Ríkisstjórnin tapar stuðningi hraðar en fyrirrennarar hennar

Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir mæl­ast ekki með meiri­hluta atkvæða á bak við sig. Þrír flokkar, sem skil­greina sig á hinni frjáls­lyndu miðju, eru þeir einu sem bæta við sig fylgi frá síð­ustu kosn­ingum. Þeir hafa bætt við sig þriðj­ungs­fylgi.

Sameiginlegt fylgi ríkisstjórnarflokkanna þriggja mælist nú 47,6 prósent. Vinstri græn, flokkur Katrínar Jakobsdóttur, og Framsóknarflokkur Sigurðar Inga Jóhannssonar hafa tapað meira af sínu fylgi en Sjálfstæðisflokkurinn.
Sam­eig­in­legt fylgi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna þriggja mælist nú 47,6 pró­sent. Vinstri græn, flokkur Katrínar Jak­obs­dóttur, og Fram­sókn­ar­flokkur Sigurðar Inga Jóhanns­sonar hafa tapað meira af sínu fylgi en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur, sem í sitja Vinstri græn, Sjálf­stæð­is­flokkur og Fram­sókn­ar­flokkur, hefur fallið um 13,7 pró­sentu­stig frá ára­mótum. Það er meira fall í stuðn­ingi á fyrstu fjórum mán­uðum rík­is­stjórnar en hjá nokk­urri annarri rík­is­stjórn sem setið hefur frá ald­ar­mótum. Þetta kemur fram í nýjum þjóð­ar­púlsi Gallup sem birtur var í gær.

Sú sem kemst næst rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur í töp­uðum stuðn­ingi á fyrstu mán­uðum starfsævi sinnar er rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar sem tók við völdum vorið 2013. Hún tap­aði 13,4 pró­sentu­stigum af stuðn­ingi sínum á fyrstu fjórum mán­uðum. Á meðal fyrstu verk­efna sem sú rík­is­stjórn réðst í var að lækka veiði­gjöld á útgerðir.

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina mæld­ist 74,1 pró­sent í lok síð­asta árs, þegar rík­is­stjórnin hafði starfað í um mánuð. Síðan þá hefur hann dalað með hverri könn­un­inni sem gerð hefur verið og mæld­ist 60,4 pró­sent í þeirri sem var birt í gær.

Rík­is­stjórn Katrínar hefur þurft að takast á við erfið mál eins og eft­ir­köst Lands­rétt­ar­máls­ins og van­traust­s­til­lögu á Sigríði Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra. Þá kom upp ágrein­ingur þvert á hefð­bundnar víg­línur stjórnar og stjórn­ar­and­stöðu í síð­ustu viku þegar minni­hluti þing­manna, að mestu úr Sjálf­stæð­is­flokki, Mið­flokki og Flokki fólks­ins, kom í veg fyrir að meiri­hluta­vilji næði fram að ganga í máli sem sner­ist um að lækka kosn­inga­aldur í kom­andi sveita­stjórn­ar­kosn­ingum niður í 16 ár. Það var gert með mál­þófi sem leiddi til þess að lík­ast til verður ekki hægt að afgreiða málið fyrir kom­andi sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar.

Að öðru leyti er fá af helstu áherslu­málum rík­is­stjórn­ar­innar komin fram. Það er þó von á fjár­mála­á­ætlun hennar til næstu fimm ára strax eftir páska og sam­hliða ættu áætl­anir hennar fyrir næstu ár að liggja skýrar fyrir.

Ríkisstjórnarflokkarnir ekki lengur með meirihluta

Sam­eig­in­legt fylgi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna hefur einnig dreg­ist saman frá kosn­ing­unum 27. októ­ber 2017. Þá fengu Vinstri græn, Sjálf­stæð­is­flokkur og Fram­sókn­ar­flokkur sam­tals 52,9 pró­sent atkvæða sem tryggði þeim 35 þing­menn.

Sam­eig­in­legt fylgi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna þriggja mælist nú 47,6 pró­sent sem myndi lík­ast til ekki nægja þeim til að ná meiri­hluta á þing­inu þótt það sé ekki úti­lokað í ljósi þess að vægi atkvæða er mis­mun­andi eftir kjör­dæmum. Aðra könn­un­ina í röð mælist sam­eig­in­legt fylgi stjórn­ar­flokk­anna því undir 50 pró­sent.

Minnk­andi vin­sældir rík­is­stjórn­ar­innar virð­ast aðal­lega bitna á Vinstri grænum. Fylgi þeirra mælist nú þremur pró­sentu­stigum minna en flokk­ur­inn fékk upp úr kjör­köss­unum í októ­ber. Þá var fylgið 16,9 pró­sent en mælist nú 13,9 pró­sent.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist nú með 24,5 pró­sent fylgi en fékk 25,3 pró­sent í síð­ustu kosn­ingum. Það var næst versta nið­ur­staða hans í sög­unni, en sú verst var í kosn­ing­unum vorið 2009 þegar 23,7 pró­sent þeirra sem kusu settu x við D.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er líka að glíma við sögu­lega lægð. Nú mælist fylgi við hann 9,2 pró­sent, sem er 1,5 pró­sentu­stigi minna en versta útkoma hans í 101 árs sögu flokks­ins sem átti sér stað í fyrra­haust. Þá kusu 10,7 pró­sent lands­manna Fram­sókn­ar­flokk­inn.

Frjálslynda miðjan styrkist

Sá stjórn­ar­and­stöðu­flokkur sem er að styrkja sig mest sam­kvæmt könn­unum er Sam­fylk­ingin. Flokk­ur­inn, sem var við það að falla af þingi í kosn­ing­unum 2016, fékk 12,1 pró­sent atkvæða í fyrra­haust. Fylgi hans mælist nú 16,5 pró­sent og Sam­fylk­ingin mælist þar með næst stærsti flokkur lands­ins. Flokk­ur­inn er þó enn tölu­vert frá því 30 pró­senta fylgi sem hann naut nokkuð stöðugt um ára­bil fyrr á öld­inni.

Annar stjórn­ar­and­stöðu­flokkur sem mælist nú umtals­vert hærri en í síð­ustu kosn­ingum eru Píratar. Fylgi flokks­ins mælist nú 12,5 pró­sent en Píratar fengu 9,2 pró­sent atkvæða í októ­ber.

Þá hefur fylgi Við­reisnar leitað upp á við frá kosn­ing­unum, þegar flokk­ur­inn fékk 6,7 pró­sent atkvæða. Nú mælist fylgi hans 8,4 pró­sent. Saman eru þessir þrír stjórn­ar­and­stöðu­flokkar, sem allir eru stað­settir á frjáls­lyndri miðju stjórn­mál­anna, því með 37,4 pró­sent sam­eig­in­legt fylgi sam­kvæmt nýj­ast þjóð­ar­púlsi Gallup. Þeir fengu 28 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum í fyrra­haust og hafa því bætt við sig 9,4 pró­sentu­stigum frá þeim tíma.

Njóta ekki minnkandi vinsælda stjórnarinnar

Hinir tveir stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir, Mið­flokkur og Flokkur fólks­ins, njóta ekki auk­ins stuðn­ings þrátt fyrir að fylgi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna dali. Mið­flokk­ur­inn, sem stofn­aður var utan um Sigmund Davíð Gunn­laugs­son eftir að hann yfir­gaf Fram­sókn­ar­flokk­inn skömmu fyrir síð­ustu kosn­ingar, vann mik­inn kosn­inga­sigur í fyrra­haust. Alls fékk flokk­ur­inn 10,9 pró­sent atkvæða sem er mesta fylgi sem nýr stjórn­mála­flokkur hefur nokkru sinni fengið í fyrstu þing­kosn­ing­unum sem hann hefur tekið þátt í. Vin­sæld­irnar virð­ast þó fara dvín­andi og fylgi flokks­ins mælist nú 8,7 pró­sent.

Flokkur fólks­ins kom líka á óvart í síð­ustu kosn­ingum, enda mæld­ist hann ekki með nægj­an­legt fylgi til að koma manni inn á þing dag­anna fyrir þær. Flokk­ur­inn end­aði þó með 6,9 pró­sent atkvæða og náði inn fjórum þing­mönnum. Nú mælist fylgið 4,9 pró­sent og hefur lækkað um tvö pró­sentu­stig frá því í októ­ber 2017.

Þessi blokk, sem er mun lík­ari í áherslum en hinir stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir, mælist því sam­an­lagt með 13,6 pró­sent fylgi. Það er 4,2 pró­sentu­stigum minna en flokk­arnir tveir fengu í síð­ustu kosn­ingum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár