Píratar tilbúnir að styðja við minnihlutastjórn félagshyggjuflokka

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir segir að Píratar séu til­búnir að styðja rík­is­stjórn Vinstri grænna, Fram­sókn­ar­flokks og Sam­fylk­ingar án þess að setj­ast í þá stjórn. Slík minni­hluta­stjórn nyti þá stuðn­ings 33 þing­manna, eða þremur fleiri en stæðu á móti henni.

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata.
Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

Píratar eru til­búnir að verja minni­hluta­stjórn Vinstri grænna, Fram­sókn­ar­flokks og Sam­fylk­ingar falli án þess að taka sæti í slíkri rík­is­stjórn. Þetta sagði Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata og odd­viti flokks­ins í Suð­vest­ur­kjör­dæmi, í Silfrinu í dag.

Sam­an­lagt eru þessir þrír flokkar með 27 þing­menn en ef sex þing­menn Pírata bæt­ast við þá yrðu 33 þing­menn á bak­við slíka rík­is­stjórn gegn 30 sem myndu standa gegn henni. Heim­ildir Kjarnans herma að þessi hug­mynd hafi verið rædd umtals­vert innan Sam­fylk­ingar og Pírata sem sá val­kostur sem Fram­sókn­ar­flokki og Vinstri grænum standi til boða kjósi flokk­arnir ekki að end­ur­nýja stjórn­ar­sam­starfið. Til greina kemur að reyna að fá Flokk fólks­ins til að styðja einnig við minni­hluta­stjórn­ina gegn því að ná saman við hann um helsta kosn­inga­mál hans, bætta grunn­fram­færslu við­kvæmra og jað­ar­settra hópa á Íslandi. Þá myndi fjöldi þeirra þing­manna sem styddi minni­hluta­stjórn­ina fara í 39.

Innan bæði Fram­sókn­ar­flokks og Vinstri grænna hefur verið fyr­ir­vari á stjórn­ar­sam­starfi við Pírata af ýmsum ástæðum og með þess­ari lausn er hægt að kom­ast fram­hjá því skil­yrði Pírata að þátt­taka í rík­is­stjórn­ar­sam­starfi velti á því að ný stjórn­ar­skrá verði inn­leidd á næsta kjör­tíma­bili.

Með 33 þingmenn á bakvið minnihlutastjórn

Fram­sókn, Vinstri græn, Sam­fylk­ing og Pírat­ar, ræddu saman um myndun rík­is­stjórnar eftir kosn­ing­arnar 2017. Þá höfðu flokk­arnir saman 32 þing­menn en hafa nú, líkt og áður sagði, 33 þing­menn á bak­við sig.

[adspot]Árið 2017 sleit Sig­urður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, við­ræð­unum eftir að hann taldi meiri­hlut­ann of tæp­an.

Fátt bendir til ann­ars sem stendur en að sitj­andi rík­is­stjórn Vinstri grænna, Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks end­ur­nýi sam­starf sitt. Óform­legar við­ræður um helstu mál­efna­á­herslur, helstu deilu­mál og verka­skipt­ingu hafa staðið yfir frá því í byrjun lið­innar viku. Heim­ildir Kjarnans herma að til skoð­unar sé að fjölga ráðu­neytum og færa mál­efni á milli þeirra. Þar er helst horft til þess að búa til nýtt inn­við­a­ráðu­neyti með því að færa meðal ann­ars hús­næð­is­mál inn í sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neytið og að skipta sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráðu­neyt­inu upp í tvennt á ný.

Framsókn sækist eftir frekari áhrifum

Gengið er út frá því í við­ræð­unum að Katrín Jak­obs­dóttir verði áfram for­sæt­is­ráð­herra.

[links]Sig­urður Ingi sæk­ist sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans eftir því að fá fjár­mála­ráðu­neytið á grund­velli auk­ins styrks Fram­sókn­ar­flokks­ins eftir kosn­ing­ar, en þing­mönnum flokks­ins fjölg­aði um fimm og eru nú 13, eða þremur færri en sá fjöldi sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hef­ur. Það þykir næst valda­mesta ráðu­neytið og þaðan er hægt að stýra fjár­magni í þau stóru verk­efni sem Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn lof­aði að ráð­ast í í aðdrag­anda kosn­ing­anna, til að mynda kerf­is­breyt­inga í fram­færslu­kerfum eldri borg­ara og öryrkja.

Við­mæl­endur Kjarn­ans hafa sagt að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sé ekki afhuga þess­ari nið­ur­stöðu fái Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fleiri ráðu­neyti í sinn hlut í stað­inn. Sjálfur myndi hann þá senni­leg­ast setj­ast í stól utan­rík­is­ráð­herra.

Ef Fram­sókn­ar­flokkur og Vinstri græn myndu ákveða að fara í minni­hluta­stjórn með Sam­fylk­ingu, sem tap­aði fylgi og þing­manni í liðnum kosn­ingum, myndu flokk­arnir fá mun meiri áhrif og fleiri ráðu­neyti til að stýra. Engin hefð er fyrir myndun minni­hluta­stjórna sem varðar eru falli af flokkum sem standa utan form­legs stjórn­ar­sam­starfs hér­lendis. Það er fyr­ir­komu­lag sem tíðkast víða á Norð­ur­lönd­unum en minni­hluta­stjórnir eru við stjórn­völ­inn í Nor­egi, Sví­þjóð og Dan­mörku sem stend­ur. Í Finn­landi er meiri­hluta­stjórn fimm flokka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár