Vilja undirbúa markaðsátak til að hvetja ferðamenn til að koma til Íslands

Ekki er talið tíma­bært við núver­andi óvissu­á­stand vegna COVID-19 að ráð­ast í mark­aðs­her­ferð „á ferða­manna­land­inu Íslandi“ en þó er talið skyn­sam­legt að hefja nú þegar und­ir­bún­ing að alþjóð­legu átaki sem ýta mætti úr vör um leið og aðstæður skap­ast.

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar og nýsköpunarráðherra.
Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir, ferða­mála-, iðn­aðar og nýsköp­un­ar­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Ekki er talið að við núver­andi óvissu­á­stand vegna COVID-19 sé tíma­bært eða skyn­sam­legt að ráð­ast í mark­aðs­her­ferð á „ferða­manna­land­inu Íslandi.“ Þetta kemur fram í svari frá aðstoð­ar­manni Þórdísar Kol­brúnar Gylfa­dóttur, ferða­mála-, iðn­aðar og nýsköp­un­ar­ráð­herra, við fyr­ir­spurn Kjarnans en á dag­skrá rík­is­stjórn­ar­innar í dag var fjallað um und­ir­bún­ing mark­aðs­að­gerða í kjöl­far COVID-19.

Þannig hafi bæði Finnland og Aust­ur­ríki nýlega aft­ur­kallað nýhafnar mark­aðs­her­ferðir sínar, vegna stöð­unnar sem er uppi. Því hafi verið beint til Íslands­stofu að end­ur­meta áform sín um mark­aðs­að­gerðir sem þegar hafi verið ákveðnar.

Málið þegar farið að hafa áhrif á ferðaþjónustu

Samkvæmt svar­inu fund­aði stjórn­stöð ferða­mála um málið í gær. Þar hafi komið fram að málið sé þegar byrjað að hafa áhrif á íslenska ferða­þjón­ustu og vinna standi yfir við að meta hver þau gætu orðið til lengri tíma.

„Hins vegar er jafn­framt ljóst að á ein­hverjum tíma­punkti fara neyt­endur í auknum mæli að bóka ferða­lög á nýjan leik. Þá verður Ísland að öllum lík­indum í harðri sam­keppni við önnur lönd sem einnig hafa orðið fyrir sam­drætti í ferða­þjón­ustu vegna veirunnar,“ segir í svar­inu.

Þess vegna sé það sam­dóma álit þeirra sem fundað hafa um málið á vett­vangi stjórn­stöðvar ferða­mála að skyn­sam­legt sé að hefja nú þegar „und­ir­bún­ing að alþjóð­legu mark­aðsátaki sem mætti ýta úr vör um leið og aðstæður skap­ast til að hvetja ferða­menn á ný til þess að sækja Ísland heim, og nýta þann glugga sem skap­ast til að draga eins og kostur er úr þeim búsifjum sem málið mun valda íslenskri ferða­þjón­ustu og efna­hags­lífi.“

Aukið framlag frá ríki og ferðaþjónustufyrirtækjum

Til slíks átaks muni þurfa fram­lög úr rík­is­sjóði auk fram­lags frá ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækjum sem gert er ráð fyrir að verði króna á móti krónu.

Þegar er byrjað að leggja drög að ramma utan um þessa vinnu og ráð­herra ferða­mála væntir þess að hún geti haf­ist form­lega innan fárra daga, segir í svar­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár