Rétt yfir fimm milljarðar króna hafa verið notaðar undir hatti „Fyrstu fasteignar“

Mun færri hafa nýtt sér úrræðið „Fyrsta fast­eign“ en kynn­ing á úrræð­inu árið 2016 gaf til kynna að myndi gera það. Tekju­hærri hópar eru mun lík­legri til að geta nýtt sér úrræðið, sem er skatt­frjálst.

Bjarni Benediktsson og Sigurður Ingi Jóhannsson, sem þá leiddu ríkisstjórn, kynntu Fyrstu fasteign í ágúst 2016, nokkrum vikum fyrir haustkosningar það árið.
Bjarni Bene­dikts­son og Sigurður Ingi Jóhanns­son, sem þá leiddu rík­is­stjórn, kynntu Fyrstu fast­eign í ágúst 2016, nokkrum vikum fyrir haust­kosn­ingar það árið. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Alls hafa þeir sem nýtt hafa sér úrræðið „Fyrsta fast­eign“ greitt inn á lán sín eða borgað í útgreiðslu á útborgun fyrir íbuð tæp­lega 5,2 millj­arða króna frá því að úrræðið tók gildi. Rétt undir þrír millj­arðar króna hafa verið nýttir til að greiða inn á lán og tæp­lega 2,2 millj­arðar króna í útgreiðslu.

Þetta kemur fram í tölum sem fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið hefur tekið saman fyrir Kjarnann. „Fyrsta fast­­eign“ stendur þeim til boða sem eru að kaupa sína fyrstu íbúð. Sam­­kvæmt úrræð­inu geta þeir nýtt sér­­­eign­­ar­líf­eyr­is­­sparnað til að safna fyrir inn­­­borgun á fyrstu íbúð­­ar­­kaup eða greitt inn á höf­uð­stól hús­næð­is­láns. Alls er heim­ilt að ráð­stafa að hámarki 500 þús­und krónum á ári í mest tíu ár með ofan­­greindum hætti sam­­kvæmt skil­­málum „Fyrstu fast­­eign­­ar“.

[adspot]„Fyrsta fast­­eign“ stendur þeim til boða sem eru að kaupa sína fyrstu íbúð. Sam­­kvæmt úrræð­inu geta þeir nýtt sér­­­eign­­ar­líf­eyr­is­­sparnað til að safna fyrir inn­­­borgun á fyrstu íbúð­­ar­­kaup eða greitt inn á höf­uð­stól hús­næð­is­láns. Alls er heim­ilt að ráð­stafa að hámarki 500 þús­und krónum á ári í mest tíu ár með ofan­­greindum hætti sam­­kvæmt skil­­málum „Fyrstu fast­­eign­­ar“.

Áttu að verða 50 milljarðar en verður líklega mun minna

Þegar úrræðið var kynnt í Hörpu um miðjan ágúst 2016 af þáver­andi ráða­­mönnum þjóð­­ar­innar kom fram í glæru­kynn­ingu að um 50 millj­­arðar króna myndu rata í inn­­greiðslur á hús­næð­is­lánum vegna „Fyrstu fast­­eign­­ar“ á tíu árum eftir að úrræðið tæki gildi.

Sam­­kvæmt kynn­ing­unni áttu um 14 þús­und manns að nýta sér úrræðið á fyrstu árum þess. Þá var lagt upp með að árlega myndu um tvö þús­und manns mæt­­ast í hóp þeirra sem eiga kost á því að nýta sér úrræð­ið.

Ljóst er að hóp­­ur­inn sem hefur valið að nýta sér leið­ina er mun fámenn­­ari en stefnt var að og því verður skatt­­af­slátt­­ur­inn vænt­an­­legra mun minni en fram kom í kynn­ingu þáver­andi ráða­­manna.

Í grein­ar­gerð sem fylgdi með frum­varp­inu sem lög­festi úrræðið kom strax fram að umfang hennar gæti náð til 4.300 til 15.200 laun­þega, sam­kvæmt grein­ingu sem Analytica fram­kvæmdi fyrir fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið. Ef þátt­töku­fjöld­inn yrði við neðri mörk þess fjölda þá umfang aðgerð­anna ein­ungis 13 millj­arðar króna sam­kvæmt sömu grein­ar­gerð. Það er tölu­vert langt frá þeim 50 millj­örðum króna sem kynntir voru í Hörpu í ágúst 2016.

Í svörum við fyr­ir­spurn Kjarnans um nýt­ingu sér­eign­ar­sparn­aðar til nið­ur­greiðslu hús­næð­is­lána svar­aði ráðu­neytið því ekki til hversu margir hefðu nýtt sér „Fyrstu fast­eign“, heldur gaf upp heild­ar­tölu allra sem notað hefðu sér­eign­ar­sparnað sinn til að borga inn á hús­næði eða -lán. Sú tala var rúm­lega 58 þús­und.

Upphæðin sem notuð var innan „Fyrstu fast­eignar“ úrræð­is­ins var tæp­lega sjö pró­sent af heild­ar­upp­hæð­inni, sem var 74,5 millj­arðar króna um síð­ustu ára­mót.

Miðað við þann það hlut­fall má ætla að um fjögur þús­und manns hafi nýtt sér „Fyrstu fast­eign“.

Tekjuhærri líklegri til að taka þátt í séreignarsparnaði

Greining Analytica á væntri nýt­ingu sér­eign­ar­sparn­aðar fyrir stjórn­völd þegar vinna við frum­varpið stóð yfir byggði á gögnum úr skatt­fram­tölum fyrir tekju­árið 2015 og var úrtakið miðað við laun­þegar sem voru með launa­tekjur en áttu ekki fast­eign. Analytica fram­reikn­aði svo launa­tekj­urnar fram til árs­ins 2016 miðað við launa­breyt­ingar í stað­greiðslu­gögnum og flokk­aði loks eftir hjú­skap­ar­stöðu, aldri með­al­launum og með­al­fjár­hæð sparn­aðar í sér­eign og því hvort að við­kom­andi væri að greiða í sér­eign eða ekki.

[links]Í grein­ar­gerð frum­varps­ins á sínum tíma sagði að með­al­tekjur þeirra sem spara í sér­eign væru umtals­vert hærri en hjá þeim sem gera það ekki. Náms­menn voru dregnir út úr úrtak­inu þar sem þeir voru „al­mennt ekki taldir hafa sama fjár­hags­legt svig­rúm til sparn­að­ar.“

Því lá þegar fyr­ir þegar frum­varpið var lagt fram, sam­kvæmt grein­ing­unni, að þeir sem gátu frekar nýtt sér sér­eign­ar­leið­ina sem kynnt var fyrir fyrstu fast­eign­ar­kaup­endur voru þeir sem hafa hærri tekjur og eru þar með lík­legri til að taka þátt í sér­eign­ar­sparn­aði.

Þeir sem nýta sér sér­­­eign­­ar­líf­eyr­is­­sparnað til að greiða niður hús­næð­is­lán sitt sam­­kvæmt úrræðum sem stjórn­­völd hafa inn­­­leitt á und­an­­förnum árum fá tvö­­faldan ávinn­ing.

Í fyrsta lagi fæst mót­fram­lag frá vinn­u­veit­enda sem er ígildi launa­hækk­­un­­ar. Í öðru lagi fæst skatta­af­­sláttur frá rík­­inu sem ein­ungis býðst þeim sem nota sér­­­eigna­­sparnað sinn til að greiða niður hús­næð­is­lán.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár