Bjarni telur óraunhæft að halda stjórnarsamstarfinu áfram

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, telur það ekki raun­hæft að rík­is­stjórn­ar­sam­starf flokks hans og Fram­sókn­ar­flokks haldi áfram eftir kom­andi kosn­ingar, þar sem að fylgi þeirra verði að öllum lík­indum ekki nægt til að mynda tveggja flokka rík­is­stjórn. „Það virð­ist ekki vera mögu­leiki að þessir tveir flokkar saman myndi einir rík­is­stjórn og þá verður maður að vera opinn fyrir öllum öðrum kostum, maður verður bara að beita ein­hverju raun­sæi,“ sagði Bjarni í þætt­inum For­ystu­sæt­inu á RÚV í gær­kvöldi.

Þar sagði Bjarni að aðstæður í stjórn­málum væri mjög óvenju­legar. Fyrir honum væri alltaf fyrsti kostur að mynda tveggja flokka stjórn, mörg erfið mál komi upp á hverju kjör­tíma­bili og eftir því sem flokk­arnir í stjórn verði fleiri verði sér­sjón­ar­miðin magn­aðri. Það geti leitt til stjórn­ar­falls.

Samkvæmt nýj­ustu Kosn­inga­spá Kjarnans munu sjö flokkar fá yfir fimm pró­senta fylgi og myndu því geta náð inn kjör­dæma­kjörnum þing­mönnum í kosn­ing­unum þann 29. októ­ber næst­kom­andi. Það stendur þó tæpt hjá Bjartri fram­tíð, sem hefur mælst með 5,1 pró­senta fylgi í tveimur kosn­inga­spám í röð. Miðað við stöð­una í dag geta engir tveir flokkar myndað tveggja flokka rík­is­stjórn. Þeir flokkar sem eru næst því eru Sjálf­stæð­is­flokkur og Píratar, en for­svars­menn beggja flokka hafa sett mik­inn fyr­ir­vara við hinn og ólík­legt verður að telj­ast að þeir vinni saman að loknum kosn­ingum.

Einu sinni á lýð­veld­is­tím­anum hefur það gerst að sjö flokkar nái kjöri á Alþingi, en það var árið 1987. Þá voru klofn­ings­fram­boð frá bæði Sjálf­stæð­is­flokki og Fram­sókn­ar­flokki í fram­boði og fengu menn inn á þing. Borg­ara­flokk­ur­inn, undir for­ystu Alberts Guð­munds­son­ar, náði sjö mönnum inn á þing. Þá fengu Sam­tök um jafn­rétti og félags­hyggju einn mann kjör­inn í eina kjör­dæm­inu sem boðið var fram í, Norð­ur­landi eystra, en það var Stefán Val­geirs­son. Sam­tök um jafn­rétti og félags­hyggju var sér­fram­boð hans, en hann hafði áður verið lengi þing­maður fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn, rétt eins og Albert hafði lengi verið þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Í þessum kosn­ingum náði Kvenna­list­inn einnig að tvö­falda fylgi sitt frá kosn­ing­unum 1983, og fékk sex þing­konur inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár