Sjö átakamál sem Alþingi mun ræða á vorþingi

Alþingi kemur saman á ný á þriðju­dag eftir jóla­frí. Kjarninn tók saman nokkur af stærstu mál­unum sem munu koma til kasta þings­ins á vor­þing­inu.

1. Kvótafrumvörp


Til stendur að breyta lögum um fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerfið og um veiði­gjöld. Frum­varpið hefur ekki verið kynnt form­lega, en í þing­mála­skrá rík­is­stjórn­ar­innar kemur fram að áfram verði unnið á grunni til­lögu sátta­nefndar í sjáv­ar­út­vegi, sem starf­aði á síð­asta kjör­tíma­bili.

Gert er ráð fyrir því að gerðir verði nýt­inga­samn­ingar til 23 ára um afla­heim­ildir og álagn­ing veiði­gjalda verði ein­földuð, þannig að þau verði aðeins lögð á útgerðir og verði inn­heimt miðað við afla­verð­mæti. Ekki verða gerðar breyt­ingar á pottum fyrir byggða­kvóta, strand­veiðar og leigu­kvóta.

Þá hefur komið fram að Sigurður Ingi Jóhanns­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, hyggst mögu­lega leggja fram sér­stakt frum­varp um kvóta­setn­ingu mak­ríls, „vegna þeirra sér­stöku aðstæðna sem uppi eru um stjórn mak­ríl­veiða.“

2. Evrópusambandsaðild dregin til baka


Á síð­ustu vikum hafa Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra, Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra og Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra allir tjáð sig um fram­lagn­ingu þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um að draga aðild­ar­um­sókn að Evr­ópu­sam­band­inu til baka. Tillagan var lögð fram á síð­asta þingi, vakti mjög hörð við­brögð og fór aldrei úr nefnd.

Sig­mundur Davíð sagð­ist í upp­hafi árs búast við því að ný til­laga yrði lögð fram á vor­þingi, Gunnar Bragi segir að afstaða hans hafi ekki breyst frá því hann lagði til­lög­una fram síð­ast og Bjarni segir að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn muni styðja til­lög­una komi hún fram. Gunnar Bragi hefur þó sagt að mögu­lega verði gerðar ein­hverjar breyt­ingar á til­lög­unni.

Búast má við alveg jafn hörðum við­brögðum við til­lög­unni nú eins og síð­ast þegar hún var lögð fram. Nú þegar hafa aðstand­endur úti­fund­anna sem haldnir voru þá sent frá sér yfir­lýs­ingu um málið þar sem þess er enn kraf­ist að haldin verði þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um það hvort halda eigi við­ræðum við Evr­ópu­sam­bandið áfram.

3. Breytingar á húsnæðiskerfinu


Fjögur frum­vörp sem tengj­ast hús­næð­is­kerf­inu eiga eftir að koma fram á þing­inu. Helst ber að nefna frum­varp til laga um hús­næð­is­mál, hús­næð­is­sam­vinnu­fé­lög og breyt­ingar á húsa­leigu­lögum. Eygló Harð­ar­dóttir félags­mála­ráð­herra er með þessi mál á sinni könnu, og til stendur að breyta skipu­lagi hús­næð­is­lána,efla hús­næð­is­sam­vinnu­fé­lög og breyta umgjörð leigu­mark­aðar. Frum­vörpin byggja á til­lögum verk­efn­is­stjórnar um fram­tíð­ar­skipan hús­næð­is­mála.

Þá hefur Eygló Harð­ar­dóttir boðað að staðið verði við kosn­inga­lof­orð Fram­sókn­ar­flokks­ins um að afnema verð­trygg­ingu, þrátt fyrir að meiri­hluti starfs­hóps um afnám verð­trygg­ingar hafi kom­ist að því að ekki ætti að banna verð­trygg­ingu með öllu.

4. Náttúruverndarlög og rammaáætlun


Samkvæmt þing­mála­skrá rík­is­stjórn­ar­innar á að leggja fram breyt­ingar á lögum um nátt­úru­vernd, sem síð­asta rík­is­stjórn kom í gegn en Sigurður Ingi Jóhanns­son vildi fella úr gildi. Nið­ur­staða þess máls var að gild­is­töku lag­anna var frestað til 1. júlí á þessu ári, en að breyt­ingar yrðu lagðar fram. Það kemur því vænt­an­lega í hlut Sigrúnar Magn­ús­dóttur, nýs umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, að leggja þessar breyt­ingar fram.

Ramma­á­ætlun, áætlun um vernd og orku­nýt­ingu land­svæða, er í end­ur­skoðun og meiri­hluti atvinnu­vega­nefndar vill að átta virk­un­ar­kostir séu færðir úr bið­flokki í nýt­ing­ar­flokk, en áður hafði verið lagt til að virkj­ana­kostur í Þjórsá yrði færður. Þessi mál eiga eftir að koma til ann­arrar umræðu í þing­inu.

5. Náttúrupassinn


Ragn­heiður Elín Árna­dóttir lagði fram hið umdeilda frum­varp um nátt­úrupass­ann í des­em­ber en það hefur ekki verið tekið til umræðu á þing­inu. Það verður vænt­an­lega gert fljót­lega eftir að þingið kemur saman. Þrátt fyrir að form­leg umræða sé ekki hafin í þing­inu hefur frum­varpið verið gagn­rýnt tals­vert. Samkvæmt frum­varp­inu mun þurfa að kaupa nátt­úrupassa fyrir 1500 krónur til þess að heim­sækja ferða­manna­staði á Íslandi.

6. Staðgöngumæðrun í velgjörðarskyni


Þrjú ár eru liðin síðan Alþingi ályktaði að skipa starfs­hóp til að und­ir­búa frum­varp um að heim­ila stað­göngu­mæðrun í vel­gjörð­ar­skyni. Samkvæmt þeirri til­lögu átti að leggja fram frum­varpið svo fljótt sem verða mætti, og nú hafa drög að frum­varpi verið birt og til stendur að leggja frum­varpið fram nú í vor.

Þennan langa tíma sem liðið hefur má lík­lega skýra með því að verk­efnið þykir mjög flókið og nefndin sem samdi það stóð frammi fyrir mörgum erf­iðum úrlausn­ar­efnum. Búast má við átökum í þing­inu þvert á flokkslínur þegar málið kemur þangað.

7. Afnám lágmarksútvars


Fyrstu sex málin á list­anum eru öll mál sem ráð­herrar hafa eða munu leggja fram. Frumvarp um breyt­ingu á lögum um tekju­stofna sveit­ar­fé­laga, sem gerir ráð fyrir því að lág­marks­út­svar verði afnumið, er lagt fram af sex stjórn­ar­þing­mönnum. Það eru þau Unnur Brá Kon­ráðs­dóttir, Ragn­heiður Rík­harðs­dóttir, Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, Pétur H. Blöndal, Vil­hjálmur Bjarna­son og Vil­hjálmur Árnason. Frumvarp af þessu tagi hefur tvisvar verið lagt fram en ekki náð fram að ganga, en mun­ur­inn nú er sá að kveðið er á um afnám lág­marks­út­svars í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar. Því verður að telj­ast lík­legt að það nái lengra en fyrri frum­vörpin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár