Uppsögn Áslaugar Thelmu talin réttmæt

Uppsögn Áslaugar Thelmu Ein­ars­dóttur, fyrr­ver­andi for­stöðu­manns Orku Nátt­úr­unnar, var rétt­mæt að mati innri end­ur­skoð­unar Reykja­vík­ur­borgar.

Uppsögn Áslaugar Thelmu Ein­ars­dóttur, fyrr­ver­andi for­stöðu­manns Orku Nátt­úr­unnar, var rétt­mæt að mati innri end­ur­skoð­unar. Frá þessu er greint á vef Frétta­blaðs­ins. Í til­kynn­ingu frá Orku­veitu Reykja­víkur kemur fram að Áslaug Thelma hafi fengið skýr­ingar á upp­sögn sinni en frek­ari skýr­ingum sem boðnar voru fram á fundi hafi verið hafnað. Ábending sé í skýrslu innri end­ur­skoðun um að hún hefði átt að fá skrif­legar skýr­ingar þegar við upp­sögn.

[links]Stjórn OR óskaði eftir því við innri end­ur­skoðun Reykja­vík­ur­borgar í sept­em­ber að gerð yrði úttekt á vinnu­stað­ar­menn­ingu og til­teknum starfs­manna­málum innan fyr­ir­tæk­is­ins. Málið má rekja til þess að Áslaug Thelma Ein­ars­dóttir, fyrr­ver­andi for­stöðu­maður ein­stak­lings­mark­aðar hjá Orku nátt­úr­unnar, skrif­aði færslu á Facebook þar sem hún sagð­ist hafa verið rekin fyrir að kvarta undan hegðun Bjarna Más Júlí­i­us­sonar, þáver­andi fram­kvæmda­stjór ON. Bjarni Már var rek­inn vegna óvið­eig­andi fram­komu en ástæða upp­sagn­ar­innar voru tölvu­póstar sem Bjarni sendi kven­kyns und­ir­mönnum sínum.

Bjarni Bjarna­son, for­stjóri Orku­veitu Reykja­víkur, óskaði eftir því að stíga tíma­bundið til hliðar sem for­stjóri OR á meðan mál Orku­veit­unnar væru til skoð­unnar og úttekt gerð á vinnu­stað­ar­menn­ingu fyr­ir­tæk­is­ins. Helga Jóns­dóttir tók þá tíma­bundið við starfi for­stjóra.

Vinnustaðamenning OR betri en gengur og gerist

Samkvæmt nið­ur­stöðum úttekt­ar­innar er vinnu­staða­menn­ing hjá Orku­veitu Reykja­víkur og dótt­ur­fyr­ir­tækjum betri en gengur og ger­ist á íslenskum vinnu­mark­aði. Þá kemur fram að upp­sagnir þeirra Áslaugar Thelmu Ein­ars­dóttur og Bjarna Más Júl­í­us­sonar hjá Orku nátt­úr­unnar (ON) séu taldar rétt­mætar. Ábend­ingar um fram­kvæmd upp­sagn­anna eru í úttekt­inni og hvatt er til að skerpt verði á verk­ferlum.

„Það er mik­il­vægt að nú liggur fyrir óháð og ítar­leg skoðun á þeim atburðum sem urðu að brennid­epli opin­berrar umræðu nú í haust og einnig ábend­ingar um þá lær­dóma sem við þurfum að draga af þeim,“ segir Bryn­hildur Dav­íðs­dóttir, for­maður stjórnar Orku­veitu Reykja­víkur. Í heild­ina er hún ánægð með nið­ur­stöðu könn­unar á vinnu­stað­ar­menn­ingu hjá OR og dótt­ur­fyr­ir­tækj­unum.

„Í ljósi þess hvernig umræðan þró­að­ist þá var mik­il­vægt að skoða hvort brotið hafði verið á fólki eða hvort að ásak­anir um óheil­brigða vinnu­staða­menn­ingu ættu við rök að styðj­ast. Nið­ur­stöð­urnar stað­festa að svo er ekki. Við tökum ábend­ing­arnar í skýrsl­unni alvar­lega og munum vinna skipu­lega úr þeim. Áreitni og ein­elti eiga ekki að líð­ast,“ segir hún.

Í úttekt­arteym­inu voru Hallur Sím­on­ar­son innri end­ur­skoð­andi Orku­veitu Reykja­víkur, Jenný Stefanía Jens­dóttir verk­efna­stjóri í rann­sókn­ar­end­ur­skoðun IER, Kristín Vil­hjálms­dóttir skrif­stofu­stjóri hjá IER, Svala Guð­munds­dóttir dós­ent í mannauðs­stjórnun við Við­skipta­fræði­deild Háskóla Íslands, Inga Björg Hjalta­dóttir lög­maður hjá Attentus, Sigríður Þor­geirs­dóttir lög­fræð­ingur hjá Attentus og Félags­vís­inda­stofnun Háskóla Íslands undir stjórn Guð­bjargar Andreu Jóns­dóttur for­stöðu­manns sem sá um könnun meðal starfs­fólks og úrvinnslu.

Í til­kynn­ingu frá OR kemur fram að nið­ur­stöður úttekt­ar­innar séu í takti við þann mæl­an­lega árangur sem náðst hefur í jafn­rétt­is­málum innan Orku­veitu Reykja­víkur. Tekist hafi að útrýma kyn­bundnum launa­mun innan OR og að fyr­ir­tækið njóti jafn­launa­vott­unar Jafn­rétt­is­stofu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár