Fjármálastjóri OR var áminntur vegna kynferðislegrar áreitni

Fjár­mála­stjóri OR segir í til­kynn­ingu að hann hafi farið í áfeng­is­með­ferð eftir atvikið.

„Vegna fyr­ir­spurna vil ég stað­festa að ég hlaut form­lega áminn­ingu vegna óvið­eig­andi kyn­ferð­is­legrar áreitni á árs­há­tíð fyr­ir­tæk­is­ins fyrir 3 árum síðan. Ég hef iðr­ast þessa æ síðan. Ég fór strax í kjöl­farið í áfeng­is­með­ferð og leit­aði mér einnig við­eig­andi aðstoðar.“

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Ingvari Stef­áns­syni, fram­kvæmda­stjóra fjár­mála Orku­veitu Reykja­víkur. OR hefur gert áminn­ing­una opin­bera, en hana fékk starfs­mað­ur­inn frá for­stjór­anum, Bjarna Bjarna­syni.

Eins og greint var frá fyrr í dag, þá hefur Bjarni Bjarna­son, for­stjóri OR, ákveðið að stíga til hliðar tíma­bundið, á meðan það ferð fram heild­ræn skoðun á atvikum sem fjallað hefur verið um opin­ber­lega að und­an­förnu og einnig skoðun á vinnu­staða­menn­ingu OR.

Fram kom í fréttum fyrir helgi að Bjarni Már Júl­í­us­­son hefði verið rek­inn sem fram­­kvæmda­­stjóri Orku nátt­úr­unnar vegna óvið­eig­andi hegð­unar gagn­vart sam­­starfs­­fólki sínu.

Áslaug Thelma Ein­­­ar­s­dótt­ir, sem sagt var upp störf­um hjá Orku nátt­úr­unn­ar fyr­ir viku.

Í færslu á Facebook síðu sinni gagn­rýnir hún for­­stjóra Orku­veit­unnar harð­­lega og seg­ist ætlar að leita réttar síns af fullum þunga. Í stöð­u­­upp­­­færslu sinni fer hún ítar­­lega yfir brott­­rekstur sinn hjá ON, sem hún segir til­­hæfu­­lausan, og seg­ist hún reið og slegin vegna afgreiðsl­unnar á mál­inu öllu.

Stjórn­ar­for­maður OR, Bryn­hildur Dav­íðs­dóttir, sagði í til­kynn­ingu í dag að fjallað yrði ítar­lega um þessi mál sem að framan greinir. „Ósk for­stjóra OR um að stíga tíma­bundið til hlið­ar, sem mér barst nú undir kvöld, verður tekin fyrir á fundi stjórnar fyr­ir­tæk­is­ins sem hald­inn verður eins fljótt og auðið er. Þegar hefur verið óskað eftir því við Innri end­ur­skoðun Reykja­vík­ur­borgar að gerð verði úttekt á vinnu­stað­ar­menn­ingu og til­teknum starfs­manna­mál­um. Und­ir­bún­ingur hennar er þegar haf­inn,“ sagði í til­kynn­ingu Bryn­hildar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár