Segir dóm Mannréttindadómstólsins vera fullnaðarsigur

Ólafur Ólafsson segir að nið­ur­staða Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins sýni fram á að hann hafi ekki notið rétt­látrar máls­með­ferðar og úrlausnar fyrir óvil­höllum dóm­stólum.

Ólafur Ólafsson
Ólafur Ólafsson Mynd: RÚV/Skjáskot.

Ólafur Ólafsson, einn sak­born­inga í Al Thani-mál­inu svo­kall­aða og einn stærsti eig­andi Kaup­þings fyrir hrun, segir að nið­ur­staða Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins sýni fram á að hann hafi ekki notið rétt­látrar máls­með­ferðar og úrlausnar fyrir óvil­höllum dóm­stólum, sem sé einn af horn­steinum rétt­ar­rík­is­ins. Frá þessu greinir hann í til­kynn­ingu sem hann sendi fjöl­miðlum í kjöl­far nið­ur­stöð­unnar í morgun.

[links]Fram hefur komið í fjöl­miðlum að Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu hafi kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að hæsta­rétt­ar­dóm­ar­inn Árni Kol­beins­son hafi ekki verið óhlut­drægur í Al-T­hani mál­inu.

„Þetta stað­festir athuga­semdir sem ég hef gert við með­ferð máls­ins á öllum stigum þess; íslenskir dóm­arar hafa ekki gætt að hæfi sínu og setið í dómi þar sem vafi leikur á hlut­leysi þeirra. Í við­leitni til að sanna sak­leysi mitt hef ég ítrekað rek­ist á veggi þar sem sam­tvinnuð hags­muna­gæsla óskil­greindra afla í dóms­kerf­inu hefur komið í veg fyrir að hægt væri að leiða hið sanna í ljós. Fegurðin við Ísland felst meðal ann­ars í fámenn­inu en við þær aðstæður verður sér­stak­lega að gæta að hlut­leysi í við­kvæmum málum vegna náinna tengsla í litlu sam­fé­lagi. Mann­rétt­inda­dóm­stóll­inn stað­festir að það er sann­ar­lega brot á mann­rétt­indum þegar van­hæfur dóm­ari situr í dómi. Þetta er fulln­að­ar­sigur,“ segir Ólafur.

Í Al Than­i-­­mál­inu voru þrír af æðstu stjórn­­endum Kaup­­þings, þeir Hreiðar Már Sig­­urðs­­son, Sig­­urður Ein­­ar­s­­son og Magnús Guð­­munds­­son ákærðir ásamt Ólafi Ólafs­­syni, einum stærsta eig­anda bank­ans fyrir hrun, fyrir umboðs­svik, mark­aðs­mis­­­notkun og hlut­­deild í umboðs­svik­­um.

Mál­inu lauk með dómi Hæsta­réttar þann 12. febr­­úar 2015 þar sem allir ákærðu voru sak­­felld­­ir. Hreiðar Már var sak­­felldur í öllum ákæru­liðum og dæmdur til 5 og hálfs árs fang­els­is, Sig­­urður var sak­­felldur sam­­kvæmt ákæru hvað varðar mark­aðs­mis­­­notkun en fyrir hlut­­deild í umboðs­svikum og dæmdur til 4 ára fang­els­­is. Ólafur var sak­­felldur vegna mark­aðs­mis­­­not­k­unar en sýkn­aður í ákæru­liðum varð­andi umboðs­­svik og dæmdur til 4 og hálfs árs fang­elsis og Magnús var sak­­felldur í öllum ákæru­liðum og dæmdur til 4 og hálfs árs fang­els­­is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár