstu fjög­urra ára. En ég er bjart­sýn­is­maður og sé mikil tæki­færi í þess­ari stöðu.“

Gerir ekki kröfu um forsætisráðherrastólinn

Hann sagði það hafa gef­ist sér vel að „byrja að bakka aðeins“ og setja sjálfan sig ekki í fyrsta sæti og reyna að skoða heild­ar­hags­mun­ina.

Þú munt ekki endi­lega gera kröfu um það að verða for­sæt­is­ráð­herra, spurði Egill.

„Ég er ekki að gera kröfu um það. Það er ekki mitt fyrsta útspil í sam­tal­inu,“ svar­aði Bjarni. „Auðvitað förum við fram á það að við sem erum með fjórð­ung allra atkvæða í land­inu, að það end­ur­speglist með ein­hverjum hætti í áhrifum. En maður verður að reyna að vera lausn­a­mið­aður.“

Sigurður Ingi sagði það „algjör­lega krist­al­klárt“ í sínum huga að staðið yrði við það sem sagt var fyrir kosn­ingar. Eðlilegt væri að flokk­arnir þrír myndu byrja á að ræða saman. „Við lögðum áherslu í upp­hafi að fram­tíðin myndi ráð­ast á miðj­unni“ og að unnið yrði að umbætum „án átaka og án bylt­inga“. Að hans mati hefðu þau sjón­ar­mið orðið ofan á í kosn­ing­unum.

Egill spurði Sigurð hvort hann myndi segja við for­set­ann að eðli­leg­ast væri að hann yrði for­sæt­is­ráð­herra. „Ég ætla að ítreka, mér finnst eðli­leg­ast að við sem sitjum í rík­is­stjórn sem heldur velli og bætir við sig, fáum tæki­færi til að tala saman. Ég ætla að gleðj­ast í nokkra klukku­tíma. Síðan myndum við örugg­lega eiga sam­tal. Ég kann núm­erið hjá bæði Bjarna og Katrínu.“

Nokkra hluti þurfi til svo rík­is­stjórn virki. Að ná mál­efna­legu sam­komu­lagi er eitt en einnig þurfi að vera „kem­estrí“ á milli fólks – ríkja traust.

„Það er mjög mikið ákall eftir því, að þetta fólk sem hérna situr og þjóðin er búin að velja til að stýra þess­ari fal­legu skútu okkar næstu fjögur árin, hlusti á alla þjóð­ina sína en ekki bara suma,“ sagði Inga Sæland. Heil­brigð­is­kerfið, almanna­trygg­inga­kerfið og fleira bíði bráðrar úrlausnar. „Ég bíð spennt eftir því að sjá þessa ynd­is­legu rík­is­stjórn taka utan um alla þjóð­ina sína og vinna verk sín og vanda.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár