Mynd: Birgir Þór Harðarson

73,5 milljarða af séreignasparnaði í að borga niður húsnæðislán

Á þeim fimm og hálfu árum sem liðin eru frá því að íslenskum hús­næð­is­skuld­urum, eða þeim sem voru í kaup­hug­leið­ingum, var gert kleift að ráð­stafa sér­eign­ar­sparn­aði sínum skatt­frjálst til að lækka hús­næð­is­lán hafa þeir notað 73,5 millj­arða króna til þess.

Um síð­ustu ára­mót höfðu lands­menn nýtt 73,5 millj­arða króna af sér­eign­ar­sparn­aði sínum til að greina niður hús­næð­is­lán eða sem útgreiðslu fyrir íbúð frá því að úrræðin tóku gildi um mitt ár 2014.

Þar er um að ræða þann hluta sér­eign­ar­sparn­að­ar­ins sem ein­stak­ling­arnir sjálfur hafa greitt til þess og mót­fram­lag launa­greið­enda þeirra. Þetta kemur fram í svari fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Alls hafa þeir lands­menn sem nýtt hafa sér­eigna­sparnað til að greiða niður lán sín um tæp­lega 42,2 millj­arða króna fram að lokum árs 2019 og nýtt 1,9 millj­arða króna í útgreiðslu fyrir hús­næði.

Auk þess hafa ein­stak­lingar sem geta nýtt sér úrræðið „Fyrsta fast­eign“, sem boðið hefur verið upp á frá árinu 2016, greitt tæpa tvo millj­arða króna inn á lán og greitt tæp­lega 1,4 millj­arða króna í útgreiðslu fyrir hús­næði. Bæði úrræðin eru skatt­frjáls.

Á móti þessum upp­hæðum, sem eru sann­ar­lega sparn­aður laun­þeg­anna sjálfra, bæt­ist fram­lag vinnu­veit­enda vegna sér­eigna­sparn­aðar, sem er ekk­ert annað en við­bót­ar­laun til þeirra sem safna slíkum. Alls greiddu atvinnu­rek­endur 26 millj­arða króna á tíma­bil­inu inn á hús­næð­is­lán þeirra sem not­uðu sér­eigna­sparnað sinn til slíks, eða í útgreiðslu á útborgun fyrir hús­næði við kaup.

Þetta kemur fram í tölum sem fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið tók saman fyrir Kjarnann.

Hefur ekki náð upphaflegu krónutölumarkmiði

Nýting á sér­eign­ar­sparn­aði til að greiða niður hús­næð­is­lán var upp­haf­lega hluti af hinni svoköll­uðu Leið­rétt­ingu, sem kynnt var til leiks í mars 2014. Upp­haf­lega átti heild­ar­um­fang hennar að vera 150 millj­arðar króna. 

Um 80 millj­arðar króna áttu að vera greiðsla úr rík­is­sjóði inn á höf­uð­stól þess hóps sem hafði verið með verð­tryggð hús­næð­is­lán á árunum 2008 og 2009, óháð efna­hag. Á end­anum nam Leið­rétt­inga­greiðslan 72,2 millj­örðum króna. Hún fór að mestu til tekju­hærri og eign­ar­meirihópa sam­fé­lags­ins.

Um 70 millj­arðar króna áttu síðan að koma til vegna þess að lands­mönnum yrði gert kleift að nota sér­eigna­sparnað sinn skatt­frjálst til að borga niður hús­næð­is­lán sín í þrjú ár, frá miðju ári 2014 og fram til 30. júní 2017.

Í glærukynningu á Leiðréttingunni kom fram að hún ætti að skila 150 milljörðum á þremur árum. Hún hefur enn ekki náð þeirri tölu, fimm og hálfu ári eftir að framkvæmd hennar hófst.
Í glæru­kynn­ingu á Leið­rétt­ing­unni kom fram að hún ætti að skila 150 millj­örðum á þremur árum. Hún hefur enn ekki náð þeirri tölu, fimm og hálfu ári eftir að fram­kvæmd hennar hófst.

Búið er að fram­lengja nýt­ingu sér­eign­ar­sparn­aður til að greiða inn á hús­næð­is­lán tví­vegis síðan þá, fyrst fram á sum­arið 2019 og svo aftur, í tengslum við gerð lífs­kjara­samn­ing­anna, fram á mitt ár 2021.

Sér­eigna­sparn­að­ar­úr­ræðið eitt og sér, ef frá eru taldir þeir sem nýttu sér Fyrstu fast­eign, hafði í lok síð­asta árs gert lands­mönnum kleift að nota 68 millj­arða króna af sínum eigin sparn­aði til að greiða inn á hús­næð­is­lánið. Tveimur og hálfu ári eftir að upp­haf­lega nýt­ing­ar­tíma­bil­inu lauk hafði upp­gefið 70 millj­arða króna mark­mið Leið­rétt­ing­ar­innar, sem áttu að klár­ast sum­arið 2017, ekki náðst.

Húsnæðisverð hefur hækkað mikið

Hug­myndin á bak við það að heim­ila lands­mönnum að nýta sér­eigna­sparnað sinn með þessu hættir var sú að gefa þeim frek­ari kost á því að stýra betur hvernig sparn­aður þeirra er fjár­festur. Vanalega er sér­eign­ar­sparn­aði ráð­stafað í fjár­fest­ingar í verð­bréfum, en með úrræð­inu var hægt að fjár­festa frekar í eigin hús­næði. Til að skapa hvata var úrræðið haft skatt­frjálst, en vana­lega þarf að greiða skatt af sér­eign­ar­sparn­aði við útgreiðslu.

Ómögu­legt er að segja um hvort muni skila betri ávöxtun til lengri tíma fyrir þá sem eiga t.d. nokkra tugi ára í að fara á eft­ir­laun. Ef miðað er upp­hafs­tíma úrræð­is­ins, sem var í júní 2014, og út síð­asta ár þá hefur íbúða­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækkað um tæp­lega 50 pró­sent. Á sama tíma hefur verð­bólga verið lág og vextir á hús­næð­is­lánum lækkað meira en nokkru sinni áður. Lægstu fáan­legu verð­tryggðu vextir í dag eru 1,69 pró­sent og þrír líf­eyr­is­sjóðir bjóða sjóðs­fé­lögum sínum upp á vexti á aðal­láni (60-70 pró­sent af kaup­verði) sem eru undir tveimur pró­sentum.

Kjarninn mun fjalla ítar­lega um nýt­ingu sér­eign­ar­sparn­aðar til nið­ur­greiðslu hús­næð­is­lána í frétta­skýr­inga­röð næstu daga. Á morgun verður fjallað um fjölda þeirra sem nýtt hafa sér úrræðið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár