Fjölgun smita áhyggjuefni – fólk með einkenni gengur fyrir

Gríð­ar­leg ásókn er í sýna­tökur vegna kór­ónu­veirunnar og biðlar land­læknir til þeirra sem eru ein­kenna­lausir að bóka ekki tíma. Þeir sem eru með ein­kenni verði að ganga fyrir.

Alma Möller, landlæknir.
Alma Möller, land­læknir. Mynd: Almannavarnir

„Það er gríð­ar­leg ásókn í sýna­tökur og tímar sem fólk getur bókað sjálft á heilsu­vera.is bók­uð­ust upp fljótt. Því viljum við biðja þá sem ekki eru með ein­kenni og hafa ekki rök­studdan grun að hafa orðið fyrir smiti að bóka ekki eða biðja um sýna­töku að svo stöddu.“

Þetta sagði Alma Möller land­læknir á blaða­manna­fundi almanna­varna í dag.

Þá vildi hún sér­stak­lega biðla til fyr­ir­tækja að krefj­ast ekki skimunar fyrir starfs­fólk nema til komi ósk frá smitrakn­ingateymi.

Þeir sem eru í sóttkví fá boð um að mæta í sýnatöku

[links]Þrjá­tíu ný til­felli af COVID-19 greindust hér á landi í gær. Allir þeir sem greindust höfðu farið í sýna­töku vegna ein­kenna. Í gær vor­u ­tekin 2.395 sýni vegna kór­ónu­veirunn­ar, þar af 1.077 ein­kenna­sýni. Þetta eru ­tölu­vert færri sýni en tekin voru á föstu­dag og sunnu­dag en þó fleiri en dag­ana þar á und­an. Rétt rúm­lega helm­ingur þeirra sem greind­ist í gær var í sótt­kví við grein­ingu.

Fram kom í máli Ölmu að áfram væri hægt að fá sím­tal við heilsu­gæsl­una varð­andi hugs­an­legar sýna­tökur. Hún sagði að þeir sem eru með ein­kenni sem sam­rým­ast COVID-19 yrðu að geta gengið fyrir þannig að þeim væri for­gangs­raðað. Þá ítrek­aði hún að þeir sem eru í sótt­kví fengju boð þegar þeir eiga að mæta í sýna­töku og ekki þýddi að reyna að fá henni flýtt.

Staðan alvarleg

Alma sagði á fund­inum að þessi fjölgun smita væri áhyggju­efni – staðan væri alvar­leg og þess vegna þyrfti að skerpa á öllum þáttum sótt­varna.

„Það eru þegar miklar aðgerðir í gangi og það er mikið í höndum okkur sem ein­stak­linga hvernig mál þró­ast og við verðum að taka okkur á.

Við ættum að forð­ast marg­menni og þétta okkar innsta kjarna eða þá sem við umgöng­umst mest – einkum þeir sem til­heyra áhættu­hópum. Þeir sem reka stofn­anir og fyr­ir­tæki þurfa að gera allt sem þeir geta til að gæta ýtr­ustu sótt­varna. Það er hvatt til fjar­vinnu og fjar­kennslu eins og kostur er. Það er hvatt til grímunotk­unar,“ sagði hún.

Óska eftir liðsinni heilbrigðisstarfsfólks í bakvarðasveit

Heil­brigð­is­yf­ir­völd ósk­uðu í morgun eftir lið­sinni heil­brigð­is­starfs­fólks í bak­varða­sveit heil­brigð­is­þjón­ust­unnar. Leitað er að fólki sem hefur aðstæður og er reiðu­búið að koma tíma­bundið til starfa í heil­brigð­is­þjón­ust­unni með skömmum fyr­ir­vara, hvort heldur í fullt starf, hluta­starf eða í tíma­vinnu, eftir því sem aðstæður leyfa.

Bak­varða­sveit heil­brigð­is­þjón­ust­unnar var sett á fót í upp­hafi COVID-19 far­ald­urs­ins í vor þegar ljóst var að mik­il­vægar heil­brigð­is­stofn­anir gætu lent í mönn­un­ar­vanda vegna veik­inda­fjar­vista starfs­fólks eða fjar­vista vegna sótt­kvíar.

Lokun kráa og skemmtistaða framlengd

Einnig til­kynntu heil­brigð­is­yf­ir­völd í dag að Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra hefði fall­ist á til­lögu sótt­varna­læknis um að fram­lengja tíma­bundna lokun skemmti­staða og kráa til og með sunnu­dags­ins 27. sept­em­ber næst­kom­andi.

Sem fyrr tekur lok­unin til kráa og skemmti­staða í Reykja­vík, Mos­fellsbæ, Hafn­ar­firði, Garðabæ, Kópavogi, Kjós­ar­hreppi og á Sel­tjarn­ar­nesi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár