Sektir vegna brota á sóttvarnaráðstöfunum geta numið allt að hálfri milljón

Brot gegn gild­andi reglum um sótt­kví geta kostað fólk allt að 250 þús­und krónur og þeir sem fara gegn reglum um ein­angrun gætu þurft að greiða hálfa milljón í sekt, sam­kvæmt nýjum fyr­ir­mælum rík­is­sak­sókn­ara til lög­reglu­stjóra lands­ins.

Lögreglan hefur heimild til þess að sekta fólk um allt að 500 þúsund krónur fyrir brot gegn sóttvarnaráðstöfunum.
Lög­reglan hefur heim­ild til þess að sekta fólk um allt að 500 þús­und krónur fyrir brot gegn sótt­varna­ráð­stöf­unum. Mynd: Bára Huld Beck

Rík­is­sak­sókn­ari gaf í dag út sér­stök fyr­ir­mæli til lög­reglu­stjóra lands­ins vegna þeirra opin­beru sótt­varna­ráð­staf­ana sem gripið hefur verið til vegna heims­far­ald­urs COVID-19. Samkvæmt fyr­ir­mæl­unum er heim­ilt að sekta ein­stak­linga og fyr­ir­tæki um allt að 500 þús­und krónur fyrir brot gegn sótt­varna­ráð­stöf­unum; sótt­kví, ein­angrun og sam­komu­banni.

Í fyr­ir­mælum Sigríðar J. Frið­jóns­dóttur rík­is­sak­sókn­ara segir að lögð sé áhersla á að ákærendur meti hvert til­vik fyrir sig og ákvarði sekt­ar­fjár­hæðir með hlið­sjón af alvar­leika brots. Lög­reglu­stjórar eru einnig beðnir um að senda upp­lýs­ingar um öll þau mál sem upp koma, verði þau ein­hver, til emb­ættis rík­is­sak­sókn­ara til að tryggja yfir­sýn og sam­ræmi í afgreiðslum lög­reglu­stjóra.

Við vinnslu fyr­ir­mæl­anna hefur meðal ann­ars verið litið til þess hvernig rík­is­sak­sókn­ara­emb­ætti á Norð­ur­lönd­unum hafa brugð­ist við þeim aðstæðum sem skap­ast hafa vegna COVID-19, sam­kvæmt til­kynn­ingu rík­is­sak­sókn­ara.

Allt að 250 þúsund króna sekt fyrir að brjóta gegn skyldum um sóttkví

„Við erum að fá allt of mikið af til­kynn­ingum um fólk í sótt­kví sem er að fara í versl­an­ir,“ sagði Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn hjá almanna­varna­deild rík­is­lög­reglu­stjóra, á blaða­manna­fundi í dag. Þessi hátt­semi brýtur gegn gild­andi reglum um sótt­kví og hægt er að sekta fólk fyrir slíkt athæfi um á bil­inu 50-250 þús­und krónur, en sekt­ar­upp­hæðin skal ákvarð­ast eftir alvar­leika brots.

[links]

Enn hærri sektir liggja við því að brjóta gegn reglum um ein­angrun, en ger­ist fólk sekt um slíkt gætu sektir orðið á bil­inu 150-500 þús­und krónur. Rík­is­sak­sókn­ari segir að í sumum til­vikum gæti slík hátt­semi verið það alvar­leg að fyrir bæri að refsa sam­kvæmt ákvæðum hegn­ing­ar­laga.

„Sem dæmi má nefna að sak­born­ingur geri nokkurn hóp manna útsettan fyrir sýk­ingu eða sýki hóp manna af COVID-19 og enn alvar­legra ef um er að ræða að útsetja eða sýkja þá sem eru í sér­stakri hættu vegna und­ir­liggj­andi sjúk­dóma,“ segir í fyr­ir­mælum rík­is­sak­sókn­ara, sem bætir að ef eitt­hvað í þessa lík­ingu komi upp beri lög­reglu­stjórum að láta bæði rík­is­sak­sókn­ara og hér­aðs­sak­sókn­ara vita.

Fimmtíu þúsund króna sekt fyrir að taka þátt í of fjölmennri samkomu

Sé brotið gegn gild­andi reglum um fjölda­sam­komur, segir rík­is­sak­sókn­ari, er heim­ilt að sekta hvern og einn ein­stak­ling sem sækir sam­kom­una um 50 þús­und krónur. Þá er heim­ilt að sekta þann sem er í for­svari fyrir eða skipu­leggur sam­kom­una um 250-500 þús­und krónur.

Þá getur sekt fyrir að brjóta gegn reglum um lokun sam­komu­staða eða starf­semi vegna sér­stakrar smit­hættu numið á bil­inu 100-500 þús­und krónum, sam­kvæmt fyr­ir­mælum rík­is­lög­reglu­stjóra.

Í til­kynn­ingu frá rík­is­sak­sókn­ara segir að mjög mik­il­vægt sé að það sé al­veg skýrt til hvaða úrræða lög­regla geti gripið ef farið er gegn reglum um sótt­varn­aráð­staf­an­ir.

Enn sem komið er hafi til­kynn­ing­ar til lög­reglu vegna brota gegn sótt­varn­aráð­s­töf­un­um verið fáar, sem sé til marks um sam­stöðu í sam­fé­lag­inu um þýð­ingu og mik­il­vægi þess­ara aðgerða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár