Mynd: Birgir Þór Harðarson

Undir þriðjungi vinnumarkaðar nýtir sér skattfrjálsa séreign til að borga niður húsnæðislán

Tekju­hærri lands­menn eru mun lík­legri til að safna í sér­eign en þeir sem eru tekju­lægri. Alls hafa tæp­lega 60 þús­und manns nýtt sér sér­eign­ar­sparnað sinn til að borga inn á hús­næð­is­lán skatt­frjálst. Þar er um að ræða gæði sem ein­ungis þeim eru færð.

Alls höfðu 58.738 ein­stak­lingar nýtt sér sér­eigna­sparnað sinn til að greiða inn á lán eða í útborgun fyrir íbúð í lok árs 2018. Í þeirri tölu er sam­skatt­aðir taldir sem tveir aðilar jafn­vel þótt að ein­ungis annar þeirra hafi greitt inn á höf­uð­stól hús­næð­is­láns þeirra.

Um er að ræða bæði þá sem nýttu sér­eigna­sparnað sinn til hús­næð­is­kaupa og -lána­nið­ur­greiðslu sam­kvæmt úrræði þess efnis sem kynnt var undir hatti Leið­rétt­ing­ar­innar vorið 2014 og þá sem nýttu sér Fyrstu fast­eignar úrræðið, sem var kynnt í ágúst 2016. Um mitt síð­asta ár voru 209 þús­und ein­stak­lingar skráðir starf­andi á íslenskum vinnu­mark­aði. Því má ætla að undir 30 pró­sent starf­andi lands­manna nýti sér sér­eign­ar­sparn­að­ar­úr­ræðið.

End­an­legur fjöldi þeirra sem nýttu sér úrræðið í fyrra til við­bótar við ofan­greindan hóp liggur ekki fyrir fyrr en að skatt­skilum vegna síð­asta árs er lokið.

Þetta kemur fram í tölum sem fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið hefur tekið saman fyrir Kjarnann.

Við lægri mörk sem sviðsmyndir sýndu

Þegar úrræðið um að nota sér­eign­ar­sparnað sinn skatt­frjálst til að greiða niður hús­næð­is­lán var kynnt var það gert þannig að sá hópur sem áætlað var að nýtti sér það myndi geta notað alls 70 millj­arða króna til þeirra verka á tíma­bil­inu. Það byggði á skýrslu sér­fræð­inga­hóps sem skil­aði af sér skýrslu til for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins í nóv­em­ber 2013. Á meðal þeirra sem sátu í sér­fræði­hópnum voru Sigurður Hann­es­son, nú fram­kvæmda­stjóri Samtaka iðn­að­ar­ins, sem var for­maður hans og Lilja D. Alfreðs­dóttir, nú mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra.

Þegar frum­varp var loks lagt fram, til að lög­binda úrræðið, sagði í grein­ar­gerð þess að áður­nefnt mat sér­fræð­inga­hóps­ins hefði verið „nokk­urri óvissu háð“. Ekkert talna­legt mat lægi fyrir á úrræð­inu.

Því skip­aði Bjarni Bene­dikts­son, þáver­andi og núver­andi fjár­mála- og efna­hags­hags­ráð­herra, nýjan starfs­hóp til að reikna áhrif úrræð­is­ins. Sá hópur skil­aði af sér þremur sviðs­myndum sem sýndu að fram á mitt ár 2017 myndu 56.066 til 81.597 ein­stak­lingar nýta sér sér­eigna­sparnað til að greiða niður hús­næð­is­lán eða til í útgreiðslu útborg­unar. Heild­ar­upp­hæðin sem þessi hópur átti að geta greitt inn á hús­næð­is­skuldir sínar átti að vera 60 til 82 millj­arðar króna.

Um síð­ast­lið­inn ára­mót, tveimur og hálfu ári eftir að upp­haf­legur tímara­mmi úrræð­is­ins var lið­inn, þá var fjöldi þeirra sem höfðu nýtt sér úrræðið rétt yfir lægstu mörkum þess sem búist var við. Upphæðin sem nýtt hefur verið í sér­eign­ar­sparn­að­ar­úr­ræðið eitt og sér var um 68 millj­arðar króna, og hafði ekki náð þeirri 70 millj­arða króna upp­hæð sem kynnt var í Hörpu í mars 2014, þegar Leið­rétt­ingin var form­lega opin­beruð. Ofan á hana bæt­ist svo sú upp­hæð sem nýtt hefur verið í gegnum Fyrstu fast­eign, en sam­an­lagt nema heild­ar­um­svif beggja úrræða 74,5 millj­örðum króna.

Tekjuhærri líklegri til að nýta sér úrræðið

Það hefur alltaf legið fyrir að lík­legra væri að tekju­hærri lands­menn myndu nýta sér úrræðið. Í skýrslu áður­nefnds sér­fræð­inga­hóps um höf­uð­stólslækk­un kom fram að með­al­launa­tekjur fjöl­skyldna sem spör­uðu í sér­eign og skuld­uðu í fast­eign væri miklu hærri en með­al­launa­tekjur þeirra sem spara ekki. „Al­mennt eru tekjur þeirra sem spara í sér­eigna­líf­eyr­is­sparn­aði mun hærri en hinna sem ekki gera það,“ stóð orð­rétt í skýrsl­unni.

Þar sagði einnig að „tekju­mis­munur þeirra sem spara og gera það ekki er mik­ill á öllum aldri. Hér er alls staðar átt við fast­eigna­eig­endur sem skulda eitt­hvað í fast­eign­inn­i.“

Þar sem nýt­ing sér­eigna­sparn­aðar til nið­ur­greiðslu hús­næð­is­láns er skatt­frjáls er ljóst að hún felur í sér mik­inn ávinn­ing fyrir þá sem nýta sér leið­ina. Það er skatt­frelsi sem öðrum býðst ekki á líf­eyr­is­sparnað sinn. Ríkið er því að færa þeim hópi sem nýtir sér leið­ina gæði umfram aðra. Þá ber að nefna að til við­bótar við það sem laun­þegar sjálfir spara í sér­eign, og greiða inn á lán sín, þá kemur mót­fram­lag atvinnu­rek­enda. sem er ekk­ert annað en við­bót­ar­laun til þeirra sem safna slíkum. Alls greiddu atvinnu­rek­endur 26 millj­arða króna fram til loka síð­asta árs inn á hús­næð­is­lán þeirra sem not­uðu sér­eigna­sparnað sinn til slíks, eða í útgreiðslu á útborgun fyrir hús­næði við kaup.

Kjarninn fjallar þessa dag­anna ítar­lega um nýt­ingu sér­eign­ar­sparn­aðar til nið­ur­greiðslu hús­næð­is­lána í frétta­skýr­inga­röð. Á morgun verður fjallað um þann skatta­af­slátt sem not­endur hafa fengið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár