„Víða bros á andlitum á Íslandi í dag“

Bóluefni Pfizer og BioNTech kom til lands­ins í morgun og segir heil­brigð­is­ráð­herra að það sem hafi skilað okkur þeirri stöðu sem við horfum á í dag sé sam­staða.

Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, hélt ræðu á blaðamannafundi í morgun.
Svandís Svav­ars­dóttir, heil­brigð­is­ráð­herra, hélt ræðu á blaða­manna­fundi í morgun. Mynd: Almannavarnir

Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra óskaði lands­mönnum til ham­ingju með dag­inn á blaða­manna­fundi í morgun en fyrstu skammtar af bólu­efni Pfizer og BioNTech komu til lands­ins í dag.

„Mikið sem ég vildi að við gætum séð brosin bak við grím­urnar en ég get full­vissað ykkur öll um það að það eru víða bros á and­litum á Íslandi í dag,“ sagði hún.

Um er að ræða 10.000 skammta af bólu­efn­inu en á morgun, þriðju­dag, verður farið í það að bólu­setja íbúa hjúkr­un­ar­heim­ila og fram­línu­fólks í heil­brigð­is­þjón­ustu. „Bólu­setn­ingin hefst á morgun og þar búum við að okkar sterku innviðum, við búum að öfl­ugu fag­fólki og gríð­ar­lega vönd­uðum und­ir­bún­ingi sem gerir okkur kleift að hefj­ast handa án tafar og vinna þetta verk hratt og vel.“

Sterkari saman

Svandís sagði að ástæðan fyrir því að svo hratt hefði gengið að þróa bólu­efni væri sam­staða. „Það er sam­vinna vís­inda­manna, sam­vinna og sam­staða fyr­ir­tækja, heil­brigð­is­þjón­ustu, sam­vinna og sam­staða þjóða og íbúa þeirra. Þessi sam­staða hefur skilað okkur þeirri stöðu sem við horfum á í dag. Lær­dóm­ur­inn af COVID-19 er marg­hátt­aður en kannski sá stærsti að við vitum að við erum sterk­ari saman.

Fyrir fámenna þjóð eins og Íslend­inga þá vitum við að sam­staðan hefur gert það að verkum að við höfum kom­ist betur í gegnum far­ald­ur­inn en margir aðrir hafa borið gæfu til en það er líka vegna sam­stöðu Norð­ur­landa­þjóð­anna og ekki síður sam­stöðu Evr­ópu­þjóð­anna að við erum komin hér með þessi bólu­efni,“ sagði hún.

Nýr kafli í baráttunni við COVID-19

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir sagði á fund­inum að dag­ur­inn í dag væri mik­ill gleði­dagur í bar­átt­unni við COVID-19. „Baráttan gegn COVID-19 hefur verið löng og ströng en það er trú mín að í dag muni hefj­ast nýr kafli í bar­átt­unni við COVID-19 og með komu bólu­efn­is­ins tel ég að það hylli loks­ins í það að við getum farið að snúa bar­átt­unni okkur í hag.“

Hann benti enn fremur á að rann­sóknir sem gerðar hafa verið á þessu bólu­efni sýndu að það væri mjög virkt gegn COVID-19 og mjög öruggt. „Ég vil því hvetja alla þá sem það stendur til boða að taka þessu bólu­efni fagn­andi.“

Alma Möller land­læknir tók einnig til máls á fund­inum og sagði að þetta væri stór­kost­legur dagur. „Til ham­ingju við öll og gangi okkur og ykkur vel,“ sagði hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár