Bjarni Már: Uppsögn mín úr starfi framkvæmdastjóra óverðskulduð og meiðandi

Fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Orku nátt­úr­unnar seg­ist hafa fengið kaldar kveðjur eftir 6 ára far­sæl störf í þágu OR og Orku nátt­úr­unnar.

Bjarni Már Júlíusson
Bjarni Már Júl­í­us­son Mynd: Af vef Orku náttúrunnar

Bjarni Már Júl­í­us­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Orku nátt­úr­unnar, hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu þar sem hann segir það vera honum léttir að skýrsla Innri end­ur­skoð­unar Reykja­vík­ur­borgar liggi nú fyrir og stað­festi að upp­sögn starfs­manns ON sem mestur styrr hefur staðið um hafi verið rétt­mæt og byggði á fag­legu mati.

[links]Samkvæmt nið­ur­stöðum úttektar Reykja­vík­ur­borgar voru upp­sagnir þeirra Áslaugar Thelmu Ein­ars­dóttur og Bjarna Más taldar rétt­mætar. Frá þessu var greint á frétta­manna­fundi OR í dag. Í frétt Kjarnans frá 13. sept­em­ber síð­ast­liðnum kemur fram að starfs­lok Bjarna Más hafi tengst til­vikum þar sem fram­koma hans gagn­vart sam­starfs­fólki var óvið­eig­andi.

Í til­kynn­ingu Bjarna Más segir að þá sé það ein af nið­ur­stöðum skýrsl­unnar að ásak­anir um mis­munun á grund­velli kyn­ferðis og um kyn­ferð­is­legt áreiti í sam­skiptum hans við sam­starfs­fólk eigi ekki við nein rök að styðj­ast.

„Fyr­ir­vara­laus upp­sögn mín úr starfi fram­kvæmda­stjóra ON var hins vegar að mínu mati bæði óverð­skulduð og meið­andi og til hennar gripið í skyndi án þess að mér væri gef­inn kostur á að útskýra mitt mál. Það fund­ust mér kaldar kveðjur eftir 6 ára far­sæl störf í þágu OR/Orku nátt­úr­unnar,“ segir hann í yfir­lýs­ing­unni.

Hann segir jafn­framt það hafa verið ömur­lega reynslu fyrir hann og fjöl­skyldu hans að fylgj­ast með hvernig vegið hafi verið að mann­orði hans með vand­lega útfærðum spuna, sem dreift hafi veirð á rétta staði til að ná sem mestri fylgni við ein­hliða og óstað­festa frá­sögn af máls­at­vikum. „Ég vona að með nið­ur­stöðum úttektar Innri end­ur­skoð­unar linni atlögum að mann­orði mínu og óhróðri um minn fyrr­ver­andi vinnu­stað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár