Neituðu að kryfja lík alnæmissjúklinga

Í bók Gunn­hildar Örnu Gunn­ars­dóttur, Ber­skjald­aður, er að finna frá­sögn hjúkr­un­ar­fræð­ings af hræðsl­unni og for­dómunum innan sem utan Borg­ar­spít­al­ans á níunda og tíunda ára­tugnum, þegar HIV-far­ald­ur­inn braust út.

Dæmi um fyrirsagnir frétta dagblaðanna á árunum 1985 og 1986.
Dæmi um fyr­ir­sagnir frétta dag­blað­anna á árunum 1985 og 1986.

„Ástandið var svo óhuggu­legt í fyrstu. Lokaðar kistur, lík í plast­poka, engin kistu­lagn­ing.“

Þannig lýsir hjúkr­un­ar­fræð­ingur stöð­unni á smit­sjúk­dóma­deild Borg­ar­spít­al­ans á níunda ára­tugnum og í upp­hafi þess tíunda eftir að HIV-far­ald­ur­inn braust út. Lítið var í fyrstu vitað um sjúk­dóm­inn sem HIV-veiran olli. Það var mikil hræðsla og það voru miklir for­dómar. Og sjúk­ling­arnir upp­lifðu skömm.

Hjúkr­un­ar­fræð­ing­ur­inn segir sögu sína í bók­inni Ber­skjald­aður eftir blaða­mann­inn Gunn­hildi Örnu Gunn­ars­dóttur sem nýverið kom út. Í henni er fjallað um bar­áttu Einars Þórs Jóns­sonar fyrir lífi og ást. Einar smit­að­ist sjálfur af veirunni á níunda ára­tugnum og horfði á eftir hverjum vini sínum á fætur öðrum deyja úr alnæmi. Hommar voru ekki aðeins að berj­ast við „plág­una“ eins og HIV-far­ald­ur­inn hefur gjarnan verið kall­aður, heldur lífs­hættu­lega for­dóma á heims­vísu. For­dóm­arnir voru síst minni á Íslandi en ann­ars staðar og segir Einar m.a. frá atvinnu­missi félaga sinna sem hann telur hik­laust að rekja megi til þess að þeir voru smit­aðir.

[adspot]

Hjúkr­un­ar­fræð­ing­ur­inn, sem er kona, lýsir ástand­inu sem skap­að­ist vegna HIV og for­dómanna sem umluktu til­veru sam­kyn­hneigðra á níunda ára­tugnum og í byrjun þess tíunda sem ham­förum. Van­þekk­ing og hræðsla hafi ein­kennt við­brögð margra. Þegar hún ákvað að fara að sinna alnæm­is­sjúkum á Borg­ar­spít­al­anum, eftir að hafa sinnt sama sjúk­linga­hópi í Banda­ríkj­unum, varð móðir hennar ótta­slegin. „Ég trúi því ekki að þú ætlir að taka þessa áhættu,“ segir hún að móðir sín hafi sagt. „Þú getur smit­ast, dáið.“

Hún rifjar upp hvernig sjúk­lingar með hvít­blæði á A-7, smit­sjúk­dóma­deild­inni á Borg­ar­spít­al­anum í Fossvogi, hafi átt samúð allra óskipta. Þeir voru taldir hinir hreinu á meðan alnæm­is­sjúk­lingar á sömu deild þóttu óhreinir. Í bak­sýn­is­spegl­inum sé hægt að líta á við­brögð fólks sem kjána­leg en hún minnir á að þekk­ing heil­brigð­is­starfs­fólks­ins á sjúk­dómnum hafi verið lítil fyrst í stað.

Hún segir frá því í bók­inni hversu eitt starfs­fólkið sem sinnti alnæm­is­sjúkum hafi verið. Að starfs­menn á rann­sókn­ar­stofum spít­al­ans hafi neitað að taka blóð úr sjúk­ling­unum og þeir sem unnu á deild­inni hafi orðið að gera það sjálfir. Erfitt var að fá röntgen­myndir teknar og fá eitt­hvað gert fyrir þá sjúku. „Það voru allir svo hræddir,“ segir hún og veltir fyrir sér ófag­mennsku sér­fræð­ing­anna sem neit­uðu að kryfja lík alnæm­is­sjúk­linga. Smit­sjúk­dóma­lækn­arnir hafi orðið að fram­kvæma krufn­ing­arnar sjálfir.

Umræðan í sam­fé­lag­inu var einnig mjög nei­kvæð. Fólk neit­aði að fara í sjúkra­bíla sem hefðu flutt HIV-smit­aða. Aðrir sjúk­lingar vildu síður vera á sömu deild og þeir.

Hún seg­ist einnig hugsa um pabbana sem höfðu yfir­gefið syni sína en sátu frammi á gangi í ang­ist á meðan mæð­urnar vöktu yfir veikum sonum sínum. Á 25 manna deild­inni var helm­ingur smit­aður af alnæmi þegar mest lét. Allt ungir menn. „Þeir voru líka eins og örmjó veik­burða strá,“ segir hún. Illgresi sam­fé­lags­ins, bað­aðir for­dómum og ótta.

Á spít­al­anum fengu þeir hverja sýk­ing­una á fætur annarri. Lang­flestir fengu lungna­bólgu og ónæm­is­kerfið hrundi. Starfs­fólk smit­sjúk­dóma­deild­ar­innar varð að verja sig. Það klædd­ist hlífð­ar­fatn­aði til að smit­ast ekki. Hjúkr­un­ar­fræð­ing­ur­inn segir þau hafa unnið af fag­mennsku og ábyrgð en líka af umhyggju. „Við lögðum okkur fram. Ég sé ekki eftir neinu,“ segir hún.

Í BS-verk­efni Hlyns Ind­riða­sonar við lækna­deild Háskóla Íslands frá árinu 2013 var fjallað um HIV á Íslandi á ára­bil­inu 1983-2012. Nið­ur­staða Hlyns er sú að á þessu tíma­bili hafi greinst 278 manns með HIV á Íslandi og 39 þeirra hafi lát­ist vegna alnæmis. Það segir þó ekki alla sög­una þar sem hluti sjúk­ling­anna flutti frá land­inu. Í bók­inni Ber­skjald­aður segir Einar frá nokkrum vinum sínum sem flúðu land en sumir þeirra sneru svo aftur heim til að deyja.

Einar lifði plág­una af. Ný lyf komu á markað í tæka tíð og björg­uðu lífi hans. Hann er í dag fram­kvæmda­stjóri sam­tak­anna HIV Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár