17 milljarða skattafsláttur á kostnað framtíðarkynslóða

Hluti lands­manna hefur fengið rúm­lega 17 millj­arða króna í skatta­af­slátt fyrir að nota sér­eign­ar­sparnað sinn til að greiða niður hús­næð­is­skuldir sínar. Tekju­hærri eru mun lík­legri til að nýta sér úrræðið en tekju­lægri hópar.

Frá árinu 2014 og út síð­asta ár hefur lækkun tekju­skatts og útsvars hjá þeim ein­stak­lingum sem hafa notað sér­eign­ar­sparnað sinn til að greiða niður hús­næð­is­skuldir skatt­frjálst verið 17,3 millj­arðar króna. 

Um er að ræða að minnsta kosti tæp­lega 59 þús­und ein­stak­linga, auk þeirra sem hófu að nýta sér úrræðið í fyrra. Um mitt síð­asta ár voru 209 þús­und ein­stak­lingar skráðir starf­andi á íslenskum vinnu­mark­aði. Því má ætla að undir 30 pró­sent starf­andi lands­manna nýti sér sér­eign­ar­sparn­að­ar­úr­ræðið.

Tekju­hærri lands­menn eru mun lík­legri til að spara í sér­eign­ar­sparnað en þeir sem hafa lægri tekjur. Í skýrslu sér­fræð­inga­hóps um höf­uð­stólslækk­anir hús­næð­is­lána, sem skil­aði skýrslu til for­sæt­is­ráðu­neytis Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar síðla árs 2013, kom fram að með­al­launa­tekjur fjöl­skyldna sem spör­uðu í sér­eign og skuld­uðu í fast­eign væri miklu hærri en með­al­launa­tekjur þeirra sem spara ekki. „Al­mennt eru tekjur þeirra sem spara í sér­eigna­líf­eyr­is­sparn­aði mun hærri en hinna sem ekki gera það,“ stóð orð­rétt í skýrsl­unni.

73,5 milljarðar inn á lán

Kjarninn hefur und­an­farna daga greint frá því að alls hafi nokkrir tugir þús­und Íslend­inga nýtt sér það að greiða sér­eign­ar­sparnað sinn inn á hús­næð­is­lán sín frá því að slíkt úrræði var kynnt til leiks um mitt ár 2014. Alls hefur þessi hópur greitt 73,5 millj­arða króna inn á hús­næð­is­lán sín, þegar með er tal­inn þeir sem nýttu sér seinna úrræði, kallað Fyrsta fast­eign, sem kynnt var í ágúst 2016.

Inni í þess­ari tölu er ráð­stöfun á eigin sparn­aði upp á 47,6 millj­arða króna. Til við­bótar virkar sér­eign­ar­sparn­aður þannig að vinnu­veit­andi greiðir mót­fram­lag. Þar er um að ræða launa­hækkun sem er lög­fest og stendur ein­ungis þeim til boða sem velja að safna í sér­eign með þessum hætti. Samtals hafa vinnu­veit­endur greitt niður 26 millj­arða króna af hús­næð­is­lánum þessa rúma fjórð­ungs þjóð­ar­innar á und­an­förnum árum.

Ofan á allt saman er þessi ráð­stöfun skatt­frjáls. Ríkið og sveit­ar­fé­lög gefa eftir tekjur til þeirra sem kjósa að nota sér­eign­ar­sparnað til að borga niður hús­næð­is­lán. Á árunum 2014 til 2018 nam lækkun tekju­skatts vegna þessa 8,6 millj­örðum króna og útsvar lækk­aði um 5,3 millj­arða króna. Áætlun fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins gerir ráð fyrir því að lækkun tekju­skatts hafi numið 2,1 millj­arði króna í fyrra og lækkun útsvars 1,3 millj­arða króna.

Samtals gera þetta 17,3 millj­arða króna.

Afsláttur á kostnað framtíðarkynslóða

Þessi skatta­af­sláttur hefur hins vegar lítið sem engin áhrif á ráð­stöf­un­ar­tekjur rík­is­sjóðs í dag eða á næstu árum vegna þess að sér­eign­ar­sparn­aður er skatt­lagður við útgreiðslu. Þ.e. þegar fólk fer á eft­ir­laun.

Þorri þeirra sem eru að nýta sér úrræðið í dag eiga tölu­vert langt í það. Því er verið að veita skatta­af­slátt á kostnað fram­tíð­ar­kyn­slóða. Þetta er raunar stað­fest í grein­ar­gerð frum­varps­ins sem lög­festi úrræðið þar sem sagði að „fram­leng­ingin hefur lítil áhrif á afkomu ríkis og sveit­ar­fé­laga á tíma­bili nýfram­lagðrar fjár­mála­á­ætl­unar sem nær til árs­ins 2024.“

Í svari fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans um nýt­ingu sér­eign­ar­sparn­að­ar­úr­ræð­is­ins er þetta enn fremur stað­fest.

Þar segir að mik­il­vægt sé að gera grein­ar­mun milli þeirrar fjár­hæðar sem ein­stak­lingar lækka tekju­skatt sinn um í gegnum úrræðið og svo þess sem telja má eig­in­legt tekju­tap ríkis og sveit­ar­fé­laga yfir tíma­bilið vegna úrræð­is­ins. „Stór hluti þeirra sem nýta sér og hafa nýtt sér úrræðið eru ein­stak­lingar sem þegar voru að leggja fyrir í sér­eign­ar­sparnað og voru þá þegar að lækka tekju­skatts­stofn sinn. Skattur af þeim sér­eign­ar­sparn­aði greið­ist svo loks við elli­líf­eyr­i­s­töku. Eig­in­legt tekju­tap hins opin­bera á sér þá stað í fram­tíð­inni á þeim tíma­punkti þegar krón­urnar, sem hafa verið nýttar skatt­frjálst, hefðu verið skatt­lagðar. Það fram­tíðar-tekju­tap er lægri tala en lækkun tekju­skatts þessa hóps er í dag, þar sem fólk er að jafn­aði með lægri tekjur á elli­líf­eyr­is­aldri heldur en á vinnu­aldri og þar með lægri skatt­pró­sentu jafn­framt. Hér er þess vegna ein­göngu reynt að svara hver sé lækkun tekju­skatts og útsvars hjá öllum þeim sem hafa nýtt sér hús­næðisúr­ræðin sem um ræðir.“

Átti að vera 70 milljarðar á þremur árum

Kjarninn greindi frá því í gær að alls hefðu 58.738 ein­stak­lingar nýtt sér sér­eigna­sparnað sinn til að greiða inn á lán eða í útborgun fyrir íbúð í lok árs 2018. Í þeirri tölu er sam­skatt­aðir taldir sem tveir aðilar jafn­vel þótt að ein­ungis annar þeirra hafi greitt inn á höf­uð­stól hús­næð­is­láns þeirra. Um er að ræða bæði þá sem nýttu sér­eigna­sparnað sinn til hús­næð­is­kaupa og -lána­nið­ur­greiðslu sam­kvæmt úrræði þess efnis sem kynnt var undir hatti Leið­rétt­ing­ar­innar vorið 2014 og þá sem nýttu sér Fyrstu fast­eignar úrræðið, sem var kynnt í ágúst 2016.

Leiðréttingin var eitt stærsta mál ríkisstjórnar Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, sem sat frá 2013 og fram á árið 2016.
Leið­rétt­ingin var eitt stærsta mál rík­is­stjórnar Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, sem sat frá 2013 og fram á árið 2016.

Þegar úrræðið um að nota sér­eign­ar­sparnað sinn skatt­frjálst til að greiða niður hús­næð­is­lán var kynnt var það gert þannig að sá hópur sem áætlað var að nýtti sér það myndi geta notað alls 70 millj­arða króna til þeirra verka á tíma­bil­inu. Það byggði á skýrslu sér­fræð­inga­hóps sem skil­aði af sér skýrslu til for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins í nóv­em­ber 2013. Á meðal þeirra sem sátu í sér­fræði­hópnum voru Sigurður Hann­es­son, nú fram­kvæmda­stjóri Samtaka iðn­að­ar­ins, sem var for­maður hans og Lilja D. Alfreðs­dóttir, nú mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra.

Þegar frum­varp var loks lagt fram, til að lög­binda úrræðið, sagði í grein­ar­gerð þess að áður­nefnt mat sér­fræð­inga­hóps­ins hefði verið „nokk­urri óvissu háð“. Ekkert talna­legt mat lægi fyrir á úrræð­inu.

Því skip­aði Bjarni Bene­dikts­son, þáver­andi og núver­andi fjár­mála- og efna­hags­hags­ráð­herra, nýjan starfs­hóp til að reikna áhrif úrræð­is­ins. Sá hópur skil­aði af sér þremur sviðs­myndum sem sýndu að fram á mitt ár 2017 myndu 56.066 til 81.597 ein­stak­lingar nýta sér sér­eigna­sparnað til að greiða niður hús­næð­is­lán eða til í útgreiðslu útborg­unar. Heild­ar­upp­hæðin sem þessi hópur átti að geta greitt inn á hús­næð­is­skuldir sínar átti að vera 60 til 82 millj­arðar króna.

Um síð­ast­lið­inn ára­mót, tveimur og hálfu ári eftir að upp­haf­legur tímara­mmi úrræð­is­ins var lið­inn, þá var fjöldi þeirra sem höfðu nýtt sér úrræðið rétt yfir lægstu mörkum þess sem búist var við. Upphæðin sem nýtt hefur verið í sér­eign­ar­sparn­að­ar­úr­ræðið eitt og sér var um 68 millj­arðar króna, og hafði ekki náð þeirri 70 millj­arða króna upp­hæð sem kynnt var í Hörpu í mars 2014, þegar Leið­rétt­ingin var form­lega opin­beruð. Ofan á hana bæt­ist svo sú upp­hæð sem nýtt hefur verið í gegnum Fyrstu fast­eign, en sam­an­lagt nema heild­ar­um­svif beggja úrræða 74,5 millj­örðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið undanfarið ár