Forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur tjáir sig ekki meira um starfsmannamál ON

Bjarni Bjarna­son mun ekki tjá sig frekar opin­ber­lega um starfs­lok starfs­fólks hjá Orku nátt­úr­unnar. Nýr fram­kvæmda­stjóri hefur verið ráð­inn tíma­bundið.

Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur.
Bjarni Bjarna­son, for­stjóri Orku­veitu Reykja­víkur. Mynd: RÚV

Bjarni Bjarna­son, for­stjóri Orku­veitu Reykja­víkur og for­maður stjórnar Orku nátt­úr­unnar, mun ekki ræða frekar opin­ber­lega um starfs­lok starfs­fólks hjá Orku nátt­úr­unnar að svo stöddu. Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu frá honum í dag.

Fram kom í fréttum fyrir helgi að Bjarni Már Júl­í­us­son hefði verið rek­inn sem fram­kvæmda­stjóri Orku nátt­úr­unnar vegna óvið­eig­andi hegð­unar gagn­vart sam­starfs­fólki sínu.

Í yfir­lýs­ingu Bjarna kemur jafn­fram fram að honum hafi borið skylda til að skýra frá ástæðu starfs­loka fram­kvæmda­stjóra Orku nátt­úr­unnar. „Um opin­berar umræður um mál­efni ann­ars starfs­fólks en æðsta stjórn­anda gildir öðru máli. Óski starfs­maður að fara betur yfir skýr­ingar á ástæðum starfs­loka, stendur slíkt að sjálf­sögðu til boða,“ segir hann.

Áslaug Thelma Ein­ars­dótt­ir, sem sagt var upp störf­um hjá Orku nátt­úr­unn­ar fyr­ir viku, tjáir sig um málið á Facebook í dag. Hún gagn­rýnir for­stjóra Orku­veit­unnar harð­lega og seg­ist ætlar að leita réttar síns af fullum þunga. Í stöðu­upp­færslu sinni fer hún ítar­lega yfir brott­rekstur sinn hjá ON, sem hún segir til­hæfu­lausan, og seg­ist hún reið og slegin vegna afgreiðsl­unnar á mál­inu öllu.

Berglind Rán tekur tímabundið við stöðu framkvæmdastjóra

Ákveðið hefur verið að for­stöðu­maður fyr­ir­tækja­mark­aða ON, Berglind Rán Ólafs­dóttir, taki tíma­bundið við starfi fram­kvæmda­stjóra ON en ekki for­stöðu­maður tækni­þró­unar, eins og áður var til­kynnt.

Berglind er sam­einda­líf­fræð­ingur með MBA próf frá IESE í Barcelona. Hún kom til starfa hjá Orku nátt­úr­unnar fyrir ári og hafði þá meira en ára­tug­ar­reynslu af við­skipta­þróun meðal ann­ars hjá Lands­virkjun, Medis og Íslenskri erfða­grein­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár